Helgarpósturinn - 07.03.1980, Page 4

Helgarpósturinn - 07.03.1980, Page 4
NAFN: Ellert Schram STAÐA: Ritstjóri FÆDDUR: 10. október 1939 HEIMILI: Stýrimannastigur 15 HEIMILISHAGIR: Eiginkona, Anna Ásgeirsdóttir og eiga þau fjögur börn BIFREIÐ: Chevrolet Nova '74 ÁHUGAMÁL: Þjóömál, íþróttir og bækur Held að þetta hlidarstökk verdi mér til góðs Föstudagur 7. mars 1980 he/garpásturinn- Nýlega var EUert Schram ráðinn ritstjóri Visis. Mörgum kom þessi ákvöröun á óvart, þar sem ýmsir litu svo á, aö meö þessari ráöningu hafi Vfsir i eitt skipti fyrir öll opinberaö sig sem málgagn Sjálfstæðisflokksins. Ellert Schram hefur setiö á þingi fyrir Sjálfstæöisflokkinn, en féll í siöustu kosningum, eftir aö hafa fært sig sjálfviljugur niöur á framboöslista flokksins. Hann hefur á stunóum veriö nefndur sem hugsanlegur forystumaöur Sjálfstæöisflokksins I næstu framtiö. Vmsir telja aö dagblaöiö Vlsir standi nú höllum fæti á sfödegismarkaönum og saia blaösins hafi dregist verulcga saman. Spurningin er þvi, hvort þaö er stjórnmálamaðurinn eöa blaöamaöurinn Ellert Schram, sem eigi aö snúa þeirri þróun viö. Eliert er i Yfirheyrslu Helgarpóstsins. Hvers vegna ert þú orðinn rit- stjóri Visis? „Þú verður aö spyrja þá, sem tóku þá dkvöröun að bjóða mér starfið.” Hvers vegna var starfiö ekki augiýst laust til umsóknar? „Mér er alls ekki kunnugt um það.” Hverjir buöu þér þetta starf? „Blaðstjórnin.” Geturöu nokkuð áttaö þig á þvi, hvers vegna þér var boöib þaö, en ekki einhverjum öörum? „Ég verð að vona, aö það hafi verið gert vegna þess að ég væri álitinnhæfur I starfið.” Og hvaö gerir ritstjóra hæfan? „Þaö er duglegur maður, sem hefur aflaö sér þekkingar á hinum ýmsu sviöum I þjóö- félaginu og hefur getið sér gott orö i þvi sambandi.” Helduröu aö þaö hafi veriö reynsla þin I pólitik eöa blaöa- mennsku sem hafi ráöiö úr- slitum um aö það varst þú sem fékkst ritstjórastarfiö en ekki einhver annar? „Ja, nú ert þú að spyrja mig spurningar sem aörir ættu frek- ar að svara. En ef ég ætti að giska á eitthvað, þá get ég imyndaö mér að hvorutveggja hafi ráðiðnokkru, auk þess sem ég hef komið viöa viö — vfðar en i blaöamennskuog pólitík.” Nú er reynsla þín i blaða- mennsku vægast sagt af skorn- um skammti. Kemur þessi litla reynsla til meö aö hljálpa þér i - ritstjórastóli? „Tvimælalaust. Ég var viöloðandi Visi i ein fjögur eða fimm ár meöan ég var I námi og allir þeir sem hafa unnið aö blaöamennsku meö slikum hætti — sem eru fjölmargir — þeir geta áreiðanlega borið það með mér, að þaö er góður skóli.” Nú segja illar tungur aö þinn blaðamannaferill hafi ein- skoröast viö „Visir spyr”, „Dagbók” og myndasögurnar. Er þaö rétt? „Ég man nú ekki til þess aö mitt starf hafi einskorðast við það. Langmestan þann tima sem ég var blaðamaður stund- aði ég fréttamannsstörf og skrifaði ærið i blaðið á þeim tima. Hins vegar er ég stoltur af þvi að hafa lika tekiö að mér að þýöa ágætar athugasemdir „Bellu slmastúlku”. Hvaö þýöir þessi nýja staöa fyrir sjálfan þig. Ertuaödraga þig út dr pólitik? „Ég tók örlagarika ákvörðun um það að færa mig til á lista Sjálfstæðisflokksins I siöustu kosningum og tók þá áhættu, sem á stundum verður að taka, hvort sem maður er I pólitík eöa annars staðar. Oöruvlsi vinna menn ekki sigra né ná árangri, nema þeir leggi hart að sér og • taki kannski fulldjarfar ákvarð- anir svona stöku sinnum. Þaö vart hins vegar til þess I þetta skiptið, að ég náði ekki kjöri á þing og þá varö ég að finna mér annaö starf. Og hér er ég kominn.” Er þaö „fulldjörf ákvöröun” — pólitisk ákvöröun — hjá þér, aö taka aö þér ritstjórastarf á VIsi? „Ég lit ekki svo á, að það sé nein pólitisk áhætta I spilinu. Þetta er spennandi verkefni og mér líkar það vel að vera i hringiöunni. Hvaða pólitiskar afleiðingar þetta hefur I for með sér fyrir sjálfan mig, hef ég