Skessuhorn - 29.05.2024, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 20246
Bifreið fauk
út af og valt
VESTURLAND: Fram
kemur í dagbók Lögreglunnar
á Vesturlandi í liðinni viku að
ferðamaður datt og meiddist á
Langjökli og var hann fluttur
á brott með sjúkrabifreið.
Nokkur mál komu inn á borð
lögreglu þar sem grjót fauk
eða kastaðist á aðrar bifreiðar
með þeim afleiðingum að
skemmdir hlutust af. Einnig
fauk bifreið út af veginum
og valt norðan við Akrafjall
en engin slys urðu á fólki þar
(sjá mynd). Tvö minni háttar
umferðaróhöpp komu einnig
upp án meiðsla á fólki eða telj-
andi skemmda á ökutækjum.
-vaks
Vígja nýja
björgunar
miðstöð
BORGARNES: Sunnu-
daginn 2. júní klukkan 14
býður björgunarsveitin Brák
í Borgarnesi íbúum og nær-
sveitungum til vígsluathafnar
á nýju björgunarmiðstöð-
inni að Fitjum 2 í Borgarnesi.
Stutt athöfn verður klukkan
14 en að henni lokinni boðið
upp á léttar kaffiveitingar
og skoðun um húsið. Fyrsta
skóflustungan að húsinu var
tekin fyrir fimm árum, í lok
mars 2019, en meðfylgjandi
mynd var tekin við það tilefni.
-mm
Atvinnuleysi
mælist 3,6%
LANDIÐ: Í apríl síðast-
liðnum voru 8.500 atvinnu-
lausir samkvæmt árstíðaleið-
réttum niðurstöðum Hagstof-
unnar. Árstíðaleiðrétt hlut-
fall atvinnulausra var 3,6%,
hlutfall starfandi var 79,7%
og atvinnuþátttaka 82,7%.
Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi
dróst saman um 0,9 prósentu-
stig á milli mánaða á sama
tíma og hlutfall starfandi
jókst um tvö prósentustig og
atvinnuþátttaka jókst einnig
eða um 1,4 stig. -mm
Fjögurra bíla
árekstur í
göngunum
VESTURLAND: Í liðinni
viku voru afskipti höfð af 52
ökumönnum í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi vegna
of hraðs aksturs en sá sem
hraðast ók mældist á 145 km/
klst. Tveir ökumenn eru grun-
aðir um ölvun við akstur. Í öðru
málinu voru ung börn með í
för og var málið því afgreitt
með aðkomu barnaverndar-
yfirvalda. Afskipti voru einnig
höfð af nokkrum ökumönnum
vegna ýmissa mála, svo sem
frágangs á farmi, símanotk-
unar, beltisleysis og fleira.
Fjögurra bíla árekstur varð í
Hvalfjarðargöngum og var um
aftanákeyrslur að ræða í því til-
viki. Nokkrir voru með minni
háttar eymsli eftir óhappið og
hugðust fara á eigin vegum
til læknis vegna þess. Einnig
var ekið á ljósastaur við
Hvalfjarðargöng með þeim
afleiðingum að bæði staur og
ökutæki skemmdist nokkuð en
meiðsli ökumanns voru talin
minni háttar. -vaks
Íbúafundur
vegna sam
einingar
SKORRA/BORG: Fimmtu-
daginn 30. maí klukkan 18
verður sameiginlegur íbúa-
fundur Skorradalshrepps og
Borgarbyggðar haldinn í Brún
í Bæjarsveit. Umræðuefnið eru
þær óformlegu viðræður um
sameiningu sveitarfélaganna
sem nú standa yfir. Fundurinn
verður jafnframt sendur út á
Teams. -mm
Andlát
Hendrik Björn Hermannsson
veitingamaður
Hendrik Björn Hermanns-
son veitingamaður á Hvanneyri
er látinn, 49 ára að aldri. Hann
varð bráðkvaddur 20. maí síðast-
liðinn. Hendrik hafði starfað
við veitingasölu um árabil, síð-
ustu árin á Hvanneyri og rak m.a.
veisluþjónustuna H-veitingar.
Hendrik var sonur Kristínar Bene-
diktsdóttur og Hermanns Gunn-
arssonar, sem best var þekktur sem
Hemmi Gunn. Hendrik lætur eftir
sig son á þrítugsaldri.
Hendrik var þjónn að mennt
en árið 2010 fór hann að snúa sér
meira að eldhúsinu. Í viðtali sem
Skessuhorn tók við hann fyrir
fjórum árum sagði Hendrik m.a:
„Ég hef verið í þessum bransa í
þrjátíu ár og var búinn að reka
hótel og veitingastaði í gegnum
tíðina þegar ég fór að snúa mér
meira að eldamennsku. Þá hafði ég
lært margt af þeim snillingum sem
höfðu unnið fyrir mig og ég unnið
með í gegnum tíðina. Ég hef gaman
að þessu öllu; að elda, þjóna og bara
vera í kringum gesti. Ég elska að
dekra við fólk, það er mín ástríða,“
sagði Hendrik.
Í tilkynningu frá fjölskyldu
Hendriks síðastliðinn fimmtu-
dag kom fram að fyrirtækinu H
veitingum hafi nú verið lokað.
„Þökkum fyrir vinsemd og við-
skipti undanfarin ár. Óskum ykkur
velfarnaðar og alls hins besta um
ókomna tíð,“ sagði í tilkynningu
frá ættingjum.
mm
Djúp lægð gekk yfir Snæfellsnes
á föstudag og laugardag með öfl-
ugum vindkviðum sem náðu yfir
35 metra samhliða mikilli úrkomu.
Lítið var um óhapp vegna veðurs en
hjólhýsi fauk þó á hliðina í Ólafs-
vík og í Rifi virkuðu ekki lensi-
dælur í tveimur strandveiðibátum
og einum í Ólafsvík, en ekki varð
tjón svo vitað sé á bátunum. Með-
fylgjandi mynd var tekin í Ólafsvík
á föstudagsmorgun en þá var mikið
hvassviðri og dæmalaus rigning.
af
Hendrik Björn Hermannsson. Ljósm. úr safni Skessuhorns/arg
Hvassviðri og úrhelli í vikulokin