Skák - 01.10.2003, Side 13
í Merida, desember 2002.
Fjöldi góðra stórmeistara víðs
vegar að tóku þátt. Má þar nefna
sigurvegarann Valerij Filippov
frá Rússlandi (2615), Vadim
Milov frá Sviss (2610), Walter
Arencibia frá Kúbu (2521),
Lenier Dominguez frá Kúbu
(2608), Arthur Kogan frá ísrael
(2529), Islandsvinurinn Jaan
Ehlvest frá Eistlandi (2600),
Gilberto Hernandez frá Mexíkó
(2546), Boris Gulko frá Banda-
ríkjunum (2594), og marga
fleiri öfluga kappa.
Sex fyrstu umferðirnar voru
tefldar eftir svissneska kerfinu,
en sextán efstu keppendurnir
tefldu þá í útsláttarkeppni um
efstu sætin. Aðrir héldu áfram í
aðalmótinu og tefldu níu skákir
alls. Eftir sex umferðir var ég
með 3.5 vinninga og hafði stiga-
árangur upp á 2341 stig. Var í
góðum plús, en eftir grófan af-
leik í 7. skákinni gerðist eitt-
hvað. Ég varð gífurlega vonsvik-
inn og tefldi kærileysislega í 8.
og 9. umferð og tapaði þeim
báðum. Var reyndar svekktur
yfir að fá svart í síðustu tveimur
umferðunum, en hef vonandi
lært að láta það ekki á mig fá.
Eg lauk mótinu með 4 vinninga
af 9, sem er ekki árangur til að
hreykja sér af, en átti samt lær-
dómsríkt mót.
í fyrstu umferð fékk ég þýska
stórmeistarann Eric Lobron.
Hvítt: Hrannar Baldursson
(2100)
Svart: Eric Lobron (2500)
XV Torneo Carlos Torre In
Memorian Mérida, México
13.12.2002
Sikileyjarvörn, Smith-Morra
Gambítur
l.e4 Eg hef í fjölmörg ár verið
trúr l.e4, sem hefur reynst mér
vel gegnum tíðina. l.-c5 2.Rf3
Rc6 3.d4 cxd4 4.c3 Morra
Gambíturinn hefur lengi verið í
uppáhaldi hjá mér. Margir spek-
ingar telja þessa byrjun mjög
varasama fyrir hvítan. Mér líkar
hversu hratt hvítum tekst að
koma mönnunum í spilið, og
hversu oft koma upp virkar og
spennandi stöður. 4.-dxc3
5.Rxc3 d6 6.Bc4 Rf6 7.0-0 a6
8.h3?!
Ótímabært. Með þessu tapa ég í
raun tempóinu sem ég vann fyr-
ir peðsfórnina. Betra er að lcoma
biskupnum af cl á e3 eða g5. 8.-
Bg4 væri svarað með 9.Db3. 8. -
e6 9.De2 Be7 lO.Hdl Dc7
ll.Bf4? Afar slakur leikur.
Ástæðan er einföld. Biskupinn
gerir ekkert gagn á f4 og auðvelt
að hrekja hann í burtu. Betra
hefði verið að koma honum á
e3. 11. -Re5!? Ég var rnikið að
velta fyrir mér hvort að réttara
væri að taka á e5 með riddara, en
ég held að það sé einungis gott ef
að hvíti biskupinn er á g5 og
getur tekið á f6 til að veikja
dökkreita biskup svarts. Hins
vegar er það ekki mögulegt í
þessari stöðu, vegna slakrar stað-
setningar Bf4 og tímatapi sem
fylgdi því að hopa með bisk-
upinn. 12.Bb3 Fritz mælir með
þessum leik sem þeim næstbesta,
en bendir á Bd3 sem sterkasta
leikinn. Þetta er dæmigerður
leikur sem að maður reiknar
ekki með, þar sem að hvítreita
biskupinn er sterkur í þessari
stöðu. Hins vegar ef svartur tek-
ur biskupinn á d3, og hvítur slær
með drottningu, skapast pressa á
miðborðið og hvítur fær aftur
þægilega stöðu. 12.-0-0
13.Hacl Db8
I W A I #
i WBM A i i i
i i i
%
A 1
A Jl H E tá &
s 4?
Þetta er lykilstaða. Hvítur verð-
ur að finna gott plan. Biskupinn
á f4 er enn sem áður illa staðsett-
ur og mætti hugsanlega koma
honum á g5 eða drottningu á
e3, þar sem hún er mun betur
staðsett og virkari en á e2, eða
hugsanlega að leika 14. a4!? til
að koma í veg fyrir l4.-b5. Plan
mitt var óljóst, sem veit elcki á
gott, en kannski vildi ég bara
grugga aðeins í stöðunni. Annað
eins hefur nú oft gefið ágætis
ávöxt. l4.Rd4?! b5! Það var al-
gjör óþarfi að leyfa svörtum
þetta. Peðið á b5 vinnur pláss,
S K Á K
211