Helgarpósturinn - 27.04.1979, Síða 14

Helgarpósturinn - 27.04.1979, Síða 14
14 ómar 1 Þórscafé „VIUUM BJOÐA UPPÁ MDRA EN BARAfCUST segir Ómar Hallsson i Þórscafé um „floor Show” þeirra ,,Þetta hefur gengið alveg ágætlega”, sagði Ómar Hallsson framkvæmdastjóri Þórscafé, þegar Helgarpósturinn spurðist fyrir um hin svokölluðu ,,floor show”, sem skemmtistaðurinn hefur boðið uppá f vetur. ,,Það er stefnan hjá okkur að hafa þau alltaf annað slagið núna, framá sumar að minnstakosti,” sagði Ómar. en hann á nú i bréfa- skriftum við blakka söngkonu um að koma og skemmta. ,,Við vilj- um gjarna geta boðið uppá aðeins meira en bara i glasiö, og þetta er viðleitni i þá átt” Svo virðist að gestirnir kunni að meta viðleitnina, þvi aösóknin hefur verið ,',alveg geypilega góð”, eins og Ómar komstað oröi. Þórscafé er opið á fóstudögum, laugardögum og sunnudögum, og þar er diskótek, og Lúdó og- Stefán. ,,Það er frekar „eldra” yngra fólk sem kemur hingað,” sagði Ómar. ,,Ungt hjónafólk er sjálf- sagt i meirihluta, og fólk er meira parað en á diskótekunum, enda erum við ekkert inná þeirri linu.” Þeir i Þórscafé hafa nokkuð verið gagnrýndir fyrir að vera strangir og afturhaldssamir i sambandi við klæöaburð gestanna. ,,Við höfum auövitað heyrt þetta” sagði Ómar, ,,en ég er viss um að meirihluti gestanna er þessu fylgjandi. Það er fólk sem klæðir sig upp i betri föt til að fara út að skemmta sér, og það vill hafa hitt fólkið sæmilega klætt lika.” „Auðvitað vitum við að fólk getur verið vel klætt án þess að hafa bindi um hálsinn, en við settum bara visst strik, til að miða við. Það er siðan matsatriöi dyravarðanna hverjum þeir hleypa inn. Það er hinsvegar svolitið athyglisvert að meðan athyglin beinist öll að karlmönnunum, fór að bera á þvi að konurnar væru illa klæddar. Við höfum þvi tekið upp strangara eftirlit með þeim, og árangurinn lætur ekki á sér standa.” Hinn mikli fjöldi matargesta er þó kannski það sem aðstandendur Þórscafé eru stoltastir af. „Við fáum mjög margt fólk i mat til okkar,” sagði Ómar, „enda er einn fremsti matsveinn landsins, Stefán Hjaltested vfirkokkur hérna. Svo höfum við lika lokað stiganum upp, og haft salinn ein- göngu fyrir matargesti. Þá er fólk algjörlega i friði og það virðist lika mjög vel” —GA Föstudagur 27. apríl 1979 —he/garpósturinrL_ Þessa dagana er nú aldeiiis að færast líf f tuskurnar við smábáta- bryggjuna í Hafnarfirði. Grásleppukarlarnir eru nefilega farnir að veiða rauðmaga, sem þeir selja siðan fólki sem kemur til þess að fá sér í soðið. Við brugðum okkur þvi til Hafnarfjarðar, þar sem við höfum haft fregnir af þessu og Gaflarar kalla stoltir fiskmarkaðinn sinn, og lögðum nokkrar spurn- ingar fyrir fólk, sem varð á vegi okkar. Fyrst hittum við þá Gunnar H. Sigurjónsson starfsmann I Gufu- nesi og grásleppukarlinn, Einar Jóhannesson, sem var aö selja honum rauðmaga. — Færðu þér oft rauðmaga Gunnar? „öðru hvoru. Maður fær þetta hérna alveg glænýtt þegar þeir koma aö að landi.” — Og þá þykir þér náttúrlega góður