Stjörnur - 01.04.1951, Síða 47
ið úr sjó? lagði einn til. Þeir fylltu
fötu með sjó og helltu yfir sárið.
Sjúklingurinn fölnaði, nísti tönn-
um af angist; en hann hljóðaði
ekki.
Þegar mesti sviðinn var horf-
inn sagði Javel yngri við bróður
sinn:
— Komdu hérna með hnífinn
þinn!
Og bróðirinn fékk honum hníf-
inn.
— Haltu handleggnum á mér
beint upp og taktu vel í!
Og þeir félagar hans gerðu sem
hann bað.
Svo fór hann að gera lækn-
isaðgerð á sjálfum sér. Hægt og
rólega skar hann og skar, þangað
til síðustu sinarnar voru sundur.
Hnífurinn var hárbeittur eins og
rakhnífur. Og brátt var dauði
handleggurinn orðinn viðskila við
lifandi stúfinn. Javel yngri varp
öndinni þunglega og sagði:
— Æ, ég get ekki afborið þetta
lengur!
Svo létti honum dálítið og hann
fór að hella vatni á stúfinn. O-
veðrið hélt áfram alla næstu nótt.
Þegar dagaði tók Javel yngri
handlegginn sinn og horfði gaum-
gæfilega á hann. Rotnunin var
horfin. Félagarnir komu líka og
skoðuðu. Handleggurinn gekk
mann frá manni, þeir þukluðu á
honum, sneru honum og þefuðu
af honum.
Bróðir hans sagði: — Það er
bezt af fleygja honum fyrir borð
undir eins!
En þá reiddist Javel yngri og
svaraði,. — Onei, ég held nú síð-
ur! Ég á handlegginn! Og svo tók
hann hann og lagði á kné sér.
— Hann rotnar, sagði eldri
bróðirinn.
En þá datt Javel yngra ráð í
hug. Þeir höfðu með sér tunnur
á bátnum, til þess að salta fisk í.
— Ég gæti lagt hann í salt!
— Það væri heillaráð, sögðu
allir hinir.
Svo tæmdu þeir tunnu, sem
þeir höfðu saltað fisk í, og neðst í
tunnuna lögðu þeir handlegginn,
stráðu miklu af salti á hann og svo
lögðu þeir fiskinn í lög ofan á.
— Bara að við seljum hann nú
ekki í ógáti með fiskinum! Og þá
hlógu allir nema Javels-bræður.
Stormurinn hélst enn. Þeir
sigldu beitivind érm og sáu Bou-
logne og héldu svona áfram þang-
að til klukkan tíu morguninn eft-
ir.
Sjúklingurinn hélt í sífellu á-
fram að hella vatni á sárið. Við
og við stóð hann upp og gekk enda
á milli í bátnum. Bróðir hans, sem
stóð við stýrið, horfði á hann og
hristi höfuðið.
Og loks komust þeir í höfn.
Læknirinn skoðaði sárið og kvað
það hafast vel við Hann batt vel
um það og skipaði sjúklingnum
###
47