Skák


Skák - 01.10.2003, Side 12

Skák - 01.10.2003, Side 12
Fyrsti þáttur - XV CarlosTorre Repetto 2002 Ædun mín er að greinar mínar reynist lesendum fróðlegar og skemmtilegar aflestrar, hvort sem um er að ræða byrjanda eða manneskju lengra komna í skák- lisdnni. Mun ég taka fyrir eitt mót í hverri grein og lýsa að- komu minni að mótinu, auk valdra skáka. í þessari grein skýri ég þrjár lærdómsríkar skákir, eina sem ég tapa, eina sára jafn- teflisskák og eina sigurskák. Yfir- leitt læri ég meira af tapskákum mínum en sigurskákum, en hef að sjálfsögðu meira gaman af þeim sem ég vinn. I þessari grein mun ég ekki fjalla um mótið sem slíkt, heldur fyrst og fremst persónulega reynslu mína af því, og þær þrjár skákir sem ég lærði mest af. Ég dutti til Mexíkó árið 1998, nánar tiltekið á Yucatanskagann, til borgarinnar hvítu, Merida. Þetta er stórfeng- leg borg, umvafin regnskógi og mikilfengleg tré fylla húsgarða og göngugötur. Hún er kölluð borgin hvíta, því að engin borg þykir jafn hrein í allri Mexíkó. Mengun lítil sem engin og dags- ins önn er jafnvel hægari en í Reykjavík. Þessi borg var byggð á rústum fornrar Maya-borgar, og elsta kirkjan er ríflega 400 ára gömul. Undir torginu í mið- bænum eru katakombur, sem nýttar voru sem flóttaleiðir fyrr á öldum, ekki ólíkt göngunum sem má finna í Skálholti. A víð og dreif um fylkið má finna fornar rústir eins og Chichen Itza, Uxmal, Dzibilchaltun, og fleiri. Enn finnast fornar borgir grafnar í regnskógunum, með aðstoð gervihnatta og nýjustu leitartækni fornleifafræðinga. Einnig er gífurlegur loftsteina- gígur einungis um 30 mínútna akstur frá borginni, sem fræði- menn telja vera staðinn þar sem upphaf endaloka risaeðlanna átti sér stað. Fyrsta árið mitt í Merida leið mér eins og pizzu í ofni. Hita- stigið í borginni er yfirleitt á milli 30 til 40 gráður á Celcius. Á sumrin fer hitinn oft yfir 40. Mér hefur aldrei líkað neitt sér- staklega mikið við gífurlegan hita, og það að þurfa að skella mér í sturtu þrisvar á dag. Ég fékk vinnu sem framhaldsskóla- kennari og stofnaði með konu minni lítinn skóla, sem síðar var fellibylnum Isídór að bráð. Mér tókst að finna skáklíf í borginni og tefldi á öllum þeim mótum sem ég vissi af, vann mörg þeirra og náði alltaf verðlaunasæti. Einnig hélt ég sambandi við skáklífið á Islandi með því að skrifa á Umræðuhorn Daða Arn- ar Jónssonar. I september 2002 reið fellibylur yfir Merida. Við töpuðum skólanum okkar og ákváðum að flytja til Puebla. Tveimur mánðum eftir felli- bylinn hafði Merida náð að rísa úr mánaðar rafmagns- og síma- leysi, og var farin að líta út eins og borg á ný, en ekki vígvöllur. Þúsundir trjáa hafði rifnað upp með rótum, en herinn hafði unnið í að fjarlægja þau. Sama má segja um síma-, ljósa- og raf- magnsstaura. Búið var að reisa allt við, þeim tryggðu bætt eitt- hvað af tjóninu og hversdagslífið tekið við á ný. XV. Alþjóðlega Carlos Torre Repetto skákmótið var haldið á lúxushótelinu E1 Conquistador, 210 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.