Helgarpósturinn - 07.03.1980, Side 6

Helgarpósturinn - 07.03.1980, Side 6
6 Föstudagur 7. mars 1980-tlslcjdrpOStUrÍnrL- UMSÁTRIÐ UM ÁSTKÆRA YLHÝRA MÁUÐ Hvaö er aö veröa eftir af ást- kæra ylhýra málinu? Þaö hefur vart fariö framhjá ungviöi tsiands, aö þaö talar og skrifar, aö dómi foreldra og kennara, mái sem enginn skilur, nema kannski þaö sjálft. Hnignun málsins hefur veriö áhyggjuefni þeirra sem hugsa um þaö i langan tima, sennilega allt frá þvi aö þeir geröu sér grein fyrir aö Islensk tunga var til. Tungan hefur aö sjálfsögöu tekiö stööugum breytingum, þó þær séu smávægilegar miöaö viö breytingar á t.d. dönsku eöa ensku. Þær veröa hinsvegar stöö- ugt örari, ekki sist meö tilkomu sjónvarps og hinnar miklu fjöi- miölunar hér á landi. Samgöngur til og frá landinu hafa sömuleiöis aukist grlöarlega. C abi.og Vísir En hversu miklar hafa breyt- ingamar oröiö? Ef reykvfskur unglingur niitímans og unglingur lir sveit fyrir 50 árum hittust, mundu þeir skilja hvorn annan? „Þaö er erfitt aö svara þessu”, sagöi Stefán Karlsson, handrita- fræöingur I spjalli viö Helgar- póstinn. „Það er margt i oröfæri unglinga nU, svo sem tökuorö og nýjar merkingar eldri oröa, sem sveitastráknum gengi illa aö skilja. En veigamesta breytingin er aö minu mati á framburöinum, sem er smám saman aö veröa miklu óskýrari en hann var. 011 áherslulitil sérhljóö eru oft borin fram eins”. „Ég man eftir þvi þegar ég var nýkomiimtil landsins eftir langa Utiveru aö ég spuröi aö gamni mlnu nokkra málfræöinga hvaöa orö þetta væri sem beygöist: „si-- nan-sum-sa”. Þeim varö svara- fátt, en þetta er allt sem yfirleitt heyrist af: „þessi-þennan-þess- um-þessa”. „Meöal þess sem ég tel aö standi i mestri hættu er mjúka g hljóöið og ö. Ef viö tökum sem dæmi setninguna: Hættu þessu, þá er eölilegur framburöur hættuöessu, en nU segja flestir hættessu. Stafurinn ö hverfur og þaö hefu r I för meö sér aö sérhljóö lenda saman. Varöandi mjUka g hljóöiö hef ég tekiö Dagblaöiö sem dæmi. Þar hverfur bæöi g og ö I framburöi og veröur Dablaiö. Og þegar sölu- börnin hrópa „Vlsir” á eftir er aöeins „Dabl” eftir. „Dabl og Vísir”. Viö svona brottfall og veiklun sérhljóöa er beygingakerfiö i hættu, þar eö þaö er reist á þrem- ur mismunandi sérhljóöum og endingum. Þetta er svipuö þróun og hefur átt sér staö I dönsku og norsku”, sagöi Stefán Karlsson. Fábreytt orðaval Guöni Kolbeinsson, islensku- fræöingur, taldi minnkandi oröa- foröa og fábreytni i orðavali helsta einkenni Islenskunnar i dag. „Ég tel aö þetta stafi ab verulegu leyti af aöskilnaði kyn- slóöanna sem þjóöfélagiö býöur uppá. Islensku þjóöfélagi má eiginlega skipta I þrennt — börn, vinnandi miöaldra fólk, og gamalmenni. Börnin og gamal- mennin eru á stofnunum i sitt hvoru lagi og hafa litiö saman aö sælda, og foreldrarnir Uti aö vinna. Fjölskyldan hittist svo framan viö sjónvarpiö á kvöldin”. Ensku áhrifin Baldur Jónsson, dósent, og for- maöur Islensku málnefndarinnar, benti