Golf á Íslandi - 01.10.2016, Side 78
Íslandsmótinu á Akureyri í sumar. Þess má
geta að Hlynur Geir á enn eftir að upplifa
það sjálfur að slá draumahöggið.
Hverjar eru líkurnar?
Samkvæmt tölfræði hins virta bandaríska
golftímaritsins Golf Digest eru líkurnar á
því að meðalkylfingur fari holu í höggi á
par 3 holu einn á móti 13.000. Líkurnar
á því að fara holu í höggi á par 4 holu eru
samkvæmt Golf Digest einn á móti milljón.
Magnús ekki sá fyrsti
Magnús Lárusson er ekki fyrsti íslenski
kylfingurinn sem fer holu í höggi á par 4
braut á Íslandi. Ólafur Skúlason, sem var
þá 18 ára gamall kylfingur, fór tvívegis holu
í höggi á sama hring á Grafarholtsvelli í
júní 1969. Ólafur lék 6. holuna sem er 160
m (par 3) á einu höggi og enn fremur 10.
holuna en hún var á þeim tíma 300 m að
lengd (par 4). Ólafur var við æfingu þegar
þetta gerist en nægilegur fjöldi manna var
með honum til að sanna þennan óvenjulega
árangur, sem ekki hefur átt sér stað hér á
landi áður.
Haraldur Már Stefánsson úr Golfklúbbi
Borgarness fór holu í höggi á gömlu 4.
brautinni á Hamarsvelli á níunda áratug
síðustu aldar en brautin var á þeim tíma
par 4.
Ásta Birna Magnúsdóttir úr GK fór holu
í höggi á 3. braut Hvaleyrarvallar, sem er
par 4, árið 2007. Ragnhildur Sigurðardóttir
úr GR fór holu í höggi árið 2006 á 6. braut
Garðavallar á Akranesi, brautin er um 215
m löng af þeim teigum sem Ragnhildur lék
á þeim degi. Ragnar Þór Gunnarsson úr GL
hefur einnig farið holu í höggi á 6. braut
á Garðavelli. Helgi Dan Steinsson úr GG
hefur einnig farið holu í höggi á par 4 braut
á Garðavelli en það gerði hann á 10. braut í
júlí árið 2007. Kolbrún Sól Ingólfsdóttir fór
holu í höggi á 8. braut í Vestmannaeyjum
og Haukur Már Ólafsson á gömlu 7.
brautinni á Víkurvelli í Stykkishólmi.
Hólmar Ómarsson Waage á 4. braut
Húsatóftavelli, Atli Már Grétarsson á 14.
braut á Húsatóftavelli, Haukur Óskarsson
á 8. braut á Nesvellinum, Guttormur
Kristmannsson á 8. braut á Ekkjufellsvelli
og Rafn Rafnsson GMS á 7. braut á
Víkurvelli í Stykkishólmi.
Rússneski landsliðskylfingurinn Evgeny
Volkov fór holu í höggi á 12. holu
Hvaleyrarvallar árið 2012. Volkov var að
spila æfingahring fyrir European Challenge
Trophy mótinu og setti niður teighögg sitt
á 12. holu sem er um 330 metrar af hvítum
teigum. Hann er fyrsti kylfingurinn í sögu
Hvaleyrarvallar til að leika holuna á einu
höggi.
Ragnar Einarsson er yngsti íslenski
kylfingurinn sem hefur farið holu í höggi.
Hann var sex ára árið 1994 þegar hann
fór holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er
sá elsti sem hefur afrekað að fara holu í
höggi af íslenskum kylfingum. Hann var
98 ára gamall árið 1985 þegar hann sló
draumahöggið.
Hlynur Geir fagnar hér með
Magnúsi, Jóhann Pétur
Guðjónsson hjá GB ferðum
er lengst til vinstri og er
kampakátur. Mynd/seth@golf.is
Ósvíkin gleði hjá Magnúsi,
Jóhanni Pétri Guðjónssyni
og Liam Robinson.
Mynd/seth@golf.is
Einstakt. Magnús tekur hér boltann upp
úr holunni eftir 300 metra upphafshögg en
sjá má teiginn á 1. í baksýn hægra meginn
við klúbbhúsið. Mynd/seth@golf.is
Það var ekkert annað að gera en að
kyssa boltann sem fær án efa gott pláss
í stofunni hjá Magnúsi Lárussyni.
Mynd/seth@golf.is
Magnús fagnar hér með Haraldi
Franklí Magnús úr GR og Arnór Snær
Guðmundsson frá Dalvík er mættur til að
óska Magnúsi til hamingju. Mynd/seth@golf.is
Haraldur Franklín stendur hér
við 1. flötina og horfir á eftir
boltanum fara ofaní holuna.
79GOLF.IS