Bautasteinn - 01.04.2002, Blaðsíða 7
7
Sumarið 2000 urðu miklar skemmdir á
kirkjugörðum á Suðurlandi þegar tveir
stórir jarðskjálftar riðu yfir. Legsteinar
féllu, stéttir aflöguðust og hlaðnir veggir
hrundu eða skemmdust.
Í kjölfar skjálftanna fór Guðmundur
Rafn Sigurðsson frá skipulagsnefnd
kirkjugarða og skoðaði garða á
Suðurlandi, skráði skemmdir og mynd-
aði, jafnframt því sem tilmælum var beint
til sóknarnefnda og kirkjugarðsstjórna á
viðkomandi stöðum að láta löglega aðila
skrá allar skemmdir. Í framhaldinu var
leitað til Viðlagatryggingar, en þá kom í
ljós að Viðlagatrygging bætir aðeins þá
hluti sem brunatryggðir eru og það eru
kirkjugarðar ekki og tjónið því ekki
bótaskylt af hálfu Viðlagatryggingar.
Flestir garðanna sem urðu fyrir tjóni
eru tekjulágir og höfðu því ekki bolmagn
til að standa undir viðgerðum af eigin
rekstrarfé. Skipulagsnefnd kirkjugarða
samþykkti því að fela framkvæmdastjóra
að hafa frumkvæði og umsjón með
lagfæringum í þeim görðum sem
skemmst höfðu. Kirkjugarðasjóður myndi
greiða kostnaðinn til að byrja með, en svo
yrði leitað eftir aukafjárveitingu Alþingis
til handa Kirkjugarðasjóði til að mæta
þeim aukakostnaði sem sjóðurinn yrði
fyrir vegna þessa.
Lagfæringunum er nú lokið og var
kappkostað að standa vel að verki með
þátttöku fagmanna. Heildarkostnaður við
viðgerðirnar var kr. 6.774.450 sem skiptist
á ellefu garða. Þessi útgjaldaauki sjóðsins
er um 14% af tekjum sjóðsins það árið og
hefur því talsverð áhrif á rekstur hans. Því
miður hefur ekki fengist aukafjárveiting
vegna viðgerðanna og mun það koma sér
illa fyrir hina fjölmörgu kirkjugarða um
allt land sem eru háðir styrkveitingu frá
sjóðnum því taka verður þennan útgjalda-
auka af rekstrarfé 2002.
Garðarnir sem lagfærðir voru eftir jarðskjálft-
ana eru Oddi á Rangárvöllum, Ólafsvellir
á Skeiðum, Hagi í Holtum, Kaldaðarnes í
Flóa, Villingaholt í Flóa, Úthlíð í
Biskupstungum, Miðdalur við Laugar-
vatn, Hraungerði í Flóa, Breiðabólstaður í Fljótshlíð, Skarð í Landssveit og Mosfell í
Grímsnesi.
SKEMMDIR EFTIR
JARÐSKJÁLFTA LAGFÆRÐAR
Skemmdir legsteinar við Odda á Rangárvöllum.
Fré t t i r a f f ramkvæmdum
Frá Haga í Holtum.
MRJ
MRJ