rauðmagi? „Ég er nú hræddur um það. Þegar liöa tekur á veturinn fer maður að biða eftir þessu.” — Mynduröu vilja missa þá að- stööu að geta keypt þér rauðmaga hérna á bryggjunni? „Nei, þá finndist mér nú eitt- hvaö vanta. Yfir þessu er viss blær, að kaupa þetta svona eins og 1 gamla daga beint af bryggj- Gunnar og Einar i rauðmagaviöskiptum. Gaf larar gledjast á grásleppumarkaði — en fisksalar eru ekki jaf n ánægðir unni. Ég álit að þetta sé gamall og góöur sérhafnfirskur siður ” — Nú hafa fisksalar verið óánægðir meö þennan fiskmark- að og telja aö hér sé verið að brjóta lög? „Já, þeir hafa kannski nokkuð til sins mál. Þetta eru svona tvö sjónarmiö eins og gengur og gerist og eitthvaö tekur þetta frá þeim. Þeirra lifibrauð er náttúr- lega að selja fiskl’ Nú gat Einar Jóhannesson ekki lengur orða bundist og skaut inni samræðurnar: „Sko, þaö tiðkast nú allsstaðar götumarkaöir i Paris, London og hvar sem er, svo við erum alveg I sama rétti og aðrir að selja okkar eigin afla hverjum sem okkur sýnist” Aðspurður hvort þeir hefðu mikið upp úr þessu sagði Einar svo ekki vera, það væru aöallega hrognin sem væru verðmæt. sagðist ekki vera raunverulegur grásleppukarl hann væri aðallega i þessu sér til heilsubótar og upp á sport. Hans aöalstarf væri kerskálavinna 1 Alverinu. Hann réri bara á Voninni sinni I vakta- friunum. — Ertu búinn aö fá mikiö? „Ég er búinn að fá tæpar fjórar tunnur eftir þrjár vitjanir og með aðeins 30 net.” — Þá viröist nú útlitiö vera sæmilegt hjá ykkur! „Jú byrjunin er a.m.k. miklu betri en i fyrra. Hins vegar getur þetta allt breyst þegar liða tekur á vertiðina.” — Hvað fáið þiö mikiö fyrir tunnuna? „Ja, ef hún selst þá fáum viö 300 dollara senm_ gera um 100 þúsund krónur.” — Og aö lokum Gunnar. Veröur þetta með grásleppuna árátta hjá ™ ™ —____ u__: „ x i__o komast I þetta.” Nú var Gunnar búinn að fá viðskiptavin. Sigurjón Stefánsson rafsuðumann I Stálvik h.f. Viö snérum okkur aö honum og innt- um hann að þvi hvort hann fengi sér oft rauömaga i soöið. „Jú það geri ég. Mér finnst það einhvern veginn tilheyra vorinu og sérstaklega finnst mér rauðmaginn betri ef maður kaup- ir hann hér á bryggjunni.” — Að hvaöa leyti? „Ég veit það nú ekki. Ætli þaö sé ekki blærinn yfir þessum verslunarmátaý —GSK vio snerum okkur nu ao oorum grásleppukarli, Gunnari Guðmundssyni, sem rétt I þessu var aö koma aö landi. Hann monnum sem Dyrja 1 pessu'r „Já mér finnst það, þvi þegar fram á vorið kemur fer maður allur aö volgna og hlakka til aö Hótel Borg <4 á besta staö í borginni. ^ Diskótek í kvöldog laugardag Hljómsveit Jóns Sigurðssonar og diskótek sunnudagskvöld. Matur framreiddur frá kl. 18 öll kvöld. >• yOJ SKARKOLA- FLÖK BANGKOK Helgarrétturinn að þessu sinni er fenginn hjá Ib Wess- mann matreiðslumeistara Naustsins og auövitaö er þar fiskréttur á feröinni, þvi að fyrir þá er Naustið kannski þekktast. Steikt skarkolaflök Bangkok meö hrisgrjónum, karrýsósu, HP-mynd: Friöþjófur.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.