Helgarpósturinn - 08.06.1979, Page 17
Föstudagur 8. júní, 1979
17
Aðgerðir leikara hefjast á mánu-
dag, ef ekki næst samkomulag
Félag islenskra leikara hefur,
sem kunnugt er, boðaö til aögeröa
fráog með 11. júni hafi ekki náöst
samningar viö rikisútvarpiö fyrir
þann tíma.
Aögeröir þessar fela m.a. i sér,
aðieikarar munu ekki taka aö sér
neinný verkefni fyrir sjónvarp og
hljóövarp, ásamtþvi, aö þeir ætla
að beita fyrir sig erlendum leik-
arafélögum til aö stööva flutning
alls erlends efnis i sjónvarpinu.
Helgarpósturinn haföi sam-
band viö Andrés Björnsson Ut-
varpsstjóra, Ólaf R. Einarsson
formann útvarpsráös og Gisla
Alfreösson, formann Félags is-
lenskra leikara, til aö leita frétta
af málinu.
„Ekkert heyrt enn”.
„Viö höfum ekkert heyrt enn,
en það getur komiö”, sagöi Gisli
Alfreðsson, formaöur Félags Is-
lenskra leikara.
Þá sagöi GisB, aö heföi ekkert
svar borist fyrir mánudaginn 11.
júnl, færu þær aðgeröir sem leik-
arar hafa samþykkt, i gang. Þó
væri ekki viö þvf aö búast aö þær
heföu áhrif strax. Sjónvarpiö væri
aö fara l sumarfri og áhrifin yrðu
litil fyrir þann tima.
„Annars erum viö alltaf von-
góöir fram á siðustu stundu og
vonum þaö besta”, sagöi Gisli.
tJtvarpsstjóri
v U1 engu spá
,,fcg spái ekkert um framhaldið
á þessu.
Það hefur ekkert gerst I mál-
inu, annað en þær yfirlýsingar
sem hafa komið. Leikarar hafa
fariö fram á viöræöur og þvi
verður sjálfsagt svaraö fljót-
lega”, sagöi Andrés Björnsson,
útvarpsstjóri.
Aðspurður um hvenær þaö yröi,
sagöi Andrés, aö þaö yröi I þess-
ari viku. Um innihald svarsins
gathann ekkert sagt,þar sem þaö
væri útvarpsstjóra og útvarps-
ráös aö koma meö sameiginlegt
svar.
„tJtvarpsráð hefur ekk-
ert samþykkt”
„tJtvarpsráö hefur ekkert sam-
þykt I þessu máli. Siöasta bréf
leikara, sem stilaö var til út-
varpsráðs og útvarpsstjóra, kom
til umfjöllunar á fundi útvarps-
ráðs á þriöjudag”, sagöi Ólafur
R. Einarsson formaöur útvarps-
ráös.
— Kemur svarykkartil meö aö
fáleikara tilaöhætta viö aögeröir?
„Það veröa leikarar aö segja til
um. Þaö er ekki okkar aö gera
þaö.
Þaö sem leikarar fóru fram á I
upphafi, voru viðræður um
endurskoöun á samningum, en sú
beiöni var vandlega falin innan
um stóryröi, hótanir og gifur-
yröi. Mér finnst þetta ekki leiöin
til aö hefja samningsviö-
ræöur. Venjulega byrja menn á
að segja upp samningum og hefja
samningaviöræöur á fundum, eri
berja ekki striðsbumbur fyrr en
sýnt er aö samningar takist
ekki. Leikarar viröast gera þetta
á dramatiskari hátt.
Það er útvarpsráö sem hefur
vald til aö ákveöa hve mörg leik-
rit eru gerö. Viö höfum ekki
heimild til þess aö afsala þvi valdi
til stéttarfélags, slikt væri em-
bættisafglöp, en þaö eru leikarar
aö fara fram á. Leikarar alls
staðar á Noröurlöndum hafa ver-
iöaöreyna aö fá ákvöröunarvald-
iö um hve mörg leikrit eru tekin
upp. Þeir reyna þá auövitaö aö
brjótast i gegn þar sem smæstu
hóparnir eru, en þetta er bara
hlutur sem viö getum ekki. Hins
vegar er hægt aö semja um ýmsa
aöra hluti, sem leikarar heföu á-
huga á”.