á áhrif enskunnar á máliö, og þá ekkieinungis i samband viö sjónvarp og fjölmiðlun, heldur Hvert stefnir ís/enskan á tímum örra þjó ð féla gsbreytinga ? Stefán Karlsson: „Hættessu” Kristján Arnason: „Málfræöing- ar ekki sjálfskipaðir til aö hafa vit fyrir fólki” einnig i sambandi viö skólana. „Enskan smýgur allsstaöar”, sagöi hann, „og af meira afli en flestir gera ráö fyrir. HUn er geysilega ágeng. NU fara svo margir til náms i enskumælandi löndum og læra þar slnar fræöi- greinar. Þegar þeir koma heim kunna þeir ekki aö segja frá sinum fræöum á Islensku.” Islensk málnefnd var stofnuö fyrir um 17 árum og á aö hafa þaö hlutverk aö veita ráðleggingar i sambandi við málið og aö semja ný orö. Málnefndin hefur hins- vegar litiö starfaö, vegna peningaskorts. „Viö höfum slegiö slöku viö i málvernd aö undanförnu”, sagöi Baldur. „Segja má aö viö höfum týnt Ur um 15 árum. Viö þurfum aö breyta um stefnu i þessum málum og halda vel á spöðunum. A þessum fimmtán árum hefur komiö sjónvarp.stóriöja, sam- göngur viöUtlönd hafa stóraukist, ný tækni, t.d. tölvutækni hefur rutt sér til rUms, ný deild, verk- fræði og raunvisindadeild hefur oröiö til viö háskólann, og þannig mætti lengi telja. Jafnframt öllum þessum miklu breytingum á þjóölifinu hafa áhrifin frá sjálf- stæöisbaráttunni veriö aö dofna. Fólk um þrftugt man ekki eftir sjálfstæðisbaráttunni, en tungu- máliö kom þar mikið viö sögu”. Aö framansögöu má ljóst vera aö máliö hefur tekiö töluveröum breytingum á siöustu árum og áratugum. En kemur þessi þróun til meö aö halda stööugt áfram, og hvaöa mál komum viö meö aö tala eftir um þaö bil 20 ár? Hægfara málbreytingar „Tungumál eru háö svo flóknum lögmálum, aö þaö er næstum Utilokaö aö spá um hvernig þau þróast”, sagöi Krist- ján Arnason, málfræöingur. „Sagt er aö málbreytingar gangi svo hægt fyrir sig aö fólk taki ekki eftir þeim, og á tuttugu árum ættu ekki nein ósköp aö hafa gerst. Björn Guöfinnsson geröi t.d. ýtarlega Uttekt á framburöi áriö 1940 og þó ýmislegt hafi auövitaö breyst er framburöurinn i stórum dráttum likur”. „Þaö hefur veriö rikjandi I okkar samfélagi aö horfa aödáun- araugum til fortiöarinnar. Þaö getur vel veriö aö þetta sé aö breytast, og annaö gildismat aö taka viö. Hversu djUpstætt þaö er, eöa veröur, veit ég ekki. 1 alþjóö- legum samskiptum, sem alltaf eru aö aukast, er þægilegt aö hafa sameiginlegan oröaforöa, eins og nU er i mörgum fræöigreinufh. Slikt gæti hægléga færst yfir áal- mennari mannleg samskipti. Alþjóöahyggjan, sem svo er kölluö hefur einnig mjög liklega áhrif”, sagöi Kristján Arnason. Nútíma íslenskan lítt rannsökuð Guöni Kolbeinsson benti á aö menn vita svo litiö um nUtima is- lensku aö erfitt er aö spá nokkru. „Þaö hefur litiö sem ekkert veriö rannsakaö hvort hér er stétta- málfar, eöa hversu mikil áhrif menntun hefur á málfar”. „NU fer sjónvarpskynslóöin aö ala upp börn”, sagði Guöni, „og ekki er gott aö segja hvaöa áhrif sjónvarpiö, þar