Stjörnur - 01.05.1950, Page 54

Stjörnur - 01.05.1950, Page 54
gifst í Alexandríu, strokið frá þeirri konu til Bandaríkjanna og gifst þar þriðju konunni, að síð- ustu hafði hann svo einnig yfir- gefið hana til þess að geta gengið að eiga að nýju eiginkonu sína númer eitt. Mál þetta vakti mikla athygli og þótti trakíkómiskt. Dómstól- arnir úrskurðuðu að Jörgensen hefði gerst sekur um fjölkvæni, og væri því önnur og fjórða hjónavígslan ógild. Þegar hann gekk að eiga Alexandríukon- una var hann giftur í Noregi, og var því sú gifting marklaus, en hinsvegar var kona hans búin að fá sér dæmdan skilnað er hann giftist í U.S.A., þótt Jörgensen vissi ekki um það. Þessvegna varð það hjónaband að teljast gilt, en hið endurnýjaða hjónaband hans og fyrstu konunnar ekki. En þegar hér var komið sögu hafði Ameríkukonan fengið vitn- eskju um hvernig málum var háttað, vildi hún þá ekkert af manninum vita framar og fékk sér dæmdan skilnað. Fyrsta kon- an var hinsvegar reiðubúin til að fyrirgefa bónda sínum og getur því slceð að hún giftist honum í þriðja sinn — ef hún þá ekki lætur tvær fyrri hjónavígslurnar duga. En það er af norsku dómstólun- um að segja að þeir dæmdu Hans Jörgensen til fangelsisvist- ar — en höfðu dóminn skilorðs- bundinn. Hann þarf því ekki að taka út hegningu nema hann haldi uppteknum hætti og haldi áfram að yfirgefa konur og gift- ast nýjum. ★ Hinn kunni norski skíðakappi, Arnold Kongsgaard fór í vetur að fá undarleg bréf úr ýmsum áttum úr Noregi. Voru það sumt eld- heit ástabréf frá ungum stúlkum og héldu sumar þeirra því fram að hann hefði verið í all nánum kunningsskap við þær. En Arn- old, sem er giftur maður, og á börn og er hinn æruverðugasti heimilisfaðir, fannst þetta í meira lagi undarlegt. Hann sýndi lögreglunni bréfin og bað um að rannsókn væri hafin í máhnu. Það kom þá upp úr kafinu að ungur ævintýramaður hafði ferð- ast um landið og farið á kvenna- far uppá vinsældir skíðakappans, enda gengið undir hans nafni. Tókst loks að hafa upp á manni þessum og var hann nýlega dæmdur í sjö mánaða fangelsi. ★ NÝLEGA fór fram í Svíþjóð óvenjuleg athöfn. I fangelsi einu í Dölum eru 50 afbrotamenn. Meðal þeirra var einn sem ný- lega hafði orðið faðir. Nú fór hann þess á leit við fangelsisprest- inn að hann skírði barnið við guðþjónustu innan betrunarhúss- 54 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.