Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Blaðsíða 36
ZÓPHANÍAS JÓNSSON:
Svipmyndir frá Kína
Við erum stödd í borginni Hang-
chow í Miðkína, borg sem er fræg
fyrir fagurt umhverfi. Hún stendur
við Vesturvatn, sem er eitt af
fegurstu vötnum þar í landi. Það
er fjöllug girt á þrjá vegu. Fjöll-
in eru ekki há og víða skógi klædd
upp á tinda, víða gnæfa stórar bygg-
ingar við himin eins og gamlir kast-
alar. Hvort þarna var um varnar-
virki að ræða komst ég ekki að raun
um. í dölum fjallanna er mikil terækt
og te úr þessu héraði er frægt fyrir
gæði. Víða gnæfa við himin Pagódur
í mörgum hæðum. Þessar sérkenni-
legu kínversku þyggingar sem eru
hvort veggja í senn musteri til dýrð-
ar löngu liðnum forfeðrum eða ein-
göngu til að gefa landslaginu fegurri
svip. Þessir háu einstæðu tumar eru
frá ýmsum tímábilum, sumir yfir
þúsund ára, og byggingarstíllinn er
harla ólíkur frá hinum ýmsu tíma-
bilum, sumar eru afar skrautlegar,
gerðar af dýrum steintegundum, mar-
mara og granít, aðrar eru aftur á
móti byggðar úr timbri útskornar og
málaðar sterkum litum, þær eru
venjulega nokkuð minni.
Hótelið okkar stendur á vatnsbakk-
anum, útsýnin yfir vatnið er stórfeng-
leg, til fjallanna handan vatnsins.
Lágir grandar liggja um vatnið, vaxn-
ir stórum trjám, sem breiða hinar
laufmiklu krónur sínar út yfir vatnið.
Tilsýndar er að sjá eins og trén
vaxi upp úr sjálfu vatninu. Við förum
á bát yfir vatnið, framhjá litlum
pagódum, sem standa aðeins nokkur
fet upp úr vatninu, á þeim eru þrjú
op, þar eru látin inn Ijós þegar dimma
- tekur og tilsýndar speglast ljósin í
vatninu á hinn furðulegasta hátt. Litl-
ar eyjar eru hér og þar í vatninu, þar
vaxa krónumikil tré, sem breiða lim
sitt út yfir vatnið. Þarna eru víða
sólbirgi og aðrar byggingar, sem ekki
virðast hafa öðru hlutverki að gegna
en að skreyta umhverfið. Við komum
að tjörn þar sem skrautlegir fiskar
34
VINNAN og verkalýðurinn