alls ekki leitt hugann aö. Það er ekki á dagskrá.” Nú eiga fleiri kosningar eftir aö fara fram á islandi. Veröur þú kominn á fulla ferö i pólitik- inni á nýjan leik næst þegar kosiö veröur? „Ég hef ekkert látiö af mínum pólitisku skoðunum eða áhuga á stjórnmálum almennt, þótt ég sé hættur á þingi og kominn I annaö starf. Það skal öllum vera ljóst. Siöan veröur það aö - ráöast i framtiðinni hvort ég gefi kost á mér aftur eða hvort fólk vill yfirleitt kjósa mig aftur. Hins vegar hef ég ekki gert neinar langtimaáætlanir i þessu né ööru, þannig að ég sé að velta þessu fyrir mér núna. Það kemur bara i ljós þegar gengið er til kosninga næst.” Leiðarar Visis munu þar af leiöandi endurspegia skoöanir Ellerts Schram, varaþing- manns Sjálfstæöisfiokksins? „Leiðararnir munu endur- spegla þær skoöanir sem ég hef tileinkað mér á minni stuttu ævi — hvort heldur ég hef aflaö mér skoðana eða þekkingar á stjórn- málasviðinu eöa annars staðar. Ég fer ekki dult með það, aö ég er sjálfstæðismaður og ég geri ráö fyrir þvi aö leií arar VIsis munu bera þess merki.” Er Visir frjáist og óháö dag- blaö? „Já.” Hvernig hittist þaö ætiö á, aö ritstjórar þessa frjálsa og óháöa dagblaös eru jafnan úr sama flokknum — Sjálfstæöis- flokknum? „Ja, Vlsir er borgaralega frjálst blað og margir aðstand- enda blaðsins eru áhrifamiklir sjálfstæöismenn. Þeir vilja sjálfsagt aö blaðið túlki þær lifs- skoðanir sem stefna Sjálf- stæöisflokksins byggist á, þó þar sé ekki verið aö segja aö það fylgi einhverri ákveðinni flokks- klíku I einu eða öðru. Sjálf- stæðisstefnan hefur það sér fyrst og fremst til gildis, að hún er mjög umburöarlynd og opin. Þvl verða það mlnar lifs- skoðanir sem ég túlka i blaðinu og ef þær falla saman við stefnu Sjálfstæöisflokksins, þá er ekkert nema gott um það aö segja.” Þú vilt haida fast viö þaö, aö Visir sé óháö dagbiaö, enda þótt eigendur þess, ritstjórar og margt starfsfóik sé almennt taliö hallt undir Sjálfstæöis- flokkinn — svo ekki sé meira sagt? „Þaö má ekki rugla þvi saman, aö þótt blaö sé óháö, þá megi það ekki hafa neinar skoðanir. Þegar ég segi að Visir sé frjálst og óháð, þá á ég við, aö þvi sé ekki fjarstýrt úr her- búðum Sjálfstæðisflokksins. Við ritstjórarnir eru sjálfs okkar herrar og túlkum okkar skoð- anir, án þess aö taka þær annars staðar frá. Ég legg áherslu á þaö, aö þótt blaðiö sé frjálst og sjálfstætt, þá fer þvi fjarri aö þaö sé skoðanalaust.” Hefðir þú veriö ráöinn rit- stjóri Visis, ef þú heföir t.d. veriö flokksbundinn Alþýöu- bandalagsmaöur eöa óflokks- bundinn Framsóknarmaöur? „Þvi get ég ekki svaraö, en endurtek aöeins sem ég sagði áðan, að ég geri ráö fyrir þvi að ég hafi verið ráöinn vegna minna eigin verðleika og kannski vegna þeirra skoðana sem ég hef sett fram opin- berlega á undanförnum árum.” Veröur ritstjórinn Ellert Schram I stjórnarandstööu I skrifum sinum? „Það fer eftir þvi hvernig rikisstjórnin starfar. Ég er sjálfstæðismaður og legg mest upp úr þvi að landinu sé stjórn- að þannig aö sem mestra áhrifa gæti af þeim málum og mark- miöum sem felast 1 sjálfstæöis- stefnunni. Ef þeir sjálfstæðis- menn sem nú sitja I rikisstjórn- inniná fram slnum málum, sem þeir hafa barist fyrir undir merki Sjálfstæðisflokksins um áratugi, þá fagna ég þvi og mun ekki gagnrýna aöeins gagn- rýninnar vegna. Ég mun sem sagt taka afstöðu til þessarar rikisstjórnar eftir málefnum.” Ef þú sætir nú á þingi, myndir þú fylla flokk þeirra þing- manna, sem fylgja Gunnari aö málum? „Ég hefði ekki virt reglur flokksins né lýðræðislegar leik- reglur að vettugi, eins og ég tel aö Gunnarsmenn hafi gert I aödragandanum að þessari rikisst jórn. En ég tel hins vegar ástæðulaust að vera að fjarg- viðrast meira út af þeim vinnu- brögðum, úr þvi sem komið er og lita frekar á það sem þeir afreka á næstu mánuðum.” Nú er ljóst að