Gerpir - 01.07.1947, Side 16
þar helztu sundaðferðir. Eftir það hóf-
ust þar sundnámsskeið, fyrst fyrir nem-
endur barnaskólans en síðar fyrir al-
menning. Sundkennari var þar fyrstu
vikurnar Óiafur Ólafsson, leikfimis-
kennari, á Seyðisfirði. Aðgangseyrir að
sundlauginni er kr. 2,00 fyrir fullorðna
og kr. 1,00 fyrir börn.
Aðsókn var mikil og voru sundgestir
ca. 1750 fyrstu 2 vikurnar og eftir hálfan
annan mánuð var tala þeirra orðin átt-
föld íbúatala bæjarins, en íbúar eru
þar 600.
Með sundhöll þessari hafa Fáskrúðs-
íirðingar eignast mikið og myndarlegt
menningartæki.
Framkvœmdir í Neskaupstafi
Lengst til mnstri á þessari mynd er vélaverkstæði Dráttarbrautarinnar h.f., á NorSfirði,
en lengst til hœgri er barnaskólinn.
Miklar verklegar framkvæmdir eru nú
á döfinni í Neskaupstað, eftir því sem
gerist hér á Austurlandi. Þar var í fyrra
sumar lokið smíði á nýrri bæjarbryggju,
ennfremur var þar gerð dráttarbraut
sem getur tekið upp allt að 200 smálesta
skip. Þá er nú verið að reisa þar 800
hestafla olíuraforkustöð, sem bærinn að
sjálfsögðu rekur og tvö fiskiðjuver. Er
annað þeirra og hið meira reist af Sam-
vinnufélagi útgerðarmanna en hitt af
Ishúsfélagi Norðfirðinga. Þá hefir Drátt-
arbrautin h.f. þar á staðnum tekið að sér
að smíða þrjá 35 smálesta báta fyrir rík-
isstjórnina, og er smíði eins þeirra lokið.
Þá eru í Neskaupstað fullsmíðaðar níu
íbúðir verkamanna. Eru það þrjú hús og
þrjár íbúðir í hverju, og auk þessa eru
14