Þroskaþjálfinn - 2024, Blaðsíða 20

Þroskaþjálfinn - 2024, Blaðsíða 20
38 39 efnisins. Formlegir rannsóknarfundir voru í heildina átta talsins og voru þeir mislangir eftir viðfangsefni. Eftir hvern fund var búin til fundar- gerð og á þeim rannsóknarfundum sem haldnir voru innan veggja háskólans hófst hver fundur á að afla samþykkis meðlima um að fundurinn yrði tekinn upp á hljóðupptöku til að afla gagna fyrir rannsóknina. Þau gögn sem aflað var fela í sér upplifanir og reynslu vettvangsrannsakenda af búsetuþjónustu sveitarfélaga höfuðborgar- svæðisins ásamt faglegri þekkingu sérfræðinga sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks. Rann- sóknargögnin samanstóðu af hljóðupptökum, fundargerðum og rituðum minnispunktum. Gagnagreining hófst við afritun rannsóknar- gagna með þemagreiningaraðferð. Grunngildi siðareglna háskólanna um vísindarannsóknir eru virðing fyrir manneskjunni, heiðarleiki og vönduð vinnubrögð ásamt því að gæta skuli að réttlæti, skaðleysi og velferð. Í samvinnurann- sókn sem þessari, þar sem aðstæður vettvangs- rannsakenda, fatlaðs fólks búsetts í íbúðakjörn- um, voru uppi á borðinu var skylda mín sem háskólarannsakanda að hafa þessi tilteknu gildi í fyrirrúmi við gerð verkefnisins (Háskóli Íslands, 2020). Niðurstöður Þegar rannsóknarhópurinn ræddi reynslu sína af búsetuþjónustu sveitarfélaga höfuðborgar- svæðisins á rannsóknarfundunum kom það á óvart hversu ólíka aðstoð og stuðning vettvangs- rannsakendurnir fengu. Þeir áttu það sameigin- legt að nota hjólastól og þurfa persónulega að- stoð og stuðning við flestar athafnir daglegs lífs. Þrátt fyrir ólíka íbúðakjarna heyra sveitarfélögin öll undir sömu löggjöfina. Túlkun þjónustuveit- enda á þessum lögum virðist þannig hafa áhrif á það hvernig þjónustan var framkvæmd hverju sinni. Í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (nr. 38/2018) er kveðið á um rétt fatlaðs fólks á nauðsynlegum stuðningi til að njóta fullra mannréttinda til jafns við aðra. Jafnframt kveður á um í lögum ríkar skyldur er lúta að því að fötluðu fólki séu sköpuð skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsend- um. Þjónusta við fatlað fólk þarf þar af leiðandi að miða að einstaklingsmiðuðum þörfum og aðstæðum viðkomandi. Samkvæmt íslenskum lögum og hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf felur hún í sér persónulega aðstoð þar sem við- eigandi stuðningur er veittur með einstaklings- bundnum hætti til að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi án aðgreiningar í samfélaginu. Því miður virðist sem pottur sé víða brotinn hvað einstaklingsmiðaða þjónustu varðar en eingöngu einn vettvangsrannsakandi af fjórum taldi sig fá viðeigandi þjónustu í formi aðstoð- ar og stuðnings í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf. Í samráði við starfsfólk fékk hann í flestum tilvikum um það ráðið hvernig aðstoð hans var háttað, hvenær hún færi fram og hver veitti hana hverju sinni. Þjónustan var einstaklingsmiðuð og á hans forsendum. Hann fann fyrir öryggi heima hjá sér og fékk gott við- mót frá starfsfólki sem hann treysti. Hinir þrír vettvangsrannsakendurnir töldu sig skorta að- stoð og stuðning til að lifa sjálfstæðu lífi og skil- greindi einn rannsakandinn sjálfstæði á þennan veg: „Að vera sjálfstæður í lífinu snýst um að geta farið eitthvað þegar maður vill fara þangað, fara heim þegar maður vill fara heim og þurfa ekki að fara upp í rúm af því að það er léttara fyrir vaktina.“ Tveir vettvangsrannsakendur höfðu vegna óánægju sinnar með þá þjónustu sem íbúða- kjarnarnir veittu þeim sótt um flutning og breytt þjónustuform. Biðin eftir viðbrögðum frá sveitarfélögunum virðist þó vera löng þrátt fyrir að lögin kveði á um að þeir hafi rétt á að velja sér búsetustað. Í þeim tilfellum sem vettvangsrann- sakendur voru óánægðir með þá þjónustu sem þeir fengu einkenndust vinnubrögð starfsfólks af skilningsleysi á mikilvægi sjálfræðis í lífi karl- anna sem og mistúlkun á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Einn vettvangsrannsakandi stund- aði háskólanám en viðvarandi skortur á aðstoð og stuðningi hafði lengi valdið honum óöryggi og vanlíðan. Hann mætti ítrekað einn í skólann vegna skorts á aðstoð, sem hafði ekki aðeins áhrif á athafnir daglegs lífs heldur einnig námið. Ef hann þurfti að komast á salernið á skólatíma þurfti hann að hringja í íbúðakjarnann og bíða eftir starfsmanni sem gat tekið langan tíma og greindi hann frá því að starfsmenn íbúðakjarn- ans teldu það lið í að virkja sjálfstæði hans að senda hann einan í skólann. