Golf á Íslandi - 01.10.2016, Page 79
1. Leiktu ávallt á þeim hraða líkt og
þú hafir aðeins þrjá tíma til þess að
klára hringinn áður en það verður
dimmt - óháð því á hvaða tíma dags
þú ert úti á velli.
2. Taktu hlífina af þeirri kylfu sem þú
notar oftast, t.d. drævernum, og
settu hana í golfpokann. Það fer
ótrúlega mikill tími í að taka hlífina af
og setja hana aftur á kylfuna.
3. Leiktu á teigum sem eru framar en
þú ert vanur/vön að leika á, það er
mjög skemmtileg tilbreyting og gerir
leikinn enn skemmtilegri.
4. Líttu oft á klukkuna og fylgstu vel
með tímanum. Það skiptir máli að
vita hvort þú hafir dregist aftur úr og
þá þarftu að bæta það upp á næstu
holum.
5. Sá sem er tilbúinn slær næsta högg.
Það tekur of langan tíma að bíða eftir
þeim sem er lengst frá holu. Sá sem
er tilbúinn lætur bara vita af því og
slær boltann á meðan hinir undirbúa
sig fyrir höggið.
6. Ef einhver er hægur í ráshópnum,
ekki fara á hans hraða, haltu þínu
striki og reyndu að fá þann hæga til
þess að aðlaga sig að meiri hraða.
7. Merktu bara boltann þegar hann
er nálægt holunni. Ef aðpúttið fer
nálægt holunni reyndu þá að klára
í stað þess að merkja boltann ef þú
getur.
8. Sá sem kemur fyrstur að teig á par 3
holu ætti að gefa öðrum upplýsingar
um lengd að flaggi ef hann er með
slíkan útbúnað. Það er óþarfi að allir
séu að mæla sömu vegalengdina.
9. Vertu búinn að undirbúa höggið
eins mikið og hægt er á meðan þú
gengur að boltanum. Það er hægt að
sjá hvaðan vindurinn blæs, stefnu og
hvernig högg er best að slá á þeim
tíma. Það styttir undirbúninginn
þegar að boltanum er komið.
10. Reyndu að forðast það að stika
vegalengdir, það er ótrúlegt hversu
nákvæmur heilinn er í því að
meta vegalengdir. Æfingin skapar
meistarann á þessu sviði.
11. Á meðan þú ert að bíða eftir því
að aðrir slái, taktu þá eins margar
æfingasveiflur og þú vilt. Þegar
röðin kemur að þér þarftu bara eina
æfingasveiflu áður en þú slærð
höggið.
12. Þegar þú kemur að flötinni skaltu
setja golfútbúnaðinn á þann stað
þar sem þú gengur út af flötinni á
næsta teig. Það sparar mikinn tíma
að þurfa ekki að ganga til baka og ná
í golfútbúnaðinn á „röngum“ stað við
flötina.
13. Sláðu höggið þitt áður en þú ferð
að aðstoða aðra í ráshópnum við
að leita týndum bolta. Það gerist
ótrúlega oft að boltinn finnst á
meðan þú ert að slá höggið.
14. Ef tveir leikmenn eru í sömu
glompunni á svipuðum stað ætti sá
sem slær fyrstur að ganga beint að
sínum bolta og hefja undirbúning
fyrir púttið. Sá sem slær á eftir úr
glompunni rakar þá glompuna fyrir
báða aðila. Sá sem sló fyrstur er þá
klár í að pútta.
15. Í vissum tilvikum er allt í lagi að
hafa flaggið í holunni þegar maður
púttar. Þetta á við þegar maður er
að leika sér í golfi. Það er hægt að
spara mikinn tíma með þessu en
að sjálfsögðu er þetta ekki leyfilegt
í golfmótum og þegar leikið er til
forgjafar.
16. Geymdu golfsögurnar sem þú heldur
að allir vilji heyra þangað til komið
er inn í golfskálann eftir hringinn.
Það þorir enginn að slá eða undirbúa
höggið á meðan þú ert í miðri sögu.
Geymdu það besta þar til hringurinn
er búinn.
17. Í flestum tilvikum hefur þú leikið
völlinn áður og það ætti fátt að
koma þér á óvart t.d. í kylfuvali á
teig. Það sparar tíma að vera klár
með þá kylfu sem hentar t.d. í næsta
teighögg.
Tengi ehf
Smiðjuvegur 76
200 Kópavogur
Sími 414 1000
tengi@tengi.is
www.tengi.is
– góð ráð til
kylfinga
Bættu
leikhraðann
80 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Bættu leikhraðann