Bautasteinn - 01.04.2002, Page 10

Bautasteinn - 01.04.2002, Page 10
Þegar kristni var lögtekin á Íslandi árið 1000 var allsherjargoði Þormóður, sonur Þorkels mána, og er talið að hann hafi búið á ættaróðali í Reykjavík. Honum, sem æðsta embættismanni þjóðarinnar, bar því fremur skylda til en öðrum að reisa kirkju á bæ sínum eftir kristni- tökuna. Því þykir nokkuð víst að ein af fyrstu kirkjunum sem reistar voru á Ís- landi hafi verið í Reykjavík og gæti hún hafa verið reist sama sumar og kristni var lögtekin. FYRSTA KIRKJAN Í REYKJAVÍK Það að hafa grafreit umhverfis kirkju hafði verið siður frá upphafi, en einu ummerkin um slíkan grafreit í Reykjavík eru syðst í Aðalstræti þar sem talið er að svokallaður Víkurgarður hafi staðið og er það af mörgum talin sönnun þess að þar hafi kirkjan staðið frá öndverðu. Í grein Árna Óla í Morgunblaðinu þann 5. nóvember 1966 er saga garðsins rifjuð upp og þar segir hann m.a. frá því að hann telji að kirkjugarðurinn hafi upphaf- lega verið nær því jafn á alla vegu og kirkjan staðið í miðjum garði. Af heimild- um mætti ætla að Þormóður allsherjar- goði hafi látið grafa upp kuml forfeðra sinna og flutt bein þeirra í hinn nýja kirkjugarð sinn á Austurvelli, en það var ekki óalgengt að hinir fyrstu kirkjueig- endur á Íslandi gerðu slíkt. Ekki er því ólíklegt að bein Hallveigar Fróðadóttur, Þorsteins Ingólfssonar og Þorkels mána 10 VÍKURGARÐUR -minjar í miðri borg Horft frá Víkurgarði að inngangi að sýningarskála undir Aðalstræti. Handan götunnar er fyrirhuguð hótelbygging. Teikning: Teiknistofan Skólavörðustíg 28 sf./Landslag ehf./GM Teikning: Teiknistofan Skólavörðustíg 28 sf./Landslag ehf./GM

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.