Freyja - 01.09.1904, Blaðsíða 11

Freyja - 01.09.1904, Blaðsíða 11
VII. 2. FREYJA 35 sé svo skapaðir, að engin merki sjáist til annars, en þeir sé hreinir Ariar. Þetta gjörir og skiljanlegt, hve miklu ófastheldnari Japar eru á fornar venjur,en Sínverjar og aðrir Asíu-menn, og auðnæmari á mennt- un vestur-þjóða.* Sá sem þetta ritar, hefir séð hundruð af Sínverjum, og nokkra tugi Japa, og hefir oss jafnan fundist Japar fullt svo ólíkis Sínverjum sem Norðui álfu-mönnum. Marga Japa höfum vér séð, þá er engum mundi detta annað í hug um, en að þeir heyrðu til einhverri Norðurálfu-þjóð. Þetta ætti að geta læknað í sumum óttann við „gula voðann". Japinn er reyndar alls ekki „gulur.“ Og sé Japar að miklu leyti ariskir, þá vel má segja: „Norðmenn eru þeir svo sem vér erum.“ — Eftir „Reykjavik Japanar sem vikingar. Eftir William Thornton. Engan, sem þekkir fornsögu Japa inun furða sig á sigursæld þeirra nú. Frá því menn fyrst hafa sögur af þeim, hafa þeir verið ofdirfsku- fullir sjóvíkingar og herjuðu oftá Kína og Mongóla og unnu ekki ein- ungis margan frægan sigur á þeim, heldur tókst þeim oftast að gjöreyða andstæðingum stnum. Japar eru vanir við að ráða yfir yó og sjóferð- um þar eystra og geta sagt eins stórkostlegar hernaðarsögur af sjálfum sér og inir fræknustu Norðurlanda víkingar. Jimmu konungur, forfaðir innar náverandi konunglegu ættar í Japan, stofnaði riki sitt 6R0 f. K. Hann var víkingur I húð og hár og tók landið með lierskildi, sigldi þangað á skútum sýnum.sökkti eða her- tók þær sem fvrir voru, og drap I helli einum yfir 80 af yflrmönnum landsins. Um þetta var kveðið kvæði, er líkist mjög hermanna-kviðl- ingum Norðurlandabúa. * Hinsvegar er það misskilningur mikill, að halda að Japar „af- klæðist þjóðerni sínu.“ Þeir varðveita allt það af sínu, er þeim þykir nýtandi, en taka upp það frá öðrum þjóðum, er þeiin þykir betur fara.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.