Golf á Íslandi - 01.08.2015, Side 82
Ertu með ofnæmi?
Lóritín®
– Kröftugt ofnæmislyf án lyfseðils
Þekkir þú helstu einkenni ofnæmiskvefs?
· Kláði í augum og nefi
· Síendurteknir hnerrar
· Nefrennsli/stíflað nef
· Rauð, fljótandi augu
Einkennin geta líkst venjulegu kvefi og margir þjást af „kvefi” á hverju
sumri áður en þeir átta sig á að um ofnæmiskvef er að ræða.
Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi
ofsakláða af óþekktum toga.
Notkun: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadín 10 mg og er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af
óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: 1 taa á dag. Börn 2-12 ára: Með líkamsþyngd meiri en 30 kg: 1 taa (10 mg) á
dag. Börn með líkamsþyngd undir 30 kg: 1/2 taa (5 mg) á dag. Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töuna má taka hvenær sem er, án
tillits til matmálstíma. Hea ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir
virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar ef Lóritín er geð sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyð
inniheldur mjólkursykur (laktósa). Sjúklingar með galaktósaóþol, laktasaskort eða vanfrásog glúkósa-galaktósa, sem eru mjög sjaldgær
arfgengir kvillar, skulu ekki nota lyð. Hjá sumum sjúklingum getur komið fram munnþurrkur. Við langtímameðferð er því góð tannhirða
nauðsynleg þar sem munnþurrkur getur aukið líkur á tannskemmdum. Hætta á gjöf á Lóritín a.m.k. 48 klst. fyrir framkvæmd húðprófa þar sem
andhistamín geta komið í veg fyrir eða dregið úr annars jákvæðri svörun við prónu. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki
ráðlögð. Í einstaka tilfellum nnur fólk fyrir syu sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist
almennt vel en algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta. Algengustu
aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lynu.
Markaðsleysha: Actavis hf. Texti síðast endurskoðaður í apríl 2015.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
-
A
ct
av
is
5
12
24
0
Útskriftarhópurinn: Fremri röð frá vinstri: Arnar Snær Hákonarson, Ingvar Jónsson, Hulda
Birna Baldursdóttir, Helgi Dan Steinsson, Davíð Gunnlaugsson. Aftari röð frá vinstri: Snorri Páll
Ólafsson, Hlöðver Guðnason, Haukur Már Ólafsson, Victor Viktorsson, Helgi Anton Eiríksson.
Á þjóðhátíðardag Íslendinga þann 17. júní s.l. útskrifuðust níu nemendur
með PGA-kennararéttindi úr Golfkennaraskóla PGA. Tveir nemendur luku
námi án PAT-réttinda. Útskriftin fór fram í golfskálanum við Urriðavöll og
var athöfnin hátíðleg og margar gildishlaðnar ræður voru fluttar.
Golfkennaraskóli PGA og GSÍ var stofnaður á
vormánuðum 2006. Námið tekur 30 mánuði og
fylgir öllum lágmörkum PGA í Evrópu. Fyrstu
nemendurnir sem útskrifuðust með PGA-réttindi
frá skólanum luku námi vorið 2008.
Davíð Gunnlaugsson fékk verðlaun fyrir besta
námsárangur þeirra sem útskrifuðust þann 17.
júní s.l. og Mosfellingurinn fékk einnig bestu
einkunn í einkakennslu.
„Golfkennaraskólinn var settur á laggirnar árið
2005 og hóf starfsemi sína með fyrsta árgangi
2006. Skólinn var nauðsyn þar sem mjög margir
voru farnir að kenna golf án þess að hafa til þess
réttindi,“ segir Arnar Már Ólafsson skólastjóri.
Fyrsti árgangurinn var tilraun fyrir alla. Það var
engin hefð eða reynsla til staðar og allir að taka
sín fyrstu skref í kennslu við golfkennaraskóla.
Fyrsti nemendahópurinn var því nokkurs
konar tilraunahópur og tók mikinn þátt í því
að móta skólann. Í dag höfum við útskrifað
41 golfkennara og félagar í PGA eru orðnir
70, þar af 54 með fullgild kennsluréttindi.
Í samanburði við önnur lönd er aðgengi okkar
að golfkennurum því mjög gott. Það eru lærðir
golfkennarar um allt land, þó langflestir á höfuð
borgarsvæðinu. Í samanburði við t.d. Svíþjóð og
Þýskaland þar sem einn golfkennari er á hverja
500 meðlimi, erum við með einn á móti 314.
Golfið á Íslandi hefur verið í stöðugri sókn.
Fjölgunin heldur ekki endalaust áfram en það
er ennþá pláss fyrir golfkennara. Stefnan er að
byrja nýjan hóp á næsta ári, en áður en það gerist
verður farið í ítarlega endurskoðun og breytingar
á kennsluskránni og kennsluefni. Þegar það
hefur verið klárað verður byrjað að mennta nýja
golfkennara.
Þegar skólinn var stofnaður var stefnan strax
sú að námið yrði viðurkennt af PGA´s of
Europe. Skólinn var í stöðugri skoðun og
prófun hjá sérfræðingum frá EPGA. Námið
var svo viðurkennt árið 2011 og fór í gegnum
endurskoðun á þessu ári og stóðst þá skoðun.
Skólinn verður skoðaður aftur árið 2019 og þá í
nýju kerfið sem kennslunefnd Evrópu PGA hefur
sett á og tók gildi í ár.“
Útskriftarhópurinn var þannig skipaður:
Arnar Snær
Hákonarson
Davíð Gunnlaugsson
Friðrik Gunnarsson
Haukur Már Ólafsson
Helgi Anton Eiríksson
Helgi Dan Steinsson
Hlöðver Guðnason
Hulda Birna
Baldursdóttir
Ingvar Jónsson
Snorri Páll Ólafsson
Victor Viktorsson
Fremri röð frá vinstri: Úlfar Jónsson
(aðstoðarskólastjóri) Derrick Moore
(kennari), Arnar Snær, Ingvar, Hulda Birna,
Helgi Dan og Davíð. Aftari röð frá vinstri:
Snorri Páll, Hlöðver, Haukur Már, Victor, Helgi
Anton, Arnar Már Ólafsson (skólastjóri),
Magnús Birgisson (kennari) og Ingi Þór
Einarsson (Íþróttafræðingur).
– Davíð með bestan námsárangur
PGA-kennurum fjölgar
82 GOLF.IS - Golf á Íslandi
PGA-kennurum fjölgar - Davíð með bestan námsárangur