Skák - 01.10.2003, Blaðsíða 26
Kvennaflokkur
Lenka efst, Guðfríður Lilja meistari í ellefta sinn
Dagana 24. september - 3. októ-
ber fór fram keppni í Kvenna-
flokki á Skákþingi Islands. Teflt
var í Hafnarborg, en mótið var
haldið samhliða Landsliðsflokki.
I ár öttu sex skákkonunur
kappi, þar af einn stórmeistari
kvenna. Tefld var tvöföld um-
ferð, allar við allar.
Stigahæst og reyndust kepp-
enda var tékkneska landsliðs-
konan Lenka Ptácnikova, stór-
meistari kvenna. Hún er gift
Helga Ass Grétarssyni stórmeist-
ara og hefur búið hérlendis und-
anfarin ár. Lenka tefldi sem
gestur að þessu sinni, en reglur
kveða á um að keppandi verði að
vera gjaldgengur í landslið Is-
lands til geta orðið Islandsmeist-
ari. Hún var óneitanlega sigur-
strangleg, enda munaði meira en
150 ELO-stigum á henni og
næstu skákkonum.
Þær Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir og Harpa Ingólfsdóttir
töldust líklegustu keppinautar
Lenku. Ferill Guðfríðar er ein-
stakur, en hún mætti til leiks
sem tífaldur Islandsmeistari!
Titilinn vann hún fyrst árið
1985, þá einungis 13 ára gömul.
Harpa varð Islandsmeistari árið
2000. Þær stöllur hafa verið
burðarásar íslensku kvennasveit-
arinnar á síðastliðnum Ólymp-
íumótum og áttu að geta veitt
Lenku harða keppni með því að
hitta á gott mót.
Fjórða í stigaröðinni var Anna
Björg Þorgrímsdóttir. Anna
varð íslandsmeistari 1996 og
hefur verið ásamt Guðfríði Lilju
og Hörpu í Ólympíusveit Is-
lands á síðustu mótum. Hún er
töluvert stigalægri en þær en get-
ur vel gert þeim skráveifu á góð-
um degi.
Fulltrúar yngstu kynslóðar-
innar voru þær Hallgerður
Helga Þorsteinsdótdr og Elsa
María Þorfinnsdóttir. Búast
mátti við því að á brattann yrði
að sækja hjá þeim en svona mót
er á hinn bóginn alltaf dýrmæt
reynsla fyrir unga og efnilega
skákiðkendur.
Urslit voru eftir bókinni í
fyrstu umferðinni, Lenka, Guð-
fríður Lilja og Harpa höfðu allar
sigur. Lenka og Harpa héldu
uppteknum hætti í annarri um-
ferð en Anna Björg gerði sér
hins vegar lítið fyrir og lagði
Guðfríði Lilju. Harpa tók for-
ystuna í þriðju umferð er hún
lagði Elsu Maríu á meðan Guð-
fríður Lilja og Lenka gerðu jafn-
tefli í fyrstu stórviðureign móts-
ins. Hallgerður Helga komst á
blað með jafntefli við Önnu
Björg.
I fjórðu umferð kom Anna
Björg aftur á óvart með því að
halda jöfnu gegn Lenku. Guð-
fríður Lilja batt enda á sigur-
göngu Hörpu þegar hún hafði
betur í uppgjöri íslensku skák-
drottninganna. Hallgerður
Helga hafði svo betur í viðureign
yngstu keppandanna.
I lokaumferð fyrri helmings
mótsins gerðu Lenka og Harpa
innbyrðis jafntelfli. Samtímis
sigraði Guðfríður Lilja Hallgerði
Helgu og Elsa María krækti í
hálfan punkt gegn Önnu Björg.
I hálfleik deildu því Guðfríð-
ur, Harpa og Lenka efsta sætinu
með 3Ú2 vinning af 5. Anna
Björg var með vinningi minna í
4. sæti. Hallgerður kom þar á
eftir með 11/2 vinning en Elsa
María rak lestina með 1/2.
Þannig var allt útlit fyrir spenn-
andi baráttu um efsta sætið milli
stigahæstu skákkvennanna í
seinni hlutanum. Anna Björg
hafði einnig náð góðum úrslit-
um, þrátt fyrir að hafa verið
brokkgeng.
Sjötta umferðin var endur-
tekning á þeirri fyrstu, þær stiga-
hæstu unnu aftur allar. I sjöundu
umferð kom Guðfríður Lilja
fram hefndum á Önnu Björgu
en Harpa og Lenka unnu einnig
sínar skákar. Þær þrjár voru því
enn hnífjafnar í efsta sætinu að
þremur umferðum óloknum.
Því var mikil spenna fyrir loka-
umferðirnar þegar þær myndu
tefla innbyrðis öðru sinni.
Lenka tók mikilvægt skref í
átt að sigri með því að leggja
Guðfríði Lilju í áttundu umferð.
Harpa hélt sínu striki, lagði Elsu
Maríu öðru sinni og Hallgerður
Helga gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði Önnu Björg.
I næstsíðustu umferð tók
Lenka forystuna, vann Önnu
Björk en Harpa beið lægri hlut
fyrir Guðfríði Lilju og Hallgerð-
224
S K A K