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að oft misskil- ur starfsfólk hugmyndina um sjálfræði og sjálf- stæði þannig að áhersla er lögð á að viðkomandi geri allt sjálfur án aðstoðar (Helle Kristensen, 2019), en það er ekki það sem sjálfræði snýst um. Lífsreynsla fatlaðs fólks er að stórum hluta mót- uð af þeim stuðningi sem það fær, og í því sam- hengi er hlutverk þeirra sem veita þjónustuna stór áhrifavaldur þegar kemur að velgengni fatl- aðs fólks í að ná fram þeim einstaklingsbundna lífsstíl sem það kýs (Dodevska og Vassos, 2013). Sem dæmi fékk sá vettvangsrannsakandi sem var ánægður með sína þjónustu persónulegan stuðning starfsfólks til að komast á milli staða í sínu daglega lífi, stunda nám, félagslíf og tóm- stundir eða það sem honum datt í hug að gera hverju sinni. Hann komst næst því að fá not- endastýrða aðstoð. Með lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 var réttur fatlaðs fólks til NPA (not- endastýrð persónuleg aðstoð) lögfestur. Í íbúða- kjörnum, á hinn bóginn, liggur ákvarðanataka þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk í meiri mæli hjá sérfræðingum og þjónustuveitendum, sem eru sveitarfélög. Með þessu fyrirkomulagi er fjármagn veitt til stofnana í stað þjónustunot- enda, sem getur skert sveigjanleika þjónustunn- ar og gert það að verkum að auknar líkur eru á að fatlað fólk sé álitið einn hópur í stað ólíkra einstaklinga með ólíkar þarfir (Laufey Löve o.fl., 2018). Vettvangsrannsakandinn sem taldi sig lifa sjálfstæðu lífi og var ánægður með sína þjón- ustu fékk að vísu ekki að taka þátt í ráðningu starfsfólks en þjónustan var einstaklingsmiðuð að hans mati, á hann var hlustað og mark tekið á honum. Aðrir vettvangsrannsakendur fengu allir þjónustu sem einkenndist af skipulagi út frá heild og eitt af því sem virðist hafa neikvæð áhrif á samráð í búsetuþjónustunni er mannekla hjá sveitarfélögunum. Vettvangsrannsakendur töldu undirmönnun starfsfólks hafa mikil áhrif á þjónustuna og í sumum tilvikum höfðu tíð veik- indi starfsfólks einnig mikil áhrif á gæði hennar. Erfitt er að koma til móts við fólk á einstaklings- grundvelli þegar starfsfólk vantar og þegar nýir eða tímabundnir starfsmenn eiga erfitt með að setja sig inn í fyrirkomulag sem gengur út á hug- myndafræði um sjálfstætt líf. Rannsóknarhópurinn komst að þeirri niður- stöðu að það væri mögulegt að skipuleggja bú- setuþjónustu íbúðakjarna í anda hugmyndafræði um sjálfstætt líf fyrir vettvangsrannsakendur svo lengi sem hún byði upp á svokallað „mað- ur á mann“-fyrirkomulag. Það sannast í reynslu vettvangsrannsakandans sem lýsti ánægju sinni með þjónustuna sem honum bauðst. Hann upp- lifði sig öruggan, sjálfstæðan og fannst mark á sér tekið. Í tilfellum hinna vettvangsrannsak- endanna var þjónusta þeirra skipulögð út frá heildinni, hún var ekki einstaklingsmiðuð og hún hindraði sjálfræði þeirra. Þrír upplifðu tals- vert óöryggi og vanlíðan á eigin heimili í íbúða- kjörnum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöður verkefnisins gefa þar með til kynna að þörf sé á auknu samráði við þjónustunotend- ur í íbúðakjörnum sem fatlað fólk þarf að reiða sig á og einnig er þörf á frekari fræðslu um hug- myndafræðina til íbúa, starfsfólks og stjórnenda til að hægt sé að tryggja framkvæmd hugmynda- fræðinnar um sjálfstætt líf í íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk samkvæmt lögum. Heimildir: Barnes, C. og Mercer, G. (2018). Competing Models and Approaches. Í C. Barnes og G. Mercer (ritstjór- ar), Exploring Disability: Second Edition (bls. 14-41). Polity Press. Chalachanová, A. (2021). Inkluderende forskning medborgerskap og utviklingshemming: En deltaker- basert studie om praktisering av medborgerskap I hversdagslivet for personer med utviklingshemming i Norge og Slovakia. VID Specialized University. Chalachanová, A., Gjermestad, A. og Lid, I.M. (2019). Involvering av personer med utviklingshemm- ing i forskningssirkler. Í O.P. Askheim, I.M. Lid og S. Østensjo (ritstjórar), Samproduksjon i forskning (bls. 76-93). Universitetsforlaget. https://doi. org/10.18261/9788215031675-2019-05 Dodevska, G.A. og Vassos, M.V. (2013). What qualities are valued in residential direct care workers from the perspective of people with an intellectual disability and managers of accommodation services? Journal of Intellectual Disability Research, 57(7), 601-615. https://doi.org/10.1111/j.1365-2788.2012.01565.x Guðrún V. Stefánsdóttir (2010). Samvinnurannsóknir með fólki með þroskahömlun. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://skemman.is/bitstr- eam/1946/13950/1/Samvinnuranns%c3%b3knir%20

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.