Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Side 16

Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Side 16
Tómas SigurSsson, 5. bekk Menntaskólans í Rvík. krafti Guðs. „Allt megna ég.fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir“, segir postulinn. Guð gefi okkur náð til að trúa þessu í einlægni og náð til að þiggja þann kraft, sem Drottinn vill gefa. Mín gæði eru það að vera nálægt Guði. Þann- ig hljóðar vitnisburður Davíðs, sem einnig bað bænarinnar í upphafi. — Honum hafði lærzt það, að þær fyrirætlanir, sem Guð hafði í huga með hann, voru fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju. Hann leyfðí Guði að leiða sig hinn eilífa veg. Davíð vissi af eigin raun, hve þessi vegur er vandrataður. Hann þekkti erfiðleikana og ósigr- ana, þegar hann sleppti leiðandi hendi Drottins. Hann þekkti örvæntingu hins volaða og örmagn- aða svndara. Samt gat hann sagt: Mín gæði eru það, að vera nálægt Guði. Hann lærði að grípa í útrétta hönd Guðs og þrýsta sér að honum, því að hann vissi, að Guð er oss hæli og styrkur osr örugg hiálp í nauðum. Þess vegna þekkti hann líka sigrana, sem fást fyrir samfélagið við hann. Og einnig þess vegna gat hann sagt: — ,,Ég elska Drottin, af bví að hann heyrir grátbeiðni mína, — því að hann hefur hneigt eyra sitt að mér. og alla ævi vil ég ákalla hann. — Þegar snörur dauðans umkringja mig og angist Helj- ar mætir mér, þegar ég mæti nauðum og harmi, þá ákalla ég nafn Drottins: Æ, Drottinn, bjarga sál minni! — Náðugur er Drottinn og réttlátur, og vor Guð er miskunnsamur. — Drottinn varð- veitir varnarlausa, þegar ég er máttvana hjálp- ar hann mér. Verð þú aftur róleg sála mín, því að Drottinn giörir vel til þín. — Já, þú hrífur sál mína frá dauða, auga mitt frá gráti, fót rninn frá hrösun.“ Vilt 'þú leyfa Drottni að leiða þig hinn eilífa veg? Vilt þú fela Drottni vegu þína? Vilt þú af- neita sjá'fum bér og beygia þig undir viþa Guðs og bar með öðlast hin æðstu gæði? Vilt þú lifa Guði? Þótt diöflum fyllist veröld víð, — þeim vinnst ei oss að hrella. — Því Tesús vor, oss veikum lýð — er vörn og hjálparhella. Slíkt er hlutskipti þess, sem leyfir Drottni að leiða sig hinn eilífa veg. Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt. Rann- saka mig, og þekktu hugsanir mínar, og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg. Góðí meistari, hvað á ég að gjöra, til þess að ég erfi eilíft líf? (Mark. 10, 17). jKað er ungur maður, sem spyr þessarar spurn- ingar. Hann er efnaður, en auðæfin hafa ekki fært honum frið. Hann hefur haldið boðorðin, en það hefur heldur ekki fært honum frið í lijarta. Þá leitar hann x örvæntingu sinni á fnnd Jesú, og þar fær hann að vita, hvað hann á að gera. „Eins er þér vant; far þú og sel allar eig- ur þínar og gef fátækum, og muirt þú fjársjóð eiga á himni; kom síðan og fylg mér“. Er það ekki einmitt þetta, sem Jesús vill segja við þig? Ef þú finnur, að þú átt ekki frið í hjarta þínu, athugaðu þá, hvort það er ekki eitthvað, sem veldur því, að Jesús fær ekki komizt að. Það getur verið, að það sé of persónulegt, til þess að þú getir talað um það, jafnvel við þinn bezta vin. Og það er ef til vill þess vegna, sem það íþyngir þér. Minnstu þess, að Jesús veit, hvers þér er vant, og það miklu betur en þú. — Hann varð sjálfur að synd okkar vegna, til þess að við öðluðumst réttlæti Guðs í honum. Og þessu megum við trúa og treysta. Svona er náð Guðs óendalega mikil. Hún er langt fyrir ofan skilning okkar. Þetta er fyrirheiti hans, að þú munir eiga fjársióð á himni, ef þú aðeins vilt gefa honum rúm, í hjarta þínu. Hafna ekki fyi'st. Það stendur enn til boða. Hann þreytist ekki á því að knýja á. En hve lengi á hann að bíða? Hann kom til þessarar jai'ðar til þess að létta af okkur syndabyrðinni. Eða kom hann til einskis? Leið hann og þjáðist til eiiaskis? Leyfðu honum að gefa þér trúna á sig, svo að þú öðlist það, sem hver ungur maður þráir: Fullvissu, og frið í hjarta. Það veitir lxann þeim, sem á hann trúa. Leitaðu fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt annað veitast þér að auki. 1% KRISmEGT SKÓPABPA®

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.