Skák


Skák - 01.10.2003, Side 20

Skák - 01.10.2003, Side 20
Ánægjulegt var að sjá Ingvar Asmundsson mættan til leiks eft- ir langt hlé frá Landsliðsflokki. Eftir að hafa látið af embætti rektors Iðnskólans hefur Ingvar hafið taflmennsku af fullum krafti með góðum árangri, t.d. náði hann sínum fyrsta AM á- fanga í fyrra. Ingvar varð Islands- meistari 1979, en Hannes, Jón og hann voru einu keppendurnir sem hampað höfðu titlinum. Björn Þorfinnsson var fimmti í ELO-stigaröðinni á þessu ís- landsþingi. Hann stóð sig mjög vel á tveimur síðustu þingum og var líklegur til að krækja í sinn fyrsta AM-áfanga á mótinu. Aðrir líldegir áfangakandídat- ar voru Róbert Harðarson, Sig- urður Daði Sigfússon og Davíð Kjartansson. Þeir hafa allir komist mjög nálægt AM-áfanga á sérsniðnum „áfangamótum“ erlendis. Guðmundur Halldórsson var að vissu leyti óskrifað blað sök- um lítillar taflmennsku undan- farin ár. Guðmundur hafði þó sýnt það árið 1994, þegar Land- liðsflokkur var haldinn í Vest- mannaeyjum, að hann á fullt er- indi í slík mót. Ingvar Þór Jóhannesson var eini nýliðinn í hópnum og jafn- framt stigalægstur keppenda. Ingvar hefur verið nokkuð mis- tækur undanfarin ár, auk þess sem hann hefur verið önnum kafinn við að sinna tækni- /tölvumálum skákmóta (var t.d. tækinistjóri Landsliðsflokks á nýliðnum þingum). Þó var ljóst að hann gæti gert atlögu að áfanga, ef hann kæmist í stuð, líkt og á Minningarmóti Jó- hanns Þóris í hitteðfyrra. Gangur mótsins og úrslit Ekld var mikið um óvænt úrslit í upphafi móts. Að loknum þrem- ur umferðum leiddu Hannes, Þröstur og Stefán með 2 Ui vinn- ing. Stórmeistararnir höfðu gert baráttujafntefli innbyrðis í ann- arri umferð. Ingvar Þór og Ró- bert byrjuðu best þeirra sem voru á höttunum eftir AM-á- fanga; voru í 4-5. sæti með 2 vinninga. Eftir þennan upphafskafla fór hins vegar leiðir að skilja með Hannesi og öðrum keppendum. Með sigri á Stefáni í fjórðu um- ferð náði Hannes forystunni einn og sló lítt af eftir það. Eft- ir sjöttu umferð, þegar mótið var rúmlega hálfnað, höfðu línur skýrst nokkuð. Hannes var efst- ur með 5Ú2 vinning en Þröstur og Róbert vinningi á eftir í 2-3. Þröstur hélt enn í við Hannes og Róbert var að komast í tæri við áfangann. Framyfir miðbik mótsins tefldi Róbert af miklum krafti og var á þessum tíma- punkti með árangur sem sam- svaraði yfir 2500 ELO-stigurm. Stefán Kristjánsson var einn í 4. sæti með 3]/2 vinning. Hannes hélt sigurgöngunni áfram í næstu umferðum, var kominn með 71/2 vinning eftir 8 umferðir og hafði þá náð L/2 vinnings forskoti á Þröst. Ró- bert var einn í 3. sæd með 5 vinninga þrátt fyrir ósigur gegn Sævari. Spá margra um að Þröstur yrði helsti keppinautur Hannesar var því að rætast. Ró- bert átti enn möguleika á áfanga. Hins vegar setti það strik í reikn- inginn að hann átti enn eftir að mæta stórmeisturunum. í 9. umferð var bundinn endi á sigurgöngu Hannesar sem gerði jafntefli við Björn. Þresti mistókst að nýta sér þetta tæki- færi og varð að sætta sig við skiptan hlut gegn Guðmundi. Þar með voru úrslitin nánast ráð- in. Hannes tryggði sér svo sigur- inn í næstsíðustu umferð með því að leggja Róbert. Fyrir loka- umferðina var hann efstur með 9 vinninga en Þröstur kom næstur með 7'/2 vinning. I 3-4. sæti komu svo Ingvar Þór og Sævar með 6 vinning. Ingvar hafði teflt skínandi vel og átti möguleika á sínum fyrsta AM- áfanga með sigri í síðustu umferðinni. Hannes kláraði mótið með stæl, lagði Sigurð Daða. Hann fékk því 10 vinninga og endaði 2 vinningum fyrir ofan Þröst sem gerði jafntefli við Róbert. I 3-5. sæti komu svo Ingvar Þór, Sævar og Stefán með 61/2 vinn- ing. Ingvari Þór tókst ekki að leggja nafna sinn í lokaumferð- inni, og rétt missti því af áfang- anum að þessu sinni. Róbert varð svo sjötti með 6 vinninga. Um lokaröð keppenda og ein- stök úrslit vísast í meðfylgjandi töflu. Sigur Hannesar var öruggur og glæsilegur. Líkt og í fyrra náði enginn að setja verulega pressu á hann. Þröstur átti ágætt mót, tapaði ekki skák og var sá sem einna helst veitti Hannesi keppni. Hann átti þó ekki svar við þeim fjölda vinninga sem Hannes rakaði saman gegn „minni spámönnunum“. Ingvar Þór má, -ásamt Hann- esi-, telja mann mótsins. Þrátt fyrir að vera stigalægstur og að tefla á sínu fyrsta Landsliðsþingi náði hann 3-5. sæti. Hann tap- 218 S K A K

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.