Skák - 01.10.2003, Side 19
Páll Þórarinsson og Bragi Kristjánsson:
Landliðsflokkur
Hannes Hlífar íslandsmeistarl í fimmta sinn
Verðlaunahafar í Landsliðs- og Kvennaflokki árið 2003. Lengst t. v. er silfurverð-
launahafinn Þröstur, þá Lngvar Þór (3-5. sœti) ogfyrir miðju eru Islandsmeistararnir
Hannes Hlífar og Guðfríður Lilja. Þá koma Lenka, sigurvegari í kvennaflokki og
bronsverðlaunahafinn Harpa lengst til kœgri. I aftari röð eru Stefán og líklega á
Sœvar buxnaskálmina sem sést glitta í, en þeir félagar deildu s&ti með Ingvari Þór.
Keppni í Landsliðsflokki Skák-
þings Islands fór fram daga 24.
ágúst - 3. september. Hafnfirð-
ingar voru gestgjafar að þessu
sinni, en teflt var Hafnarborg.
Tólf skákmeistarar börðust um
íslandsmeistaratitilinn þar af
tveir stórmeistarar og þrír al-
þjóðlegir meistarar. Meðalstig
keppenda vorur 2351. 7 vinn-
inga þurfti til að fá áfanga að titli
alþjóðlegs meistara, en ekki var
möguleiki stórmeistaraáfanga.
Keppendur
Fyrirfram mátti telja Hannes
Hlífar Stefánsson langsigur-
stranglegastan. Hinn fjórfaldi ís-
landsmeistari hefur borið höfuð
og herðar yfir aðra (virka) ís-
lenska skákmeistara undanfarin
ár og var skemmst að minnast
öruggs sigurs hans á síðasta Is-
landsmóti. Meira en 100 ELO-
stigum munaði á honum og
næststigahæsta manni. Sá var
hinn stórmeistarinn í hópnum
Þröstur Þórhallsson. Hann var
hvað líldegastur til að geta veitt
Hannesi keppni, þrátt fyrir
fremur stopula taflmennsku
undanfarið.
Þá voru ungu alþjóðlegu
meistararnir Jón Viktor Gunn-
arsson (Islandsmeistari árið
2000) og Stefán Kristjánsson
líldegir til að láta að sér kveða í
toppbaráttunni. Þeir félagar
héldu báðir utan til taflmennsku
í sumar, og var Jón ekki langt frá
sínum fyrsta stórmeistaraáfanga
á Opna Tékklandsmótinu.
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur
meistari tók nú þátt í sínu 17.
Landsliðsþingi. Hann hefur
verið mistækur í gegnum tíðina,
en tekur á góðum degi stór-
meistara í bakaríið.
S K A K
217