Þroskaþjálfinn - 2024, Side 26

Þroskaþjálfinn - 2024, Side 26
50 51 Niðurstöður rannsókna um notkun á Beanfee Nýlega gerðu mastersnemar í hagnýtri atferlis- greiningu hjá Háskóla Íslands rannsóknir þar sem skoðað var hvernig notkun Beanfee virkar á nemendur með langvarandi hegðunar- og námsvanda. Í þeirri fyrstu voru fjórir drengir á yngsta stigi grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu þátttakendur. Truflandi hegðun var mæld með hlutbilaskráningu og námsástundun með heil- bilaskráningu. Margfalt grunnskeiðssnið yfir þátttakendur sýndi að truflandi hegðun minnk- aði (66,9% að meðaltali) og námsástundun jó- kst (150% að meðaltali) í kjölfar innleiðingar á einstaklingsmiðaðri Beanfee-íhlutun (Silja Dís Guðjónsdóttir, 2022). Niðurstöður annarr- ar rannsóknarinnar leiddu í ljós umtalsverðan samdrátt í hegðunarvanda fjögurra nemenda með langvarandi hegðunar- og námsvanda á miðstigi úr stórum grunnskóla á stórhöfuð- borgarsvæðinu. Meðaltíðni truflandi hegðunar lækkaði úr 52,2 tilvikum á 15 mínútna athugun- um á grunnskeiði niður í 5,2 tilvik á 15 mínútna athugunum þegar Beanfee var beitt (90% lækk- un að meðaltali). Námsástundun var 21% að meðaltali fyrir alla þátttakendur á grunnskeiði og jókst upp í 73% eftir að íhlutun var innleidd (349% hækkun að meðaltali) (Helga Magnea Gunnlaugsdóttir, 2023). Niðurstöður rannsókn- anna benda til þess að einstaklingsbundin notk- un á Beanfee, sem kennarar stjórna í samvinnu við nemendur og foreldra þeirra, geti dregið umtalsvert úr viðvarandi truflandi hegðun og stuðlað að námsástundun nemenda í kennslu- stofum á grunnskólastigi. Frumtilraunir til beitingar á Beanfee með full- orðnum benda til að efnisleg umbun sé ekki ein- föld í útfærslu fyrir fullorðið fólk þar sem full- orðnir eru fjárhagslega sjálfstæðir, öfugt við flest börn og ungmenni. Hins vegar, eins og Helgi bendir á, er ekki útilokað að hægt sé að nota forritið fyrir fullorðna því hvatning á borð við afreksmerki virðist almennt virka vel sem hvatn- ing fyrir fólk á öllum aldri til að breyta hegðun sinni eða lífsstíl, en sem dæmi má þar nefna af- reksmerki, hrós og hvatningu sem heilsuúr og tölvuleikir senda frá sér til notanda tækjanna (Helgi S. Karlsson, munnleg heimild, 12. mars 2024). Áhættugreining og leyfishafar Beanfee-smáforritið fór nýlega í gegnum áhættu- greiningu kennsluhugbúnaðar hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga og kom ágætlega út í þeirri greiningu sem stafrænn vettvangur fyrir hegð- unarþjálfun. Markmið með áhættugreiningu á stafrænum kennslubúnaði er meðal annars að vernda nemendur sem viðkvæman hóp, finna heppileg kennsluforrit til kennslu, halda skrán- ingu yfir kennsluforrit sem notuð eru í skólum landsins og efla ábyrga notkun á stafrænu ör- yggi í kennslu. Því hefur Beanfee ehf. nú þegar hafið sölu á smáforritinu til sveitarfélaga lands- ins en í apríl 2023 innleiddi Hafnarfjarðarbær Beanfee-smáforritið. Verður það notað á öllum þjónustustigum sveitarfélagsins sem verkfæri til að vinna með hegðunar- og námsvanda inn- an verklags Brúarinnar og farsældarlaganna svokölluðu, en Brúin er verklag sem eflir þjón- ustu og stuðning við börn í leik- og grunnskól- um sveitarfélagsins. Kópavogsbær hefur einnig nýlega fjárfest í aðgangi að Beanfee-hugbún- aðinum. Verður hann nú í boði fyrir börn og ungmenni innan Kópavogs til úrvinnslu mála á stigi tvö og þrjú, samkvæmt lögum um sam- þættingu þjónustu í þágu farsældar barna (nr. 86/2021). Skólakot, kennsluúrræði fyrir börn og unglinga, er annar dyggur Beanfee- notandi og beitir Beanfee-inngripum í sínum daglegu störf- um með nemendum á sínum vegum. Þá hefur BUGL fengið að prófa forritið en þá var Beanfee notað til að hvetja börn til bursta í sér tennurnar, fara í bað eða sturtu, stunda reglulega hreyfingu eða sprauta sig reglulega með insúlíni (Hafnar- fjörður, 2023; Helgi S. Karlsson, munnleg heim- ild, 12. mars 2024; Rannís, 2022; Samband ís- lenskra sveitarfélaga, e.d.). Það er því óhætt að segja að smáforritið Bean- fee sé afar góð viðbót við þau verkfæri, inngrip og matstæki sem mæla og efla félags- og tilfinn- ingafærni nemenda og kenna þeim með virkum hætti að breyta hegðun sinni á jákvæðan hátt. Hægt er að fræðast nánar um Beanfee-hugbún- aðinn á http://www.beanfee.com eða með því að senda fyrirspurn á helgi@beanfee.com.  Heimildir: Beanfee. (e.d.). Beanfee. https://beanfee.com/ Hafnarfjörður (2023, 12. apríl). Bærinn innleiðir Bean- fee. https://hafnarfjordur.is/baerinn-innleidir-bean- fee/ Helga Magnea Gunnlaugsdóttir (2023). Effects of the Beanfee token economy software on students’ persistent problem behavior and lack of academic engagement [meistararitgerð]. Skemman. https:// skemman.is/handle/1946/43390 Morris, E.K., Smith, N.G. og Altus, D.E. (2005). BF Skinner’s contributions to applied behavior analysis. The Behavior Analyst, 28(2), 99-131. Rannís (2018, 5. júní). Tækniþróunarsjóður úthlutar 700 milljónum til nýsköpunarfyrirtækja og frum- kvöðla. https://www.rannis.is/frettir/taeknithrounar- sjodur-uthlutar-700-milljonum-til-nyskopunar-fyr- ir-taekja-og-frumkvodla Rannís (2022, 26. janúar). Hugbúnaður til atferlisþjálf- unar – Beanfee-verkefni lokið. https://www.rannis.is/ frettir/taeknithrounarsjodur/hugbunadur-til-atferlist- hjalfunar-beanfee-verkefni-lokid Rannís (2022, 9. júní). Vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2022. https://www.rannis.is/frettir/taeknithrounarsjod- ur/voruthlutun-taeknithrounarsjods-2022 Samband íslenskra sveitarfélaga (e.d.). Áhættugrein- ing kennsluhugbúnaðar. https://stafraen.sveitarfelog.is/ ahaettugreining-kennsluhugbunadar-forsida/ SATIS (2019). Um SATIS-samtökin. https://atferli.is/ um-samtokin/ Silja Dís Guðjónsdóttir (2022). Effects of the Bean- fee token economy software on students’ persistent problem behavior and lack of academic engagement [meistararitgerð]. Skemman. https://skemman.is/ handle/1946/42452

x

Þroskaþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.