Golf á Íslandi - 01.08.2015, Side 22

Golf á Íslandi - 01.08.2015, Side 22
„Holunum fjölgar eins og árunum,“ segir Þórunn Guðmundsdóttir, kylfingur úr GR, sem fagnaði 65 ára afmæli sínu með því að spila 65 holur á Korpúlfsstaðavellinum. „Ég kláraði þetta á 23 tímum og 10 mínútum. Þetta var samt ekki samfellt, ég fór heim og svaf aðeins á milli annars og þriðja hrings,‘‘ segir Þórunn sem hefur áður fagnað afmæli sínu með þessum hætti og þá alltaf á heimavellinum á Korpúlfsstöðum. Í ár lék hún Sjóinn og Ána þrisvar sinnum en ellefu holur á Landinu. „Mér fannst eiginlega erfiðast að taka ákvörðun um að ég ætlaði að reyna þetta einu sinni enn og það kom ekkert annað til greina en spila þetta fótgangandi. Þegar ég sá veðurspána sagði ég við sjálfa mig: „Þú ert aumingi Þórunn ef þú þorir ekki út í hvaða sumarveður sem er!“ og ákvað að fara af stað út í þetta. Ég fann strax þegar ég var kominn vel af stað á öðrum hring að ég réð vel við þetta og þá varð þetta mjög gaman,“ segir afmælisbarnið. Meðal þeirra sem léku afmælishringina með Þórunni voru sonur hennar, bróðir og mágkona. „Oftast var eitthvert þeirra með mér og það er ekki lítil hvatning að spila með eðalspilurum og skemmtilegu fólki.“ Hver hringur er ótrúleg áskorun Þórunn hefur ekki stundað golf nema í sjö ár en er heltekin af íþróttinni og vill spila fjóra hringi hið minnsta í viku. Hún er fædd og uppalin á Skipaskaga en hefur búið í Reykjavík síðan 1968. „Fyrir sjö árum hafði ég loksins nógan tíma til að fara að stunda golf af fullum krafti og þá féll ég svo gjörsamlega fyrir íþróttinni að nú snýst tíminn, frá því snemma á vorin fram á harða haust, um að komast út á völl,” segir Þórunn. „Maðurinn minn leiðbeindi mér í upphafi og hann var góður í því hlutverki. Ég fór líka á nokkur námskeið og greip í kylfu nokkrum sinnum á sumri en hafði aldrei tíma til að stunda þetta. Núna þegar ég hef tíma finnst mér þetta skemmtilegasta útivist sem til er og hver hringur ótrúleg áskorun,“ segir Þórunn. “Það sem er svo heillandi við golfið er að árangurinn er undir mér sjálfri kominn, ekki samspilurunum og ekki veðrinu en það geta þó komið dagar sem veðrið verður þátttakandi í leiknum.“ „Gott hjá þér, Þórunn!“ Þórunn segist eiga það til að tala við sjálfa sig úti á velli, sérstaklega þegar hún spilar ein síns liðs. „Ég ávarpa sjálfa mig: „Þú getur betur en þetta, Þórunn!“ og svo hrósa ég mér líka. „Gott hjá þér, Þórunn!“. Ég vona bara að enginn heyri í mér en ég spila stundum ein og þá er þetta allt í lagi,“ segir Þórunn hlæjandi. Þórunn er með 27,7 í forgjöf og er síður en svo sátt við það. “Nei, nei, það er mjög Fagnaði 65 ára afmælinu með 65 holum Þótt Þórunn Guðmundsdóttir hafi aðeins leikið golf í sjö ár er hún heltekin af íþróttinni. Hún fagnaði 65 ára afmælinu sínu með 23 tíma golfiðkun. Það sem heillar hana við íþróttina, fyrir utan útiveru í misjöfnu veðri, er að þurfa sífellt að aga sjálfa sig og geta ekki kennt neinum öðrum um þegar illa gengur á hringnum. Hún á það til að tala við sjálfa sig úti á velli – hvetja sjálfa sig áfram, minna sig á að hún geti betur og hæla sjálfri sér þegar vel gengur Snýst allt um golf: Þórunn kynntist golfíþróttinni fyrir sjö árum. OMEGA 3 LIÐAMÍN HYAL-JOINT® Kipptu liðunum í lag með Omega 3 liðamíni Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Liðamín inniheldur Hyal-Joint sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum. Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt. SKJÓTARI EN SKUGGINN www.lidamin.is J A N Ú A R 22 GOLF.IS - Golf á Íslandi Fagnaði 65 ára afmælinu með 65 holum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.