Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 22

Gerpir - 01.07.1947, Blaðsíða 22
um þeim, sem samninga hafa við ríkis- verksmiðjurnar, tilhneigingu til að gera. Hér hefir því aflazt verðmæt reynsla í nokkrum atriðum, sem óvíst er að feng- izt hefði nema af því, að um útlend skip var að ræða, sem urðu að sætta sig við aðra, og að því er álitið var af flestum, lakari aðstöðu til löndunar en hin ís- lenzku skip voru aðnjótandi. Með tilliti til nauðsynarinnar á því, að afla frekari reynslu í þessum efnum hefði verið æskilegt, að leyfa nokkrum færeyskum skipum að halda áfram veiðum við svip- uð skilyrði nokkur ár enn, og mun reyn- ast örðugt að leiða haldgóð rök að því, að tjón gæti af því hlotizt fyrir íslenzk- an sjávarútveg. En stjórnarvöldin í Reykjavík voru á annari skoðun og skal það nú rakið nokkuð. Þegar íslendingar slitu sambandinu við Dani og stofnuðu lýðveldi árið 1944, féllu réttindi færeyskra sjómanna til fiskveiða í lándhelgi hér við land niður lagalega, en voru þó framlengd ár frá ári með ýmislegum undanþágum. Vegna þessara undanþága hefir síldveiði fær- eyskra sjómanna, sem lýst hefir verið hér á undan, getað haldið áfram undan- farin ár, síðan sambandsslitin urðu. En nú sl. vor gerði ríkisstjórnin í Reykja- vík sér lítið fyrir og synjaði svo að segja fyrirvaralaust um leyfi handa hinum á- minnstu færeysku skipum til, að stunda síldveiðar með sama hætti og viðgeng- izt hafði undanfarin ár, og leggja upp aflann á Seyðisfirði. Þessi stjórnarráð- stöfun hefir nú valdið nokkrum fyrir- tækjum hér austanlands allmiklu fjár- og atvinnutjóni. Hér er um að ræða síld- arverksmiðjuna á Seyðisfirði og útgerð- arfyrirtækin Þórð Einarsson h.f., Seyð- isfirði og Eirík Bjarnason Eskifirði, en þessír útgerðarmenn hafa haft flest þessara skipa á leigu og lagt þeim til nætur og báta. Þess er að geta um Eirík Bjarnason að þau færeysk skip, sem hann hefir gert út, hafa jafnan lagt upp síldina til vinnslu í verksmiðju við Húna- flóa. Einn útgerðarmaður í Vestmanna- eyjum hefir og haft færeysk skip á leigu til síldveiða hér við land undanfar- in ár. Þessi útgerðarfyrirtæki og stjórn- endur þeirra verksmiðja sem unn- ið hafa úr síldinni, töldu sig hafa gilda ástæðu til að ætla, að undan- þága yrði veitt fyrir hin færeysku skip a. m. k. í sumar, og undir- bjuggu sig því til veiðanna eins og áður, og munu hafa varið til þessa undirbún- ings tugum þúsunda króna, til viðgerðar á nótum og bátum. Síldarverksmiðjan á Seyðisfirði bjó sig einnig undir það að taka við síldinni til vinnslu eins og und- anfarin ár. Meðal annars voru löndunar- áhöld verksmiðjunnar stórlega endur- bætt og sett upp olíukynding við eimket- ilinn, og var varið til þessara endurbóta mörgum tugum þúsunda króna. Þegar svo leitað er eftir endanlegu svari stjórn- arvaldanna í Reykjavík um það, hvort undanþága verði veitt eða ekki, þæfa þau málið nokkrar vikur og gefa loks neikvætt svar. Útgerðarfyrirtæki þau sem nefnd voru munu hafa reynt að selja nætur sínar og báta á síðustu stundu, en það mun að vonum hafa geng- ið treglega, því flest skip, sem á annað borð ætluðu á veiðar höfðu þá tryggt sér veiðarfæri. Sem sárabætur til verk- smiðjunnar á Seyðisfirði eiga svo ríkis- verksmiðjurnar, eftir boði ríkisstjórnar- innar, að tryggja henni síld til vinnslu, með því að skylda þau skip veiðiflotans, sem geta tekið upp báta, að sigla með einn farm til Seyðisfjarðar ef síldin veið- / 20

x

Gerpir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerpir
https://timarit.is/publication/1970

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.