Islande-France - 01.10.1948, Page 26

Islande-France - 01.10.1948, Page 26
24 ISLANDE - FRANCE MAURICE BEDEL: Tíii ár eru liðin frá dauða Ravel y 14) sátum sam- an. nokkrir vinir, á handriði í höfninni i Saint-Jean-de- Luz, og snerum baki i sólina. Gegnt okkur stóð liáa baskahúsið, þar sem Ravcl fæddist. Úr veil- ingastofu í nánd við okkur bárust við og' við lagstúfar frá einliverri fjarlægri útvarpsstöð, franskri eða erlendri. AUt i einu heyrðum við lagið Boléro. Ungur sjómaður, sem var að þurrka netin sín nálægt okk- ur, tók undir og fór að hlístra lagið, með áherzlum eftir hljóðfallinu, og tókst honum vel að ná hinni ástríðu- fullu þrá, sem þessi ástarsöngur túlkar. —• Svo Ravel er þá orðinn þjóð- Iegt tónskáld, sagði einhver okkar. Á mínum yngri árum var hann lal- inn öfgakenndur, ofstopafullur og harðsvíraður byltingamaður. Nú raula sjómennirnir í fæðingarhæ Iians lögin lians. - Þetta stafar af þvi, sagði ég, að Ravel kann þá list að láta lög sín seiða fram fyrir sjónir hins óbrotna alþýðumanns töfrandi fyrirbæri náttúrunnar, sem enginn fær staðizt ósnortinn. Hin háttbundna endur- tckning stefsins í Boléro minnir sjó- manninn á öldurnar, sem berast upp að ströndinni. En dæmið, sem ég' tek hér, er eitt hinna hávaða- meiri og grófgerðari. Ravel er stærstur á sviði fíngerðari fyrir- brigða, og þar nær hann mestum og dýpstum tilþrifum. Ég hygg, að enginn tónlistarmað- ur hafi sett sig eins vel og hann inn í þessi „smáfyrirbæri“. Aðrir hafa orðið fyrri til að lýsa þrumuveðr- inu, fossunum, storminum, upprisu tunglins, sólarlaginu. En Ravel skyggnist inn í regndropann, tyl-lir sér á krónublað fifilsins, fer í felu- leik við mýfluguna og dansar jafn- vel linudans á þöndum þráðuxh köngulóarvefsins. Hann hefur bund- izt tryggðahöndum við álfa og' helg'- ar þeim Iiáfleyga og gáskafulla kafla í Mci Mere l'Oije, þar sem Þyrnirósa dansar síðasla dansinn, áður en hún fellur i lmndrað ára svefn,þar sem Tumi þumall gengur á undan hræðrmn sinum á leiðinni til flagðsins, skjálfandi á heinunum og með tennurnar glamrandi í munn- inum, þar sem drottning kínvei’skra muslera hlýðir á tónverk leikin á hnetuskurnir. Ég ætla að vikja nánar að því fin- gei’ða í list Ravels, og það af þjóð- Iegum ástæðum: Þessi fínleiki er eins og blæja, sem lögð cr yfir hina óviðjafnanlega voldugu sköpunar- gáfu hans. Þeir sem láta hlekkjast af því, hve létt er yfir verkum ]>essa listamanns, iéttu að gera sér ]>að ljóst, að það er á slikaix hátt, sem hin einkennilega, villandi og þreyt-

x

Islande-France

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.