Stjörnur - 01.05.1950, Síða 6

Stjörnur - 01.05.1950, Síða 6
Faye Emerson skilur við Elliot Roosevelt Samkomulagið milli þeirra Faye Emerson og Elliot Roosevelt hefur ekki verið sem bezt þeirra þriggja ára löngu hjúskapartíð. Hvað eftir annað hefur komið til orða að þau skildu, en alltaf hafa þau sæzt aftur. I eitt skipti lýsti Faye því yfir, að hún hefði fyrir fullt og allt yf- irgefið kvikmyndirnar og ætlaði að gefa sig alla að því að uppfylla skyldur húsmóður og eiginkon- unnar. En nokkrum mánuðum síðar skar hún í sundur slagæð annarar handar og ætlaði að láta sér blæða út í baðkeri hússins. Það var eftir meiriháttar rimmu milli þeirra hjóna. En Elliot bjarg- aði henni úr baðkerinu á síðustu stundu, og þau sættust enn full- um sáttum. Nú hefur skilnaður þeirra einu sinni enn komið á dagskrá. — Okkur er báðum Ijóst, segir Faye, að við eigum ekki saman. Þetta er í annað sinn, sem hin fagra Fay Emerson bíður hjóna- bandsskipsbrot. Nú getur hún vonandi um sinn snúið sér aftur að kvikmyndalífinu. g 9TJÖRNUK * * Það er dýrt spaug fyrir kvik- myndafélögin ef einhver leikar- anna er illa fyrirkallaður og verð- ur að hætta leik í miðju kafi. Ef einhver stjarnan fær höfuðverk svo illan að hlé verði að gera í kvikmyndatökunni í klukkustund á meðan hún er að jafna sig, verða hundruð manna að bíða iðjulaus. Heíur það verið reiknað út, að klukkustundarhöfuðverkur í Hollywood kosti að meðaltali 7500.00 krónur. ' * Það er sagt um Skota að þeir séu nískir og sparsamir, en þótt varasamt sé að leggja trúnað á allar Skotasögur, er eitt víst, að þeim er illa við að Englendingum sé eignað allt sem brezkt er. Þegar David Niven er kallaður Englend- ingur gerir hann athugasemd: Eg er Skoti, segir hann. '' Merle Oberon, sem áður var gift enska kvikmyndaframleið- andanum Alexander Korda, en skildi við hann 1945 til þess að geta gifzt kvikmyndaljósmyndar-

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.