Skák - 01.10.2003, Side 27
ur Helga lagði Elsu Maríu. Fyr-
ir síðustu umferðina var Lenka
því efst með 7'/2 vinning, einum
meira en Harpa og Guðfríður
Lilja. Spennandi lokaumferð fór
því í hönd. Lenku nægði því
jafntefli gegn Hörpu til að
tryggja efsta sætið. Guðfríður
Lilja stóð vel að vígi í baráttunni
við Hörpu um titilinn, var auð-
vitað mjög sigurstrangleg í
viðureigninni gegn hinni ungu
Hallgerði Helgu.
Svo fór að Lenka lagði Hörpu
og tryggði sér góðan sigur á mót-
inu. Guðfríður Lilja vann einnig
og varð þar með Islandsmeistari
árið 2003. Anna Björg komst
upp í 4. sæti með sigri á Elsu
Maríu en lokaröð keppenda get-
ur að líta á meðfylgjandi töflu.
Sigurstranglegasti keppand-
inn hafði að lokum sigur líkt og
Landsliðsflokki, en hér var
spennan þó mun meiri og hélst
út allt mótið. Lenka var taplaus
og fór mikinn í síðari hlutanum
þegar hún vann allar skákirnar.
Guðfríður Lilja átti einnig
gott mót þó ekki hefði hún við
Lenku að þessu sinni. Hún var
vel að ellefta íslandsmeistaratitl-
inum komin.
Harpa veitti þeim harða
keppni en gaf eftir í blálokin.
Hún nagar sig eflaustu í handar-
bökin yfir að hafa ekki náð að
landa sigri í fyrri skákinni gegn
Lenku (sem fylgir hér á eftir).
Anna Björk náði sér ekki á strik
í síðari hlutanum eftir ágætis
byrjun.
Hallgerður Helga náði prýð-
isgóðum árangri og deilir fjórða
sætinu með Önnu. Hún er að-
eins 11 ára og greinilegt er að
þarna fer efnileg skákkona. Elsa
María átti erfitt uppdráttar, en
reynslan sem fæst á svona móti
skilar sér án efa síðar.
Mótið í ár var spennandi og
skemmtilegt. Keppendur voru
hins vegur eins og oft áður helst
til fáir. Fróðlegt verður að sjá
hvort fleiri ungar stúlkur fylgi í
kjölfar Hallgerðar og Elsu. Þá
væri gaman að sjá kempur á
borð við Guðlaugu Þorsteins-
dóttur að tafli oftar.
Skákir í næsta blaði.
Nafn ELO-stig 1 2 3 4 5 6 V R
1 Lenka Ptátnikova 2215 1/2 1 1/2 1 1/2 1 1 1 1 1 8 1/2 1
2 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 2058 1/2 0 1 1 0 1 1 1 1 1 7 1/2 2
3 Harpa Ingólfsdóttir 2057 1/2 0 00 1 1 1 1 1 1 6 1/2 3
4 Anna Björg Þorgrímsdóttir 1/2 0 1 0 00 1/2 0 1/2 1 3 1/2 4-5
5 Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 00 00 00 1/2 1 00 1 1 3 1/2 4-5
6 Elsa María Þorfinnsdóttir 00 00 00 1/2 0 1/2 6
Lærið að flétta
Lausnir
1) 53. - Hf2! og hvítur gafst upp, því hann
tapar hróknum á e2 vegna mátsins á g4.
2) 50. Bcl! Kd5 51. Bb2 og svartur gafst upp,
því hann getur ekki stöðvað frípeð hvíts.
3) 18. - Re4+ 19. Kxc2 Ba4+ 20. Kcl og
gafst upp um leið, því hann verður mát í þriðja
leik eftir 20. - Hxc3+.
4) 17. - Bh3!! 18. g3 Eftir 18. gxh3 De2 verð-
ur hvítur fljótlega mát. 18. - Hxg3! 19. hxg3
Dxg3 og hvítur gafst upp, því hann verður mát.
5) 21. Dxf7+H og svartur gafst upp, því hann
kemst ekki hjá máti.
6) 50. Hxd7! Dxd7 51.e6Da7 51.-Db7var
annar möguleiki með skákhótunum, en 52.
Dd4! hindrar þau áform: 52. - Db5+ 53. Kh4
Db7 54. Kg3!!Hf8 55. Bxf8 axb2 56. e7 Kf7
57. d7. 52. De5! axb2 53. e7 Kf7 54 d7 og
heimsmeistarinn fyrrverandi gafst upp.
S K A K
225