Helgarpósturinn - 21.04.1979, Page 1
N-Atlants-
hafsflug
Flugleida
úrsögunni
innan
skamms
Mikil óvissa rikir um framtið
N-Atlantshafsflugs Flugleiða i
kjölfar frjálsræöisstefnu Cart-
er-stjórnarinnar i fargjalda-
málum á þessari flugleiö, sem
leitt hefur til snarlækkaös verös
á fargjöldum þeirra félaga
sem þar keppa og stórlega veikt
samkeppnisaöstöðu Flugleiöa.
Ætla ýmsir aö þetta flug Flug-
leiöa, sem veriö hefur helsta
kjölfestan I rekstri þess á um-
liönum árum, veröi úr sögunni I
núverandi mynd innan þriggja
ára. Inn I þessar ótryggu horfur
fléttast breiöþotukaup Flug-
leiöa og ýmsar hræringar meöal
Luxemborgarmanna. Um þetta
er fjallaö Ilnnlendri yfirsýn
©
Hákarl
glefsar í flug-
mennina o
Muddy
Waters
að end-
urreisa
blúsinn
o
Hin vopnlausa þjóð:
Ræður yfir um
18 þús. byssum
Islendingar státa sig
gjarnan af því að vera
vopnlaus þjóð en þegar
betur er að gáð er langt í
frá að svo sé. Samkvæmt
upplýsingum dómsmála-
ráðuneytisins er talið að til
séu í landinu um 16-18 þús-
und byssur en það þýðir
ein byssa á fjórða hvert
heimili í landinu.
Tölurnar sem hér eru
nefndar eru þó aðeins
grófar ágiskanir, þvi að
engar nákvæmar upplýs-
ingar eru til um það hver
byssueign landsmanna
raunverulega sé né hvern-
ig hún skiptist eftir gerð-
um skotvopna. Og það sem
kannski lakara er — það
eru heldur ekki til nein ná-
kvæm gögn um það hversu
margir islendingar hafi
leyfi til meðferðar skot-
vopna. Or því stendur hins
vegar til að bæta, því að
yfirvöld hafa nú birt aug-
lýsingu þess efnis að allir
þeir sem skotvopn eiga,
verði að láta endurnýja
byssuleyfi sín fyrir
1. maí nk.
Friðrik
próf ar
blada-
mennskuna
©
I
Settu
þig inn í dæmiö
LANDSBANKINN
Sparilán-trygging í fiwntíð