Vinnan og verkalýðurinn - 15.04.1953, Síða 47
HEIMSðKN í STALÍNVERKSMIÐIURNAR
Framhald af bls.
hafa á að skoða stjörnur og plánetur himingeimsins. Þá má ekki gleyma dans-
salnum, þar sem geta sitið og dansað 2000 pör í einu og er þó rúmt.
I þessari miklu menningarhöll er einnig sérstök deild fyrir börn og unglinga.
Þar er barnabókasafn, umsjónarmaður þess er kennari og ráðgefandi um hvað
börnin lesa. Náttúrugripasafn barna,.þar eru búr með margskonar smádýrum
og fuglum, glerkassar með ótal tegundum smáfiska, og auk þess er mikið safn
dýramynda, jurta og blóma.
Bíladeild er þar með nýja bílmótora og þverskurði af bílmótor, einnig flestir
aðrir hlutir úr bílum, nýir, og svo gamlir og slitnir til samanburðar.
Þetta er sannkallaður æfintýraheimur margra barna, sem ætla að gera
bílasmíði að ævistarfi sínu. Öll barnadeildin er eins fjölbreytt að öllum útbún-
aði bæði hvað húsnæði og tæki snertir, eins og hjá fullorðna fólkinu, en allt
sniðið eftir þroska barna og unglinga.
Verksmiðjurnar starfrækja sitt eigið ungherjaheimili 40 km. frá Moskvu og
eru þar að jafnaði nokkur þúsund börn.
Yfir 2000 manns taka þátt í ýmsum menningaræfingum og leggur þetta fólk
til menningahluta þeirra skemmtikrafta sem notaðir eru á öllum samkomum,
sem haldnar eru í verksmiðjuhverfinu.
Á leið okkar um verksmiðjuna sáum við hvarvetna ágæt vinnuskilyrði
fólksins, sérstaklega heillaði okkur hin fullkomnu skilyrði til hverskonar
félagslegrar og menningarlegrar starfsemi, sem þetta fólk hafði við að búa.
Hvenær fær íslenzkur verkalýður skilyrði til slíkrar menningarsatrfsemi
bæði til anda og handa, Drottinn minn?
VINNAN og verkalýðurinn
45