—GB
Sjónvarpið tekur upp Gauksklukkuna
Sjónvarpið hefur siðustu daga
veriö taka upp sýningu Leik-
brúöulands á barnaleikritinu
Gauksklukkan eftir Sofiu Proko-
févu, sem sýnt var viö góöar und-
irtektir nýliöinn vetur I leikstjórn
Brietar Héöinsdóttur. Ekki er vist
hvenær leikritið veröur á dagskrá
en vafalaust er þaö góð búbót ef
til aögeröa leikara kemur i sum-
ar. Brúðurnar munu ekki vera I
Leikarafélaginu...
Þau mistök uröu I siðasta
Helgarpósti, aö Helgi Skúlason
var sagður vera aöstoöarleik-
stjóri við Paradisarheimt. Hiö
rétta er að Sveinn Einarsson
hefur það verk meö höndum.
Leiðréttist þetta hér með og eru
hlutaöeigendur beðnir velvirö-
ingar á þessum mistökum.
„MIKIÐ
segir Jón Ragnarsson í Regnboganum um hátíðina í Cannes
Francis Ford Coppola leikstýrir atriði I
Apocalypse Now, — myndinni sem sló i
gegn I Cannes. Frá henni segir á bls. 18.
Hinni árlegu kvikmyndahátiö i
Cannes lauk nýlega. Hátiö þessi
er einhver stærsti viðburöur I
kvikmyndaheiminum á ári
hverju. Þær 2-3 vikur sem hátiðin
stendur yfir, eru þarna saman
komin helstu nöfn innan kvik-
myndanna. Þarna er um aö ræöa
samkeppnishátið, auk annarra
smærri hátiða, sem slst eru
minna viröi, þóekki sé eins mikiö
um þær fjallaö i fjölmiðlum.
Samhliöa þessu fer fram mikil
kaupstefna, þar sem framleiö-
endur koma meömyndir sinar og
selja þær.
Jón Ragnarsson, eigandi
Regnbogans, var einn af þeim
sem sóttu Cannesheim á meöan á
hátiöinni stóö. Heigarpósturinn
haföi samband viö hann og baö
hann um aðsegja örlitið frá þess-
ari ferö sinni.
„Ég varþarna i tiu daga ogþaö
var mikið um aö vera. Þetta var
mikið upplifelsi.”
Jón sagði ennfremur, að það
hafi verið skemmtilegur ljómi yf-
ir staðnum. Þar hafi verið mikið
af frægu fólki, og það sem setti
skemmtilegan svip á dvölina i
Cannes hefði verið veðrið, sem
var mjög gott, að ógleymdri bað-
ströndinni. Fólkið sem var þarna
virtist vera mjög fr jálst og glað-
legt.
Eins og við var að búast, fór
töluverður timi I það að skoða
kvikmyndir. Sagöi Jón aö honum
værisérstaklega minnistæð mynd
Francis Coppola, „Apocalypse
Now”, en hún var, ásamt annarri
mynd, valin besta verk keppninn-
ar. (Sjá grein á bls. 18). Var, að
sögn Jóns, mikið vesen að komast
til að sjá þá mynd, sökum þess
hve aðsóknin var mikil. Ekki
gekk eins mikið á til að sjá aðrar
myndir.
Jón festikaup á um 10-15 mynd-
um og meðal þeirra má nefna
„Mirror Cracked”, sem gerð er
eftir sögu Agöthu Christie, „Fire
power” og Prúðuleikaramyndina
eða „Muppets Movie”.
Von á Clark Terry ?
Félagsskapurinn Jazzvakn-
ing, sem á stuttum starfsferli
sinum hefur lifgaö mjög upp á
jazzlif höfuöborgarinnar, hefur
fengiö tilkynningu þess efnis, aö
þeim standi til boöa aö fá hingaö
til lands „big band” Clark
Terry. Ef af því veröur, kemur
hann hingað i febrúar á næsta
ári.
Terry var trompetleikari hjá
Duke Ellington á árunum 1951
til 1959. Siöan hefur hann veriö
með eigin hljómsveitir, bæöi
litlar og stórar. Þó hann sé ekki
eins frægur og hann ætti skitið,
er hann talinn með frumlegustu
trompetleikurum innan jazzins.
