Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 35
Kæru bræður og systur.
1. maí er alþjóðlegur einingar- og bar-
áttudagur verkalýðs allra landa. Hinn mikli
hátíðisdagur verkalýðsins.
Alþjóðasambandið sendir yður hlýjar
bróðurkveðjur í tilefni af deginum. Al-
þjóðlega ástandið í dag gerir þær kröfur
til verkalýðsins að hann treysti einunguna í röðum sínum, að rödd
hans hljómi voldug og sterk með kröfuna um frið, hið sameiginlega
hagsmunamál allra þjóða veraldarinnar.
Allskonar þvingunarráðstafanir gegn samtökum verkalýðsins fara
vaxandi í auðvaldslöndunum, og
nýlendunum. Lögregluárásir á
skrifstofur verkalýðsfélaganna
og fangelsisdómar gegn forystu-
mönnum þeirra. Afturhaldssam-
ar ríkisstjórnir skirrast ekki við
að misbjóða sínum eigin lögum
í árásum sínum á verkalýðinn.
I dag sendum við samúðar-
kveðjur til alls verkalýðs er þjá-
ist undir oki auðvaldsins.
Hvarvetna í löndum auðvalds-
ins og í nýlendunum gætir vax-
andi mótspyrnu gegn árásum
afturhaldsins og kröfur 1. maí í
ár munu mótast af þeim sóknar-
hug verkalýðsins.
Kröfugöngur dagsins munu
styrkja samheldni verkalýðsins
í baráttunni fyrir hagsmuna-
kröfum hans, verndun lýðréttinda og þjóðlegs sjálfstæðis. Barátta
hans fyrir friði og gegn nýlendukúgun og auðvaldsáþján mun eflast.
Aðeins samstillt barátta verkalýðsins og vaxandi eining hans geta
hindrað árásartilraunir atvinnurekendaveldsins á lífskjör hans.,
Alþjóðasambandið skorar á allan verkalýð, karla og konur, að taka
virkan þátt í undirbúningi dagsins og gera 1. maí í ár að degi hinnar
ósigrandlegu einingar.
Skilningurinn á nauðsyn einingarinnar í baráttunni fyrir betri
lífskjörum, gegn atvinnuleysi og fyrir rétti verkalýðssamtakanna
t. mí ivmp
Alþjóðasambands verkalýðsfélaganna
\t1
Gerum daginn i dag að einingar- ng bardttudegi fyrt1 ttSsrnunum og sjálfstccði voru. (Myndin er frá 1. maí ’52)
VINNAN og verkalýðurinn
þarf að verða ódeilanleg sameign hins ó-
sigrandi f jölda.
Alþjóðasambandið sendir verkalýð auð-
valdslandanna, nýlendnanna og hálfný-
lendnanna, sem með hetjubaráttu sinni
gegn afturhaldinu leggja fram ómetanleg-
an skerf í baráttunni fyrir friði og lýð-
ræði, bróðurkveðjur.
Við sendum bróðurkveðjur bræðrum okkar og systrum í Ráðstjórn-
arríkjunum, kínverska alþýðulýðveldinu og öllum alþýðulýðveldum,
sem leggja fram stærsta skerfinn til viðhalds friði og bræðralagi milli
þjóðanna, og sem með fordæmi
sínu gefa verkalýð auðvalds-
heimsins trúna á sigur hans yfir
arðræningjunum.
Vinnandi menn og konur:
Látum okkur í dag styrkja
og staðfesta eininguna í röðum
okkar, ýtum ágreiningnum til
hliðar og afhjúpum vægðarlaust
alla þá er gera tilraunir til að
hindra einingu okkar. Samstill-
um baráttu okkar í verkalýðs-
félögunum og á vinnustöðvun-
um.
Til baráttu gegn arðræn-
ingjunum og klofningsöflun-
um í verkalýðshreyfingunni.
Styrkjum samhug og vin-
áttu verkalýðsins um allan
heim.
Berjumst sameiginlega fyrir frelsun fangelsaðra stéttarsystkina
okkar úr klóm afturhaldsins.
Lifi baráttan fyrir friði.
Lifi barátta verkalýðsins fyrir frelsi, þjóðlegu sjálfstæði og fegurri
framtíð.
Lengi lifi Alþjóðasamband verkalýðsfélaganna, hin stríðandi sam-
tök verkalýðs allra landa.
VINNAN og verkalýðurinn