Golf á Íslandi - 01.10.2016, Blaðsíða 44
Það er algengt að heyra í í kylfingum sem eru í skýjunum með nýju járnin
sín. Ekki vegna þess að þeir spila betur með þeim, heldur vegna þess að
þeir slá svo langt með þeim. Þeir slá allt að heilli kylfu lengra en með gamla
settinu sínu og halda að það galdri fram betra skor. Spurningin er: Af hverju
slá kylfingar oft lengra með nýjum járnum og þarf það að vera gott?
„Hverfandi fláa veikin“
Síðustu 20-30 árin hefur fláinn á járnum
minnkað og sköftin hafa orðið lengri. Fyrir
fáum árum var 2-járn 20°, 5-járn 32° og
9-járn 48°. Í dag er algengt að það sé ekkert
2-járn, 3-járnið er 19°-20°, 5-járnið 26°
og 9-járnið 42° eða jafnvel minna. Sumir
framleiðendur hafa gengið svo langt að
hafa 4-járn 19° og PW 43°, sem hefði verið
2-járn og 8-járn fyrir um 30 árum. Fram
leiðendur hafa líka lengt sköftin á járnum
sínum samhliða því að minnka fláann. Sem
sagt, það sem var 8-járn fyrir nokkrum árum
er 9-járn í dag. Sama kylfan, sami flái og
lengd, en í stað þess að það standi 8 á botni
kylfunnar þá stendur talan 9.
Meiri högglengd selur
Þegar kylfingar prófa nýtt járnasett, þá er
„demo“ kylfan oftast 6-járn. Ef högglengdin
er meiri en með gamla 6-járninu eru miklar
líkur á að kylfingar vilji kaupa allt settið.
Eftir að eitt fyrirtæki byrjaði að minnka
fláann til að plata kylfing til að halda að
hann slái lengra, þá hafa öll önnur fylgt á
eftir til að tapa ekki sölu af því högg með
þeirra 6-járni fer „styttra“. En auðvitað
slær kylfingurinn ekkert lengra, hann slær
einfaldlega með annarri kylfu. Hann gæti
gert það sama með því að líma „8“ undir
gamla 7-járnið sitt. Egóið er bætt en skorið
ekki.
Það er hægt að auka högglengd
með því að hækka endurkastsstuðul
(„COR“) með þunnum höggfleti, sem
sumir framleiðendur eru farnir að gera.
Það er dýrara en að einfaldlega minnka
fláann og markaðsetja þá brellu vel. Aukin
högglengd með miðlungs og stuttum járnum
er ekki vegna þess að það er búið að breyta
massamiðju eða út af nýjum sköftum. Hún
er fyrst og fremst vegna þess að fláinn er
minni.
Hverjir eru ókostirnir við
þessa þróun?
Óstöðugt bil í lengd milli kylfa. Í
járnasettum í dag er bilið í fláa á milli löngu
járnanna mikið minna en á milli stuttu
járnanna. Það er vegna þess að það er ekki
hægt að minnka fláann jafn mikið á löngu
járnunum eins og þeim stuttu, því þá myndi
enginn ná höggum með löngu járnunum
á loft. Sem sagt, bilið á milli 3-járns og
PW er orðið miklu minna. Framleiðendur
vilja augljóslega ekki selja færri kylfur og
ekki láta kylfinga slá „styttra“ með demo
kylfunum. Eina leiðin er því að hafa minna
bil í fláa á milli löngu járnanna en mun
meira á milli stuttu járnanna. Áður fyrr
var stöðugt 4° bil milli allra járna. Í dag
eru gjarnan 3° eða jafnvel 2° á milli löngu
járnanna og svo 5° til 6° á milli stuttu
járnanna. Vegna þess hve erfitt er að slá
með löngum járnum og ná boltanum á loft
ætti í raun að vera 5° á milli þeirra fyrir
flesta kylfinga. Augljóslega verður þetta
til þess að það verða óstöðug bil á milli
kylfa.
Bilið er orðið svo mikið á milli PW
og SW út af þessari sölumennsku að það var
fundin upp ný kylfa sem kallast milli-wedge
eða gap-wedge. Framleiðendur gátu ekki
minnkað fláann á sand-wedginum, því þá
myndi enginn ná boltanum upp úr glompu.
Bilið á milli PW og SW er því orðið um 10°
eða jafnvel 13° hjá sumum framleiðendum
sem eru farnir að hafa PW 43°.
Slærðu lengra
með nýjum
járnum?
– Birgir V. Björnsson
golfkylfusérfræðingur skrifar
Birgir V. Björnsson er einn helsti
sérfræðingur landsins hvað val á
golfkylfum varðar. Mynd/seth@golf.is
44 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Slærðu lengra með nýjum járnum?