Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.03.1980, Qupperneq 22

Helgarpósturinn - 07.03.1980, Qupperneq 22
22 Föstudagur 7. mars 1980 he/garpásfurinn BLAÐAMAÐUR í EINN DAG... 1 sjónvarpsþættinum sem ég greindi frá I upphafi fyrri greinar voru viötöl viö fólk, sem heldur þvi fram aö þaö hafi haft sam- band viö verur frá öörum hnött- um, sumir feröast meö þeim, tveir þekktu vélfræöi diskanna (veltaeinsogkajakáókyrru vatni, aölæg eöa fráhverf verkun á aödráttarafl vegna samstæörar hleöslu viö þaö eöa gagnstæörar því). Þessu fólki bar yfirleitt saman i veigameiri atriöum og áberandi var, eins og jafnan þegar fólk ber furöu sinni vitni, aö þaö tengdi reynslu sina þvl sem þaö einkum hefur af öryggi sitt og sjálfsskilning. Viröulegur Breti var kominn áleiöis I jóka þegar hann var valinn sem milligöngu- maöur. Einn haföi séö Krist I geimfari. Annar öölast yfir- náttúrlega hæfileika viö aö sjá stjarnbúa o.s.frv. Slikur sam- breiskingur trúarlegra og tækni- legra upplýsinga er ekki þess eðlis aö hann geri hinar tækni- legri léttvægari. Þvert á móti er ástæöa til aö ætla aö sæmilega heilbrigt fólk gripi til einhverra slikra hugmynda þegar nógu hart er aö þvl gengiö um skilning á þvl sem fyrir það ber. Einn tjaldar yfir sig og slna I steinborg á Mars og biöur hjálpræöis frá gagnsæj- um verum. Annar fær þá hug- mynd aö honum sé ætlaö aö bæta mannllfiö af meiri háttar valda- stólpum þegar hann vaknar aö morgni úti I skógi og minnist þess eins af feröum slnum þá nótt aö bíll hans var staddur undir mikilii ljdskeilu og hvinur i eyrum hans ætlaöi aö æra hann, leiö út af, kominn hálfa leið út úr bflnum. Fátt er mannlegu eöli erfiöara en afbera reynslu sem ekkert nafn hefur. Visindin orsaka trúnaðarrof Meiri hluti Bandaríkjamanna trúir aö fljúgandi furöuhlutir séu yfirnátturleg fyrirbæri, óútskýrö af vísindum liöandi stundar, segir dr. JacquesValle sem lagt hefur stund á rannsókn þessara fyrir- bæra,I viötali i timaritinu Omni. Trú manna á aö samband náist viö siömenningu á öörum hnetti vex stööugt. Sllkir áhrifaþættir gætu breytt menningu okkar, seg- irl sama viötalinu. Nú um stundir skapast menningarkimar I trúnaöarrofum sem visindi hafa orsakaö meö einangrunarstefnu. Þótt tjáningarháttur þeirra sem þeim tilheyra sé órökréttur svar- ar hann á tilfinningalegu og and- legu sviöi til þarfar I menningu okkar sem visindi hafa sniögeng- iö gersamlega. Trúi menn þvl aö eitthvaö sé raunverulegt er þaö I afleiöingum sinum veruleiki, seg- ir dr. Valle. Og staöreynt er aö fjöldi fólks hefur bundiö vonir sina viö samband viö ómennskar vitsmunaverur, m.a. hefur tortryggni viö yfirvöld leitt til þessarar niöurstööu. Og þessi trú leiöir án vafa til fólagslegra breytinga, jafnvel til sölulegra umskipta. Af mörg þúsund frá- sögnum um fljúgandi furöuhluti dregur dr. Valle upp þá mynd af fyrirbærinu aö þaö sé saman þjöppuö rafsegulorka á örbylgju- stigi og engan veginn sé gefiö aö um flugfar sé aö ræöa jafnvel þótt hegöun fyrirbærisins sé aö einhverju leyti vitsmunaleg. Fy rirbæriö hegöar sér ekki I sam- ræmi viö kenningar eölisfræöinn- ar né hugmyndir almennings um tima og rúm. Birtan afmarkast en dreifist ekki meö hinum kunnuglegri hætti. I sumum dæmum minnkar fyrirbæriö, sjálflýsandi, disklaga, og hverf- ur. Sllk fyrirbrigöi eru þó ekki óþekkt, hvorki i öreindafræöi né stjarnfræöi. Og útiloka ekki aö um annaö en