Skák


Skák - 01.10.2003, Side 14

Skák - 01.10.2003, Side 14
opnar fyrir biskup á b7 og skap- ar góð færi fyrir svartan. 15.Bg3 Bb7 16.f4 Rc4! Nú er staðan erfið á hvítan. Ekki er gott að taka riddarann, því þá galopnast staðan 17.Bxc4 bxc4 18. e5 dxe5 19. fxe5 Rd5, sem ekki er gott og biskupapar svarts verður stór- hættulegt. Eg var frekar ráðalaus í þessari stöðu. Fann ekki rétta planið, og lék því sem ég lék. Ahugaverður hefði verið 17. Bh4!? 17.a3 He8 18.RÍ3 g6?! Hér leikur Lobron vafasömum leik. Betra hefði verið að leika 18. -d5 og ég er í miklum vand- ræðum. Hins vegar verður mað- ur að kunna að svara fyrir sig þegar andstæðingurinn leikur ó- nákvæmt. 19. Bf2 hefði verið góður leikur í þessari stöðu, með þeirri hugmynd að svara 19.-d5 með 20.e5, og ef 20.-Rh4, þá 21,g3! og hvíta staðan er traust. I ... I # £ £ i i i i i i i ■B % A A A 0 aiifi & A 2 2 0 19.Khl Bf8 20.Bxc4? Stöðulegt sjálfsvíg. Það var freistandi að ná peðinu til baka, en það reynist alltof dýrt. 20.-bxc4 21.Dxc4 d5 22.exd5 Rxd5 23.Rxd5 Bxd5 Þessi staða er mjög erfið. Eg sé fram á að eftir 24. De2, slær svartur Bxf3 og ég verð að taka til baka með g-peðinu til að tapa ekki b-peðinu. Nú eru góð ráð dýr. Ég gerði þau mistök á þessu augnabliki að meta stöð- una eftir andstæðingi, en ekki eftir möguleikunum á borðinu. Þetta er nokkuð sem ég þarf nauðsynlega að leiðrétta. Þegar ég tefli gegn andstæðingi sem ég trúi að er sterkari en ég, tefli ég öðruvísi en ég á að mér. Gegn jafnstigaháum manni hefði ég líklegast leikið 24. De2 og barist áfram með lélega peðastöðu, en í stað þess samasem gef ég skák- ina. 24.Hxd5?? Og afgangurinn er leikur einn fyrir Lobron. 24.- exd5 25.Dxd5 Db5 26.Da2 Hac8 27.Hxc8 Hxc8 28.Re5 Db7 29.b4 Bg7 30.De2 Hc3 31.KK2 Hxa3 32.Rc4 Hc3 33.Rd6 Dd7 34.6 Hxg3 0-1 Mín stærstu mistök í þessari skák voru ekki taflmennskan í byrjuninni, eða skortur á áætl- un, sem þó var slæmt, heldur að meta andstæðinginn sem ein- hvers konar ofurmenni. Einfald- lega vegna þess að hann hefur stórmeistaratitil og á marga góða sigra að baki, meðal annars titil- inn Skákmeistari Þýskalands, þýðir eltki að hann sé fyrirfram betri á borðinu. Ég held áfram að gera þessi mistök, enn þann dag í dag, en mín von er að þessi sjálfsgagnrýni hjálpi mér að sigr- ast á þessum vanda, og gefi les- andanum eitthvað til að íhuga. Nokkrum kvöldum síðar fór ég á bar hótelsins. Þar sat Eric Lobron sötrandi bjór. Hann minntist á það hvernig heimur- inn væri gjörbreyttur í dag frá því fyrir nokkrum árum; að áður þekkti fólk hann úti á götu í Þýskalandi, en ekki lengur. „Sú var tíðin að skákmenn urðu þjóðfrægir, og jafnvel heims- frægir,“ sagði hann. Það var mik- il eftirsjá í rödd hans og fram- komu. Mér gekk ágætlega í næstu skákum. Meðal annars gerði ég stutt og ómerkilegt jafntefli gegn alþjóðlega meistaranum Guil Russek. Eftir fimm umferðir var ég með 2,5 vinninga. I sjöttu umferð fékk ég FIDE-meistar- ann Jorge Martin del Campo. Hvítt: Jorge Martin del Campo (2346) Svart: Hrannar Baldursson (2100) XV Torneo Carlos Torre In Memorian Mérida, México 17.12.2002 Kóngs-indversk vörn, Klassíska afbrigðið Ég tefli ekki oft Kóngs-Indverj- ann, en í þau fáu skipti sem ég hef gert það, hefur það reynst mér vel. Oftast tefli ég Benko- gambít, en ég hafði átt nokkra slæma daga með Benko, og ákvað því að breyta aðeins til. I.d4 Rf6 2x4 g6 3.Rc3 Bg7 4.e4 d6 5.Rf3 Bg4 6.Db3 Þessi leikur bíður upp á 212 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.