Freyja - 01.08.1906, Blaðsíða 15

Freyja - 01.08.1906, Blaðsíða 15
IX. i. FREYJA »5 skyldi nó þegja. En aumingja maöurinn varö enn þá rau'öari í framan af ofraun yfir því aö reyna aö sýnast þaö, sem hann eldci var. Hann var nú sannfœröur um, aö ég væri brjáluð, en liélt þó, að ég heföi fullt vit með köflum. Þetta heyrði ég liann hvísla að frúnni rétt áður en þjónustustúlkan kom inn með teið. Já, reyndar var Nancey Oklen nú fært te í ofurlitlum egg- mynduöum bolla ásamt ótal öðrum fínindis réttum, á silfur- bakka. Og nú fyrst varö ég hrædd um að ég myndi koma upp um sjálfa mig. Svo ég sagöist ekki vera neitt svöng, og þó veit guö, aö mig langaöi í þetta allt saman, því ég hafði ekkert smakkaö síöan snemma í morgun. Frúin sendi þá þjónustu- stúlkuna út og mataöi mig sjálf og ég lét mig hafa það, að drekka þannig úr bollanum, og boröa þó nokkuð með. Ég var nú reyndar mest að hugsa um það, hvernig ég ætti að komast i burtu, en rétt í því opnuðust dvrnar og inn kom — liver heldur þú, Tcm Dorgen? Ekki nema stóri feiti maöurinn, sem þú tókst úrið af í morgun—úriö_, sem augnablikið þaö arna gekk svo hátt í barmi niínum. Ég var nærri búin að missa nið- ur bollann ,svo varð mér bilt viö þegar ég sá hann. En frúin bað mig að vera rólega, það væri bara hann--------Hér þagn- aði hún alveg ráöalaus Það gat ekki verið hann pabbi minn, því biskupinn var það, en svo var hann þó maðurinTi liennar og hún var á þessu augnabliki mamma mín. Hver gat hann þá verið? ,.Gott kvöld, biskup. Sæl, Henrietta, þú hefir komið snemma heim af leikhúsinu,“ sagði hann, hálf loðmæltur, þvi hann hafði bætt við sig síðan um morguninn, þó hann gengi eins teinréttur og sjálfur biskupinn. „Ó “ sagði hann er hann sá mig. „Ungfrú—ég hefi séð hana, þó ég muni ekki hvað hún heitir, Henrietta.“ „Ungfrú — ungfrú Morison — ættingi minn,“ laug frúin eins og ekkert væri um að vera. „Hvers vegna lcailar maðurinn hann pabba minn biskup?“ „Þei, þei. Það er bara spaug, er ekki svo, Edward!“ sagði hún og hló ráðalevsislega. „Jú, víst er það spaug—að mæta svona fallegri stúlku heima hjá sér,“ sagði Edward qg hló tröllalega. Og ég segi það satt, að ég átti bágt að mega ekki hlægja líka — að því, hvað frúnni veitti létt að Ijúga, og hvað biskupinn tók út af þvi að veröa að taka þátt í ósannindunum. Ég sá. svo vel, að hún trúði manni sinum ekki fyrir vandræðum mínum. „Ó, því kalla ég hann biskup.“ tók Edward fram í og hló svo hjartan’ega, að mér var meira en nóg boðið. ^

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.