hugarburö sé aö ræða. En Valle telur reyndar vissu fengna fyrir aö svo sé. Likamlegar afleiöingar af aö lenda á vegi fljúgandi furöuhlutar eru I mörgum dæmum sam- svarandi flogaveiki. Ofsjónir, ráövilla og missir timaskyns um skeiö. Einnig stjórnar á llkams- hreyfingum. Og jafnvel I sumum tilfellum tímabundin blinda. Stundum sjást verksummerki á likamanum. Fimm ágiskanir um eðli fyrirbæranna Dr. Valle telur upp fimm ágisk- anir um hvers eölis þetta fyrir- bæri sé. I fyrsta lagi geimskip. Auk tilgreindra raka nefnir hann að firösjár, sem aö staöaldri er beint upp I heimingeiminn, veröa ekki varar viö aöflug eöa brott- flugsllkra geimfara. Aftur á móti eru til allmargar skýrslur, sumar hernaöarlegar, um þvilik fyrir- bæri sem komiö hafa fram á firösjám meö lágréttum geisla — merktar óútskýrt. Ef gert er ráö fyrir aö um könnunarför sé aö ræða frá öörum hnetti eöa hnött- um veröur vandséö hvers vegna sllk mannleg hneigö hafi komið upp i heimi þar, hvers vegna geimbúar hafi sambærileg skynfæri viö okkar. Fólki ber yfirleitt saman I lýsingum slnum á sllkum verum. Samkvæmt þeim eru þær flestar ekki aðeins manneksjulegar I útliti heldur ganga um eölilega og hllfalaust, a.m.k. sumar hverjar. Og þaö er hægt aö lesa tilfinningar slíkra vera úr svipnum. Þaö væri nær lagi aö állta sllkar llfverur hug- vitssamlegar eftirllkingar af manneskjum en gera ráö fyrir aö þær væru beinlínis ibúar annars hnattar. Liklegri ágiskun er aö um menn sé aö ræöa eöa imyndir manna. Llfkerfi annars hnattar gæti ekki náð slikri samsvörun nema um ræktun sé aö ræöa. Menn sem bera þvi söguna að hafa komist I tæri viö geimverur hafa verið dáleidd; r og ástæöa er til aö ætla aö frásögnin heyri til veruleika sem sé sjálfra þeirra en ekki nauðsynlega þeim almenna. Upplifuninni fylgir ekki alltaf snertiskyn sem ætti að fylgja væri hún ekki aö öllu leyti sálræn. Onnur skýring á fljúgandi furöuhlutum er sú aö um mann- legar gerðir sé aö ræöa. Samtök einhverra valdhafa um tilraunir og aö þær hafi þessi áhrif. Ekki er hægt að útiloka þennan möguleika. 1 þriöja lagi er full ástæöa til aö gera ráö fyrir hliöstæöri þróun við þá sem eölisfræöi hefur tekið út. Og þar meö allt annarskonar tæknifræöi. Hafi einhver rambaö inn i aöra vidd, sé tekið svo til oröa hafi þaö leitt til framvindu fræöa sem fari leynt. 1 fjóröa lagi geta fljúgandi furöuhlutir veriö fjarskipti. 1 heild viöleitni geimbúa til aö hafa samskipti viö jaröarbúa og fari fram einmitt meö þessum hætti til aö undirbúa okkur. Tölvurann- sóknir á upplýsingum um fljúg- andi furöuhluti sýna að sllkir at- buröir veröa meö nokkuö glöggri hrynjandi. Einkum á nóttunni. Stigandi eftir sólarlag til tólf. Dvínandi fram eftir nóttu. Og magnast undir morgun. Og hrynjandi sem spannar mun lengra tlmabil. Galupkönnun hef- ur leitt I ljós að meö hverri sllkri bylgju vex trú bandarísks al- mennings á fljúgandi furöuhluti. Hvert einstakt atvik þarf ekkert aö merkja I sjálfu sér, en gæti þó veriö liður I sllku stjórnkerfi. 