Kennarablaðið - 01.12.1899, Síða 16
48
að biblíusögunámið muni færast í vöxt einnig þar, sem engir
skólar eru, sem fyrsta stig og undirstaða kristindómsfræðsl-
unnar, því að það er hið eina rétta, og það er mögulegt, þótt
börnin gangi ekki í skóla, en verður því að eins til verulegra
bóta, að kenslubókin sé í nokkurn veginn góðu lagi, svo að
börnin geti haft not af því, sem þau lesa í henni.
(f’ramh.)
JJréfíir frd skólunum.
Möðruvallaskólinn hefir í vetur 42 nemendur; fleiri komast
þar ekki fyrir. TJm mörg undanfarin ár heíir mönnum vei'ið
neitað um inntöku í skólann sökum rúmleysis; í haust voru
þeir 20, er sóttu um' upptöku, en gátu eigi fengið. Hvað
gerir þingið og stjórnin til að bæta úr þessu?
Kennararnir í Útskálaprestakalli hafa stofnað félag með
sér. Koma þeir saman einu sinni í mánuði og ræða ýms
■uppeldis- og kenslumál, bera sarnan kensluaðferðir sínar og
reyna að sameina þær sem mest. Árstillag félagsmanna er
2 kr.; er því varið til að kaupa fyrir útlend og innlend
stuðningsrit við kensluna. Félagið gerir sér far um að leið-
beina foreldrum við undirbúning í námsgreinum; heflr það
samið og látið útbýta skrifuðum lestrarreglum handa heim-
ilunum.
Væn ekki reynandi að koma upp fleiri slíkum félögum
víðsvegar um landið? Vér eíumst eigi um, að það væri
mögulegt, ef viljinn væri góður og áhuginn nógu mikill.
Kennarablaðið
kemur út einu sinni á mánuði. Meðlimir
„hins íslenzka Kennarafélags“ fá það
ókeypis, en fyrir aðra kostar það 1 kr. 25 aur. — erlendis 1 kr. 75
aur. — árgangurinn. Borgist fyrir lok júnímánaðar. Skilvísir útsölu-
menn fá 1/5 í sölulaun. Nýir útsölumenn og kaupendur gefi sig fram
sem fvrst.
Útgefandi: Siguebue Jónsson, barnakennari, Reykjavík.
Aldar-preutsmiðja.