— GB
Klúbbkvöld með Duke Jordan
Það var gaman að fá Duke
Jordan I heimsókn. Þetta er i
fyrsta skipti sem þekktur am-
eriskur djassleikari kemur
fram á klúbbkvöldi hérlendis
siðan Booker heitinn Erwin lék
á Hótel Loftleiðum árið 1968. Þá
var það algengt að ameri'skir
djassleikarar á leið yfir hafið
gerðu hér stuttan stans og
djömmuðu með islenskum kol-
legum sinum. Nú eru margir
þeirra er þá stóðu i eldlinunni
hjá Jazzklúbbi Reykjavikur
fluttir úr landi eða hættir að
spila opinberlega og fáir hafa
fyllt i' skörðin. En semsagt: nú
hefur Jazzvakning tekið upp
þráðinn þar sem Jazzklúbbur
Reykjavikur sleppti honum
fyrir rúmum áratug og með
Duke Jordan léku Guðmundur
Steingrimsson á trommur og
Richard Korn á bassa. Klúbb-
kvöldin voru á Hótel Esju á
föstudags og laugardagskvöld
og bar laugardagskvöldið i alla
staði af. Duke Jordan var I mun
betra formi seinna kvöldið og
einnig höfðu meðleikarar hans
kynnst tónlist hans betur.
Þaðerút ihöttaðætla að bera
saman klúbbkvöld sem þetta og
tónleika þar sem listamaðurinn
leikur með eigin hljómsveit.
Duke Jordan kom hingað um
kvöldmatarleytiö á föstudegin-
um og renndi rétt yfir eitt lagáð-
ur en tónleikarnir hófust. Það
þarf ryþmaleikara með mikla
reynslu til að ná árangri í sliku
samspili. RichardKorn leikur á
bassa með Sinfóniuhljómsveit
Islands, en er óvanur djassleik-
ari og þekkir þar að auki ekki
vel til boptimabilsins. Þaö var
þvi engin von til að hann næði
góðuvaldi á undirleiknum. Guð-
mundur Steingrimsson er aftur-
ámóti vanur djassleikari þótt
ekki hafi hann oft leikið með er-
lendum djassleikurum og stóö
hann sig vel. — Piltar við skul-
um vera heiðarlegir hver gagn-
vart öðrum og leika frá hjart-
anu. Enga sýndarmennsku eða
stjörnustæla. Honestly. — Svo
mælti Duke Jordan áðuren tón-
leikarnir hófust.
Efnisskráin var að miklu leyti
byggð á verkum Jordans sjálfs.
Sigildum þemum eins og Jordu
og No Problem svo og nýrri
verkum: lestarstemningunni
The NightTrain From Snekker-
sten og undurfögrum ballöðum,
ss. Two Loves (sem hann lék
einn nokkrum sinnum), I’m
GonnaLearn Your Style og hinni
ellingtonlsku Misty Thursday.
— Ég hef nýlokið við aö hljóð-
rita öli tónverk min fyrir
Steeple Chase, segir Duke.
Þetta eru nærri sjötiu verk sem
ég lék einn á flygil. Ég lifi nokk-
urnveginn af þeim tekjum sem
ég fæ fyrir tónverkin og hljóm-
plötur minar. Þó fer ég alltaf i
tónleikaferðir við og við. 1976
ferðaðist ég um Japan með triói
minu, Wilbur Little á bassa og
Roy Haynes á trommur. Það
var stórkostlegt aö leika i
Japan. Þeir þekktu verkin mi'n.
Eftir nokkra takta af Jordu eða
No Problem klöppuðu þeir. I
fyrra fór ég i tónleikaferð um
Evrópu. Þá leysti Danny
Richmond Haynes af hólmi.
A Hótel Esju lék Duke Jordan
In My Solitudetil heiðurs Mister
Ellington. Það er dálitið merki-
legt að á siðari árum hefur mátt
greina ellingtonáhrif i leik og
tónsköpun þessa gamla bopp-
ara. Og þó — það kemst enginn
djassleikari framhjá mæestrón-
um mikla.
—,Ég á mér draum. Að hljóð-
rita verkmin með stórri hljóm-
sveit. Duke Jordan og hljóm-
sveit hansVDuke Jordan er flog-
inn til Hafnar þar sem hann hef-
ur búið sl. hálft ár. Vonandi
koma fleiri djassleikarar til að
spila með i'slenskumj en þá er
nauðsynlegt að þeir æfi saman
dagstund eða svo áðuren tón-
leikar hefjast.