Skák


Skák - 01.10.2003, Blaðsíða 28

Skák - 01.10.2003, Blaðsíða 28
Helgi Ólafsson: J Um allangt skeið hafa íslending- ar átt í einkar ánægjulegum sam- skiptum við skákmótafrömuði í Winnepwg í Kanada. Opna kanadíska meistaramótið hefur verið haldið þar margsinnis og fyrir 17 árum fengum við Guð- mundur Sigurjónssson og Jó- hann Hjartarson boð um að tefla þar og nutum gestrisni Is- lendingafélaganna á staðnum. Síðar fóru Margeir Pétursson og Jón L. Arnason í heimsókn 1994, árið 1997 tefldu þar Jó- hann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson og nú í lok á- gústmánaðar stefndi ég þangað aftur, einn að þessu sinni en Friðrik Ólafsson, sem einnig hafði ætlað að vera með, varð að hætta við vegna anna hér heima. Árið 1986 var flogið í gegnum Chicago, en nú er millilent í Minneapolis og þaðan flogið með Northwest til Winnipeg. Þetta var þægilegasta ferðalag að mestu, utan þess að um það leyti sem komið var inn til lendingar í Winnipeg gekk þrumuveður yfir og mátti sjá miklar eldglær- ingar í gegnum glugga þess vél- knúna. Sá ágæti Kanadamaður sem tók á móti mér sagði við mig að vissulega væri rigningin mjög blaut enda væri hér um að ræða eitt mesta úrfelli í manna minnum. Var honum að öðru leyti tíðrætt um plágurnar fjórar sem gengið hefðu yfir Kanada á þessu ári: Sars-veikina, almyrkv- un stórra svæða vegna rafmagns- leysis, skógarelda og svo gin- og klaufaveikina sem hófst með því að sýkt bandarísk belja rölti yfir landamærin til Kanada og fór að hnusa framan í innfæddar. Setning mótsins fór fram í hátíð- arsal háskólans í Winnepeg föstudaginn 27. ágúst. Aðal- skipuleggjandi mótsins Cecil Rosner bauð gesti velkomna og minntist Yanovsky með nokkkrum vel völdum orðum. Hann skrifaði ágæta grein í New in chess fyrir nokkru um skák- ferl Yanovsky. Fjölmargir héldu ræður þ.á m. keðju skrýddur fylkisstjórinn í Manitoba, „hinn háæruverðugi Peter M. Liba“. Hann byrjaði eins og stjórn- málamanna er siður að segja nokkra praktíska brandara og var einn um aðstoðarmann hans kurteisan mann og lítillátan og var eitthvað á þá leið, að skömmu eftir embættistöku hafði fylkisstjórinn beðið að- stoðarmanninn um að koma fram fyrir sína hönd og halda ræðu. Mæltist aðstoðarmannin- um svo vel að einhver í salnum sagði stundarhátt: Loksins hefur Manitoba fengið fylkisstjóra sem eitthvert vit er í. Það fylgdi sög- unni að fylkisstjórinn hefði ekki beðið aðstoðarmann sinn um að halda fleiri ræður. Tilefni móts- ins var auðvitað að heiðra minn- ingu Abe Yanovsky. Luku allir upp einum munni um frábæra eiginleika þessa fyrsta stórmeist- ara Kanadamanna, sem varla hefði eignast einn einasta óvild- armann á ferli sínum og hafði þó átt í hatrammri kosningabaráttu um áratuga skeið. Undirritaður steig í púlt þegar nokkuð var lið- ið á kvöld. Eg tæpti á ágætum samskiptum íslendinga við Kanadamenn á skáksviðinu, minntist skákkappans frá Rauðamel, Magnúsar Smith, og ferðar Yanovsky til íslands árið 1947 en þar höfðu tekist góð kynni með honum og Friðrik Ólafssyni. Yanovsky dvaldi hér um nokkurra vilcna skeið, tók þátt í alþjóðlegu móti, hraðskák- 226 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.