Freyja - 01.04.1905, Side 5
VII. 9-
FRE\JA
223.
þess var að menn græddu feyki mikiö fé á koparhlutum, og; haföi
haan dálítiö fengist viö að verzla meö þá. En eins og margt ann-
að sem Lawson snerti, þá var það af tilviljun aö hann tók að fást
við verzlun þeirra. Það var dag einn fyrir eitthvað 10 árum að
Lawson stóð við fréttaþráðsborðið í skrifstofunni sinni, að fregn-
riti nokkur, bezti vinur hans, kemur til hans og segir: ,,Thomas,
ég heyri það sagt að þeir ætli að fara að loka [hætta að vinna í]
Butte og Boston námunum. Og ég held að það sé hið arðsamasta
verk, sem þú getur gjört, að hleypa hlutum þeim niður. Ef þú
gjörir þaö sem þú getur, græðir þú stórfé. “ Lawson spyr hann
hvort hann sé nokkuð við það riðinn, en hann neitar því. Biður
hann svo kunningja sinn að afsaka sig nokkrar mínútur, gengur að
telefóninum og segir umboðsmanni sínum að selja í gríð þessa
hluti,
Áhlaup hans á hlutabréf í námum þessum hleypti öllu í upp-
þot í Boston. Butte og Boston félögin réðust á hann og sögðu sög-
una um að námunum yrði lokað, lýgi eina. En það varð þó innan
skamms að námunum var lokað. En Lawson skrúfaði hlutabréfin
úr$i6 og ofan í 75 cents. Svo keypti hann þar til hann átti um-
ráð yfir 200,000 hlutum og var það meiri parturinn og réði þá
Lawson öllu í félaginu. Upp frá því fóru hlutir þessir að hœkka
í verði og veturinn 1900 var verðið á hverjum hlut orðið $1x6.
(Hundrað og sextán dollarar.) Vorið 1901 var myndað úr þessu
félagi: ,, Amalgamated Copper Company, “ með $ x 5 5,000,000
dollara höfuðstól.
Upp frá þeim tíma að Lawson gjörði áhlaup þetta á Butte og
Boston hlutina fór vegur hans að vaxa og það ákaflega skjótt. Nú
á hann einnig Trinity kopainámana í Californíu með $6,000.000
höfuðstól, og hafa óvinir hans oft gjört áhlaup á hlutaeign þá. I
nóvember í vetur voru hlutir í henni 18ýá og höfðu hækkað síð-
an í Marz mánuði úr 3)^. Nú hafa hlutir þess [í janúar] selzt
fyrir 8 dollara hver og eru að hækka þegar þetta er skrifað 3. febr.
og eru nú seldir á I2$ú. Menn þykjast vita að Lawson á meiri
part hlutanna og rœður hann alþýðu að kaupa þá því að þeir muni
hækka upp í 40.
Framan af var Lawson hinn lang sterkasti björn á marðaðin-
um. Það var eins og einhver meðfædd hvöt segði honum hvenær