Skák


Skák - 01.10.2003, Side 32

Skák - 01.10.2003, Side 32
Þessi skemmtilega mynd er frá árinu 1994. Það er sem sagt nær áratugur síðan íslensku heims- meistararnir fjórir komu saman til myndatöku. Lengst t.h. er Helgi Ass Grét- arsson sem árið 1994 sigraði á heimsmeistaramóti skákmanna 20 ára og yngri, sem haldið var í Brasilíu það ár. Heimsmeist- aratitlinum fylgdi sjálfkrafa stór- meistaratitill. Helgi er fæddur árið 1977 eða sama ár og Jón Loftur Árnason, sem stendur við hlið hans varð heimsmeistari ungmenna 16 ára og yngri á móti í september sem haldið var í bænum Cagnes sur Mer á Suð- ur-Frakklandi. í hópi keppenda var m.a. Garry Kasparov. Jón er fæddur 1960, en hafði þegar hér var komið sögu náð því að verða Skákmeistari Islands, sá yngsti til þess tíma. Síðan liðu 10 ár, en árið 1987 eignuðust íslend- ingar tvo heimsmeistara í skák, Hannes Hlífar Stefánsson vann þá sama titil og Jón L., en Héð- inn Steingrímsson varð þá heimsmeistari 12 ára og yngri á móti í Puerto Rico, en Héðinn er fæddur 1975 og Hannes Hlíf- ar 1972. Líklega þekkja flestir lesenda þá glæsilegur taflmenn sem prýða myndina ásamt meistur- unum. Hér eru semsé mennirn- ir - sem nú eru orðnir safngripir - af útitaflinu sem sett var upp í Lækjargötu árið 1980, en hug- myndin var frá S.L komin. Þessa listagripi hannaði Jón Gunnar Árnason. Því er ekki að neita að tilefni þessarar myndar nú er „skák- vakningin“ sem nú kvað vera í algleymingi og að sjálfsögðu hið besta mál. Á það skal þó minnt að á seinustu öld voru börn og unglingar einnig að tafli, skóla- skák blómstraði, og umfram allt, sigrar unnust! Þráinn Guðmundsson 230 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.