Skák


Skák - 01.10.2003, Side 8

Skák - 01.10.2003, Side 8
Á 2. fundi félagsins, 30. júní, var Eggert Guðmundsson tónlistar- maður tekinn í félagið. Hann er, meðal skákmanna, betur þekkt- ur sem Eggert Gilfer, sjöfaldur Islandsmeistari. Fundarmenn voru greinilega kappsfullir, því þá var samþykkt tillaga frá Ein- ari Ágústi nokltrum um, að 5 aura sekt hlytist, ef menn mættu ekki á fundi, „að undanteknu einu kveldi í mánuði og sé mað- ur veikur eða ekki [í] bænum.“ Félagið var nú greinilega komið á fæturna og þá var komið að því að tefla. Á 3. félagsfundi, 2. júlí voru engar umræður, „aðeins æf- ingar.“ Næstu fundi voru um- ræður fáar, en þess meira lagt upp úr taflmennsku. Mótahald Félagið færðist nú í fang fyrstu útgjöldin, en á 11. fundi félags- ins, 30. júlí, var það samþykkt, að láta gera verðlaunapeninga fyrir eina krónu, 50 aura og 25 aura. Sérstök nefnd var ráðin til að annast þessi mál og setja regl- ur um það, hvernig tefla skuli um verðlaunin. Fyrst var síðan keppt um „heiðurspeninga“ á næsta fundi, 4. ágúst. Hófust nú hinar svokölluðu „kappskákir“. Nú á tímum er miðað við það, að kappskákir séu þær, þegar umhugsunartími nær tveimur klukkutímum hið minnsta fyrir hvorn keppanda. En hér merkti kappskák það, að keppt væri um verðlaun, en önnur skákiðkun væri í formi æfmga. Hófust nú keppnir um þau verðlaun, sem í boði voru, en stundum voru bæði æfingar og kappskákir. Þegar kappskákum lauk á 19. fundi, 25. ágúst, höfðu niður- Jón Baldvinsson. stöður fengist: 1. verðlaun: Egg- ert Guðmundsson (Gilfer), 2. verðlaun Jón Baldvinsson (síðar formaður Alþýðuflokksins), 3. verðlaun: Þorlákur Ófeigsson. Fundir voru haldnir reglulega næstu misserin, að minnsta kosti tvö skipti í viku, en það þætti gott nú til dags. Sökum fjölgun- ar meðlima var það ákveðið á 42. fundi, 10. nóvember, að segja upp herberginu að Berg- staðastræti 3 og flytja starfsem- ina í samfundastaðinn Bárubúð (Báruna), sem stóð nærri Tjörn- inni. Fundir gengu vel og voru vel sóttir í hinum nýju húsa- kynnum, þar sem skiptust á æf- inga- og kappskákir. Á 53. fundi, 22. desember, var fyrsta kappskákmótinu lokið með sigri Þorláks Ófeigssonar, sem fékk 14 vinninga af 16 mögulegum, í öðru sæti varð Eggert Guð- mundsson (Gilfer) með 13 vinn- inga og Ágúst Pálmason í þriðja sæti með sama vinningafjölda, en tapaði fyrir Eggerti í einvígi Eggert Gilfer. um 2. sætið. Kappskákafyrir- komulagið hafði verið í endur- skoðun frá haustdögum og hafði sérstök nefnd komið saman til að ræða breytingar. Aðalfundur var haldinn í árs- byrjun og átti félagið þá 5,90 krónur í sjóði. Ný stjórn var kos- in, þar sem Ágúst hélt áfram starfi sem formaður, Eggert Guðmundsson (Gilfer) var kos- inn ritari og Jón Jónsson féhirð- ir. Til vara voru kosnir Jón Bald- vinsson, Guðmundur Gunn- laugsson og Magnús Magnús- son. Félagsmenn virðast hafa verið sannspáir um framtíðina, því ákveðið var að kjósa dóm- nefnd, sem skera skyldi úr um í ágreiningsmálum við borðið, þ.e.a.s. mótsstjórn. Dómnefnd- ina skipuðu Jón Baldvinsson, Þorlákur Ófeigsson og Þórður Þorsteinsson. Þrír voru kosnir til vara. Merkilegasta samþykktin sneri þó að lögum „um kapp- skákir í félaginu Skák“. 206 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.