Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 32

Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Side 32
3. Leikvangur höfrunga. Sólroðin bára. Haf sem gola gárar. Ég vil taka börn mér við hönd og leiða þau til strandar, að sál þeirra megi öðlast hlutdeild í dýrð þinni. í allan dag hafa bátar verið að koma úr róðri. Þeir eru búnir að tvíhlaða og þríhlaða. Sjómennirnir kasta gulum ORMUR ÓLAFSSON: VOKVÍSUK Við mig rjála vonirnar, vegir sálar Ijósir. Astin bálar allstaðar andinn málar rósir. Harmi eyðir hugur minn, hárið greiðir svalinn, opnar leiðir allar finn upp i heiðardalinn Vorið hvetur vinaþel vonir letrar stcerri, þegar vetrar þagna él þá er betra nœrri. Fífill grær og fjóla smá, fjallablœrinn svalar, lifið nœrir litil strá, lindin tcera hjalar. Eigi gleymast cevispor, atvik geymir minni, elli dreymir œskuvor unaðsheima kynni. bolmiklum þorski léttilega upp á bryggju. Ungir piltar standa í miðri kös og eru að afhausa með löngum sveðjum. Stúlkurnar hafa bundið olíu- svuntu framan á sig og keppast við að slíta slóg. Öðru hverju líta þau upp úi verkinu ,horfast glaðlega í augu og segja: „Blessaður fiskurinn okkar.“ Fjögra ára gamlir pottormar vaða slorhauga upp fyrir nára til að gera sig óhreina. Þeir veifa um sig með vænum kútmögum og endurtaka í kotrosknum tón: „Blessaður fiskurinn okkar.“ Þá brosir gamall maður í grátt skegg: „Já, Guð hefir blessað fiskinn okkar.“ í haust fara piltamir og stúlk- urnar í skóla, litlu strákarnir fá tvenn- ar síðbuxur með klauf og vösum, og gamall maður þarf ekki að kvíða vetr- inum. Teljið mér ekki trú um að það sé stuttur spölur neðan úr flæðarmálinu upp í kirkjugarð. Ég hef borið son minn þessa leið í fanginu og veit, að hún er lengri en eilífðin. Þú skilaðir honum upp á ströndina, sær, látnum og illa leiknum. Höfði hans hélztu eft- ir. Ég skal ekki álasa þér. En segðu ekki að fórn mín sé of smá. Ég hafði strokið hendi yfir mjúkan hvirfil hans á hverjum degi frá því hann fæddist og fundið höfuðmótin gróa hægt og hægt. Stoltur hafði ég horft á hann fullþroska mann koma að með hlaðinn bát á hverju kvöldi. Sorg mín er ekki léttari, þó hún sé borin vegna þús- unda — en bjartari. Hún er Ijós sem logar á altari lífsins. Fagra gjöfula haf. Ég gef þér ást mína án skilyrða. Þú ert barn mitt, ættjörð mín og móðir. Ég gleðst yfir að vera dropi í djúpi þínu. 30 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.