Skák - 01.10.2003, Side 3
S K A K
I. r .
Útgefandi:
Skáksamband Islands
Ritst/óri:
Þráinn Guðmundsson
Ritnefnd:
Arnar E. Gunnarsson
Askell Orn Kárason
Bragi Krístjánsson
Páll Þórarinsson
Snorri G. Bergsson
Þráinn Guðmundsson
Umbrot: Aslaug Jósepsdóttir
aslaug@fjoltengi. is
Framkvæmdastjóri:
Asdis Bragadóttir
Auglýsingar:
Einar H. Guðmundsson
Utanáskrift:
Skáksamband Islands
Pósthólf 8354
128 Reykjavík
tölvupóstur: siks@simnet.is
Sími: 568 9141 ■ Fax: 568 9116
Efni m.a.
Þættir úr sögu Skákar
Islendingur að tafli
í Mexíkó
Rabb
Glöggir lesendur Skákar hafa væntanlega tekið eftir því að stafrófsröð þeirra
meistara sem fjallað er um í þættinum íslenskir skákmeistarar á þessu hausti
er nokkuð brengluð. Sú „óregla“ kemur þó væntanlega eltki að sök. Téð ó-
regla á sér nefnilega þær gleðilegu orsakir, að þeir höfðingjar, sem fjallað var
um í seinasta tbl. og í þessu blaði nú, eiga merkisafmæli um þessar mundir.
Já, þeir Lárus Johnsen og Haukur Sveinsson urðu báðir áttræðir á þessu
hausti, Lárus hinn 12. september og Haukur 13. október. Skák þótti því vel
að hæfi að heiðra þá með umfjöllun á þessum tímamótum, en báðir settu
þeir svip á íslenskt skáldíf um miðja seinustu öld eins og menn geta fullviss-
að sig um með lestri þáttanna; Lárus varð reyndar skákmeistari Islands árið
1951. Báðir eru þeir félagar enn að og eru hverjum andstæðingi skeinuhætt-
ir. Skák árnar þeim heilla á þessum tímamótum og þaklcar langa samfylgd
um krákustíga skákarinnar. Og talandi um afmæli! Það styttist í fertugsaf-
mæli hinna gagnmerku alþjóðlegu Reykjavíkurskákmóta, en hið fyrsta þeirra
fór fram á veitingahúsinu Lidó frá 14. janúar til 6. febrúar 1964. Um gildi
mótanna fyrir íslenskt skáldíf allar götur síðan þarf vart að ræða hér. Flesdr
hljóta að vera sammála um að fá, ef nokkur tiltæki skákforystunnar á liðinni
öld hafi verið heilladrýgri fyrir þroska og framfarir skákmanna okkar í tím-
ans rás, - og nú stendur 21. Reykjavíkurskákmótið fyrir dyrum. Undirbún-
ingur þess hefur farið hljótt. Eg ætla þó rétt að vona að þess verði minnst á
verðugan hátt að 40 ár verða í janúar n.k. liðin fráa upphafi þessa mótahalds.
Eg man ekki betur en að hér á árum áður hafi um þetta leyti árs flestir
hnútar varðandi næsta Reykjavíkurskákmót verið hnýttir, fjáröflun sem næst
í höfn, nokkrir sterkustu skákmeistarar heims höfðu þegið boð um þátttöku
og góður vettvangur fyrir mótið tryggður. Ef undirbúningur nú er ekki
kominn í þennan farveg er illt í efni og kannski að hæfi að biðja Hróksmenn
að annast framkvæmdina, þeir kunna orðið til verka, eða hvað?
En í fullri alvöru, sleppum nú ekki þessu tækifæri til að halda veglega
skákhátíð að gefnu þessu dlefni í upphafi ársins 2004! Það var mikill sjarmi
yfir lokuðu fyrstu Reykjavíkurskákmótunum, þótt rökin fyrir opnum mót-
um með tækifærum sem flestra séu þungvæg. Hví ekki að reyna eitthvað
nfyt nú og fara bil beggja og halda sterkt lokað afmælismót, jafnvel aðeins 8
eða 10 manna, samtímis opnu móti með nokkrum boðsgestum annars frjáls
skráning?!
Hvert sem formið verður er þó fyrir mestu að gera veg 21. Reykjavíkur-
skákmótsins 2004 sem mestan-, megum við eldd strax fara að hlakka til?
Þráinn Guðmundsson
Til gamans gert
Skákþing íslands 2003
og margt fleira
Forsíðumyndin: Aftctri röðfrd vinstri: Helgi Ólafsson fararstjóri, Dagur Arngrímsson,
Björn Ivar Karlsson, Guðmundur Kjartansson, Elsa María Þorfinnsdóttir, Páll
Sigurðsson fararstjóri ogLenka Ptacnikova fararstjóri. Fremri röð frá vinstri: Hjörvar
Steinn Grétarsson, Svanberg Már Pálsson, Helgi Brynjarsson og Hallgerður Helga
Þorsteínsdóttir.
S K A K
201