sem mest allt fer fram á erlendum málum, hefur. Ég hef á tilfinningunni aö þaö sé alls ekki til bóta fyrir vaxtar- þroska og viögang Islensks máls”. Málpólitík A undanfömum árum hefur málpólitfk veriö talsvert til umræöu i fjölmiölum, og menn ekki á eitt sáttir. Sumir telja þaö mál rétt sem fjöldinn talar, og skipti þá ekki máli þágufalls- „sýki”, eöa annaö þaö sem oft hefur verið taliö rangt mál. Þeir benda á allar þær gifurlegu þjóö- félagsbreytingar sem hér hafa orðiö á siöustu áratugum, og segja aö málfar bændasam- félagsins eigi ekki viö, og sé nánast ónothæft. Máliö veröi aö fá aö þróast án afskipta örfárra fræðimanna sem vilji hafa vit fyrir fjöldanum. „Þaö er mesti misskilningur aö fræöimennirnir eigi aö hafa vit fyrir fólkinu”, sagöi Kristján Arnason. „Þeir eru ekki sjálf- skipaöir, en ef fólk vill láta mál- fræðingana hafa áhrif, þá hafa þeir þau. En fólk getur lika látið ráöleggingar þeirra sem vind um eyru þjóta”. Hvaöa stefnu á aö taka 1 mál- vernd? „Mín skoðun er sU aö gera eigi tilraun til aö draga Ur breyt- ingum”, sagöi Stefán Karlsson, „þannig aö fólk skilji eldra mál, og fólk allsstaðar af landinu skilji hvert annaö. Lang brýnast er að gera átak í skýrum lestri, og frá- sögn, óbundinni af texta. Þetta þarf aö koma fyrst, vegna þess aö án stuönings i skýru talmáli ræöur fólk ekki viö ritmáliö”. Guöni Kolbeinsson benti á þá leiö aö stefna saman stofnana- kynslóðunum, gamla fólkinu og börnunum. „Ég vil breyta þeirri þróun sem átt hefur sér staö, þannig aö ungt fólk setji metnað I aö tala og skrifa bærilegt mál. Þaö á ekki aö vera nóg aö gera sig skiljanlegan. Aróöur og auglýsingar hafa mikiö gildi nUna, og þaö getur vel veriö aö meö mikifli slikri herferö næöist góöur árangur. Ef fólki væri sifellt bent á aö vanda mál sitt er liklegt aö þaö heföi áhrif. Málið og þjóðernið Atvinnuhættir hafa breyst og orötök sem áöur voru algeng eru nU minna notuö. 1 staðinn ættu aö koma ný, en fólk sem les islensk- ar bókmenntir hefur þau gömlu á takteinum. Þaö veröur aö halda tengslum viö fortiöina, og þaö veröur ekki gert ööruvisi betur en meö varöveislu málsins.” Baldur Jónsson sagöi spurning- una um framtiö málsins oft hafa komið upp áöur, og alltaf heföi sama niöurstaöan fengist. „Segja má aö eina siöferöislega skyldan sem okkur er lögö á heröar sé aö halda uppi þessari sérstöku menningu, sem viö höfum fengiö I arf. Þaö gerum viö einungis meö þvi aö halda lifinu i islenskunni. Kannski gefumst viö upp einn góöan veöurdag og förum aö tala ensku, en um leið köstum viö þjóöerninu. Þessarar spurningar hefur oft veriö spurt, og svariö hefur alltaf veriö á sama veg. Þaö á aö reyna aö halda lifinu i Islenskunni”. Má/fræðingar áhyggjufullir og óttast framburðarbreytingar, fábreyttan orða- forða og ensk áhrif Guðni Kolbeinsson: „Fjölskyldan Baldur Jónsson: „Enskan smýg- hittist fyrir framan sjónvarpið”. ur allsstaðar”.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.