Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Qupperneq 6

Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Qupperneq 6
Er efnisliyg'g'jan lirelt? Eftir LEIF HILLESUND (aukakennara við háskóla) að er alkunna, að andahyggjumenn telja hinn sanna raunveruleika andlegs eðlis. Hin hreina efnishyggja heldur því fram, að efnisheimur eða tóm sé hið eina, sem til sé. Efnishyggjan hafnar tilvist Guðs og álítur, að hugsanaferill og önnur sálræn starfsemi séu ekk- ert annað en eðlisfræðilegur, efnafræðilegur eða líffræðilegur þróunargangur í heilanum. Um aldamótin síðustu var því trúað, að nátt- úruvísindin hefðu svo að segja sannað réttmæti efnishyggjunnar. Eins og flestum er kunnugt, hefur þessari sönnun eða tilraun verið hnekkt, og getur það verið oss gleðiefni. Jafnvel þótt hin hreina efnishyggja eigi eftir sem áður miklu fylgi að fagna, hafa andlegar stefnur fengið byr undir báða vængi nú á dög- um. Hafa náttúruvísindin einmitt nokkru þar valdið, enda þótt ýmsar aðrar ástæður eigi sinn þátt í því. Þessar stefnur segja berum orðum, að menn hafi í reyndinni sál (vér skulum ekki ræða í þessu samandi afstöðuna milli sálar og anda), og þær gera einnig ráð fyrir, að Guð sé til. Kristn- ir menn gera allt of mikið af því að samþykkja slíkar andlegar stefnur gagnrýnislaust. Kristnum mönnum er í blóð borin rnikil vísindahjátrú, þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum og af öllum huga þínum“. Það er marg-undirstrikað, með hjarta, sálu, mætti og huga. Það er einnig fagurt að hafa mætur á Kristi. Vel sé þeim, sem svo er farið. En mikils er þeim vant, sem hafa ekki eignazt hann að Drottni. „Ég trúi, að Jesús Kristur sé Drottinn minn, sem hefur frelsað mig til þess að ég sé eign hans“. Það er játning lútherskra manna. sem er svo algeng á vorum dögum. Er það mjög svo óttalegt, hve mjög hin „alþýðuskýrðu“ vís- indi ganga í augum á mönnum án þess að sæta hinni mnnstu gagnrýni. Sem dæmi skulum vér stuttlega nefna grein, sem birt var í hverju dagblaðinu á fætur öðru. Ameríski vísindamaðurinn Stowell ætlaði að rannsaka með vísindamælitækjum sínum, hvað gerðist, þegar menn dæju. Hann dvaldist í her- berginu við hliðina á þeim, sem dauðans beið. Er trúuð kona baðst fyrir á banastundinni, fékk Stowell jákvæðan útslátt, en aftur á móti nei- kvæðan útslátt, er í hlut átti guðafneitandi. Nið- urstaða þessarar rannsóknar leiddi í ljós, að kraftur bænarinnar var fimmtíu og fimm sinnum öflugri en tiltekin útvarpsstöð í Bandaríkjunum. Ekki þyrfti nema örlitla sérþekkingu til þess að fletta ofan af þessum blekkingum. Þess má t.d. geta, að við samanburðinn við útvarpsstöðina var ekki tekið tillit til fjarlægðanna til mæli- tækisins, en það hefur ekki hvað sízt úrslita- þýðingu hvað snertir stærð útsláttarins. En lak- ast er þó það, að gert er ráð fyrir, að jákvæður útsláttur rafmagnstækis samsvari beinlínis já- kvæðri trúarafstöðu. En þetta er hinn grófasti misskilningur. Hvað kallað er jákvætt og neikvætt, þegar um er að ræða rafsegulfyrirbrigði, er nefnilega kom- ið undir vali, það er algjörlega undir atvikum komið. Hefði valið verið gagnstætt, hefði eftir þessu að dæma mátt sanna, að bænin hefði áhrif til hins verra. Burtséð frá því, hvernig þessum gefnu mæliniðurstöðum er háttað, segja þær oss alls ekkert um eðli hinnar trúarlegu reynslu eða sannleika guðstrúar. En margt kristinna manna fagnaði þessari grein. Loksins höfðu menn þó fengið staðfest- 2 KRISTILEGT SKOLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.