Skák - 01.10.2003, Blaðsíða 31
t
r
Oli Valdimarsson
fæddur 2. nóvember 1916
látinn 8. október 2003
Óli Valdimarsson skákmeistari
er látinn í hárri elli, en hann var
nær 87 ára er kallið kom.
Þeim fer nú óðum fækkandi sem
settu mark sitt á skáldífið á Is-
landi um miðja liðna öld, en
raunar var Óli að tafli allt til árs-
ins 1991 er hann tefldi í áskor-
endaflokki á Skákþingi Islands
og í Boðsmóti T.R. auk helgar-
móts Skákar. Sé það haft í huga
að fyrsta skráða skákmót sem
hann tefldi í var árið 1938, en
það var Skákmót Taflfélags
Norðfjarðar þar sem hann bjó
um hríð, sést vel hve löng og
náin samfylgd hans við skák-
gyðjuna var, eða 53 ár.
Fjallað var um skákferil Óla
Vaidimarssonar í þættinum ís-
lenskir skákmeistarar í Skák, 1.
tbl. 2003. Þar sést vel hve virk-
ur hann var í skáklífinu og
hættulegur andstæðingur öllum
eins og sést á mörgum sigur-
skáka hans sem þar eru birtar.
Það er t.d. með ólíkindum að á
Helgarmóti Skákar á Egilsstöð-
um árið 1991 vann hann þá
meistarana Braga Halldórsson
og Askel Örn Kárason, en þá var
hann að verða 75 ára.
Óli var fæddur á Meðalfelli í
Nesjum í Hornafirði, en bjó
lengstan hluta ævi sinnar í
Reykjavík þar sem hann var í
rúma fjóra áratugi deildarstjóri
hjá Fiskiféiagi Islands. A árun-
um 1941-1956 tefldi Óli átta
sinnum í landsliðsflokki (meist-
araflokld) á Skákþingi Islands, en
á fimmta áratugnum var hann
mjög virkur sem skákmaður auk
þess sem hann lét félags-og hags-
munamál skákmanna mjög til
sín taka. Þannig sat hann í stjórn
Taflfélags Reykjavíkur á árunum
1943-’45 og í stjórn Skáksam-
bandsins 1946-’48.
Þar sem skákmenn áttu sér ekk-
ert málgagn á þessum árum réð-
ust þeir félagar Óli og Sturla
Pétursson í það að gefa út skák-
tímarit, Nýja skákblaðið árið
1940. Þótt líf þess yrði stutt -
aðeins árið - er það merk heim-
ild um íslenskt skákiíf í upphafi
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Margir skákmenn munu nú
minnast þeirra Óla og Sturlu
fyrir þátttöku í helgarmótum
Skákar, en þar voru þeir öldung-
arnir til fjölda ára í hópi kepp-
enda, fastir boðs-og heiðursgest-
ir Jóhanns Þóris. Þeir settur
sinn svip á þessi mót.
Nú teflir þrenningin Jóhann Þór-
ir, Sturla og Óli á öðru „plani“
þar sem tímaþröng og önnur
óáran plagar væntanlega ekki.
Skákmenn þalcka Óla að leiðar-
lokum fyrir langa samfylgd og
tryggð við málstað skákarinnar.
Þráinn GuÖmundsson
S K A K
229