Visir sem dag- blað stendur ekki vel I sam- keppni viö hin blöðin og upplag blaösins dregst sifellt saman. ErVisir deyjandi dagblaö? „Ég hef fengið þær upplýsingar, að almennt yfir llnuna hafi veriö erfiðleikar hjá blöðunum. Það á sjálfsagt við um Visi eins og önnur blöö. Mig varðar i sjálfu sér ekki .svo mikið um það hvernig gengið hefur aö undanförnu. Ég lit fram á við og er staðráðinn i þvi, að gera blaðið þannig úr garöi, að þaö verði lesið og keypt.” Nú segja blaöafréttir aö meö- ritstjóri þinn, ólafur Ragnars- son hafi ekkert fengiö aö vita um ráöningu þina fyrr en hún var oröin aö veruleika og sé jafn- framt ekkert of hress meö aö fá þig sér við hlið. Hvaö viltu segja um þetta? „Ég hef ekki hugmynd um það hvenær Ólafur fékk að vita af ráðningu minni. Það stóðu aðrir að ráöningunni og ég veit ekki aðdragandann aö henni. Hitt vil ég taka fram, að mér hefur verið mjög vel tekiö hér á Visi.bæöi afólafi Ragnarssyni og öðru starfsfólki.” Nú eru á Visi ýmsir marg- reyndir blaöamenn.Hvernig er sú tilfinning fyrirþig, tiltölulega óreyndan blaöamanninn, aö segja gömlum og sjóuöum blaðamönnum fyrir verkum? „Ég gef engar fyrirskipanir eða segi mönnum fyrir verkum með einhverri drottnun. Þetta byggist á samstarfi og gagn- kvæmu trausti. AB svo miklu leyti sem ég hef tekiö einhverjar ákvaröanir eða lagt einhverjar linur, þá hefur þaö gengiö bæri- lega framað þessu.” Aðeins til baka — til fram- boösmáianna i siöustu kosn- ingum. Heidur þú, aö þaö hafi veriö röng og fljótfærnisleg ákvöröun hjá þér aö færa þig um sæti á lista Sjálfstæöis- flokksins á sinum tima? Séröu eftir þeirri ákvörðun núna? „Það má vel vera að ákvörðun min hafi veriö fljót- færnislega tekin, en oft eru fyrstu hugsanirnar þær bestu. Vitaskuld er mér söknuður af þvi að sitja ekki á þingi, en ég held að þegar til lengdar lætur, þá muni ég hafa gott af þvl að skiptaum starf Það er ekkert sáluhjálparatriöi fyrir mig að sitja a þingi endalaust og ég held satt að segja að mönnum hætti við að staðna og ein- angrast ef þeir sitja of lengi á þingi. Hvort sem ég á eftir aö koma þangað inn aftur eða ekki, þá er held ég að þetta hliðar- stökk mitt verði mér til góðs og ég sé þá betur hæfur til að starfa og njóta lífsins.” Upp á siökastið hefur þú verið nefndur til ýmissa starfa fyrir hönd flokksins, þ.á.m. sem borgarstjóraefni og jafnvel for- mannsefni. Hefur þú stuðning i þessi embætti? „Það eru margir kallaðir þegar upp koma trúnaðar- eða flokksstörf i Sjálfstæðisflokkn- um eða störf sem hugsanlega gætu falliö i skaut sjálfstæðis- manna og vitaskuld hafa ýmsir veriö að segja mér, aö ég væri hugsanlegur kandidat I svona stöður. Ég hef ekki tekiö mikið mark á þessu umtali og það hefur ekki breytt neinu fyrir mig. Þaö verður einfaldlega að ráöast úr hverju verður. Það fer fyrst og fremst eftir þvi hvað aörir vilja — ekki hvað ég vil.” I Varstu búinn aö leita vlða aö starfi, þegar Visismenn buöu þér ritstjórastööuna? „Nei, ég var nú ekki búinn að leita vlða.” Þú hefur ekkert kikt niður i bæjarútgerð og leitaö eftir togaraplássi? „Jú, ég var reyndar kominn með annan fótinn um borð I Bjarna Benediktsson, en þá vildí svo til að nánast á sömu mlnútu var mér boðiö annaö starf, sem ég tók reyndar ekki*' Hvaöa þrep er þessi nýja rit- stjórastaöa I klifri þinu til met- oröa innan flokksins? „Það er einkennilegt hve margir eru alltaf aö velta fyrir sér svona hugleiðingum og svona spurningum, eins og þú setur fram, þ.e. að menn séu með einhverjar langtimaáætl- anir um frama sinn i pólitlk. Sannleikurinn er einfaldlega sá, aö égvar atvinnulaus og mér bauöst gott starf og ég þáöi það. Ég hef ennþá ekki haft tækifæri og mun ekki hafa áhuga á þvl að mæla þetta starf i frama minum hvorki fyrr né siöar.” eftir Gudmund Arna Stefánsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.