1 fimmta lagi gætu fljúgandi furöuhlutir veriö afleiöing lög- málsbundinna þarfar fyrir jafn- vægi meðal lffvera, manna sem mótaö hafa sér einhliða hug- myndir um veruleikann, hinar eölisfræöilegu. Þær hugmyndir fjalla um orku og ekki hiö vits- munalega I þætti sem þó I ein hverjum mæli er eigind tilver- unnar. Þ.e.meövitund manna og hinna æöri llfvera sem viö köllum svo. Sé orka og upplýsingar tvær hliöar sama máls má gera ráö fyrir aö eölisfræöi orkunnar eigi sér tvlburasystur sem hafi týnst einhvers staöar á leiöinni. Sálfræöingurinn Karl Jung út- skýröi fljúgandi furöuhluti á sina vísu. Megingeröir sálarllfsins voru aö hans hyggju sannanlegar Imyndir sem bárust I drauma manna. Ullu nokkru um þroska persónuleikans og voru fyrir- myndir um virðingar og mark- miö. Áréttaöar meö styttum og spaklegumfrásögnum. Náttúrleg þróun manna sem dýrategundar haföi innprentaö þessi leiösögu- hnoöa I sálarlifiö. Ósjálfráö hneigð til aö veröa eitt fremur en annaö átti rætur sínar I sllkum megingeröum. Og þær I sam- eiginlegri dulvitund, -Samkvæmt kenningu Jung eru fljúgandi disk- ar tákn I frumsjálfinu yfir ástand þess þegar það hefur náö þvi þroskastigi aö vera sér fyllilega vitandi um sig sjálft. Útlitsmynd þessa fyrirbæris, reglulegu bjúg- laga formi þess, fylgir fullnægju- kennd og feguröartilfinning. Aö sjá fljúgandi disk er samkvæmt þessari kenningu skyndileg til- færsla af einu þroskastigi á ann- að. Og likindin öllu meiri fyrir aö þroska manns vindi fram jafnt og þétt og ekki meö slikum umbrot- um. Þessi kenning er I góðu sam- ræmi við þá staðreynd hve mjög hefurfærst I vöxt aö menn upplifi fljúgandi furöuhluti, efnishyggj- an sem dr. Valle ræddi um hefur einmitt hamlaö gegn því aö menn upplifi sjálfa sig djúptækt. Og kenning Jung er hliöstæð ágiskun Dr. Valles um eölisfræöi upplýs- inga sem leiti jáfnvægis viö eölis- fræöi orkunnar vegna skorts á viöurkenningu. Hvort tveggja lýsingin er fullt eins trúveröug og þeirra sem leita til annarra hnatta um ráöningu gátunnar, og lenda þar meö i útstööum við eigin Imyndunarafl sem hlýtur aö gera ráö fyrir ótæmandi skýr- ingarkostum úr þvi. Sálfræðilegar skýringar Mér hefur oröiö tlörætt um sjónvarpsþátt I þessu máli. Jafn vönduö heimild og hver önnur. Þar kom fram að miölar flytja mönnum boö frá stjarnverum nú- oröiö. Miöilsgáfa er geöklofning- ur hvort sem aukasjálfin eru að- fengin eöa heyra til miðlinum sjálfum, sálgerö hans er af þvl tagi. Algengt er að veruleikaskyn manns breytist viö reynsluna, hann öölast aö eigin skilningi yfirnáttúrlega ' hæfileika, miöils- gáfuna, llknarmátt, skyggni o.s.frv. Stundum eru sérfróöir menn I læknisvlsindum til vitnis um þetta. Kona ein, sem orðin var handbendi stjarnveru að ætlun hennar, haföi i frammi tilburöi til lækninga I öörum sjónvarpsþætti hér fyrir nokkru. Ekki fréttist hvernig fór. Að vlsu er full ástæöa aö ætlaaösvo framandi reynsla sem mót viö fljúgandi furöuhlut hafi geöröskun I för með sér, veki upp hugaróra og gefi viðkomandi trú á skýringaleiðir um tilveruna sem hann hefur áöur sniögengiö. En andlegur þroski getur ekki veriö afleiöing sliks móts sé allt sem sýnist. Sllk umskipti leiöa likur aö sannleiksgildi sálfræöi- legrar skýringar á öllu saman. Jafnvel sá sem fremstur er I túlk- un Kirilan ljósmynda, Rússi^hef- ur verið yfirheyröur I þaula um kraftbirtingarljóma diskanna. Hér er um að ræöa ljósmyndun á útgeislun lífvera, geislabaugum. Hann segir hiö hvlta ljós þeirra samskonar og hugleiöslunnar, þess upphafna. Kirilanmynd af miöli sem stjarnvera talaöi I gegnum, aö sögn miölilsins, sýndi mikla hvíta útgeislun. Blátt er næsta stig fyrir neöan I hreinleika hugsunarinnar. Hvort sem þessi fyrirbæri veröa rakin til llfvera a' öörum hnöttum eða ekki eru þau tim- anna tákn. Það er sýna svo aö ekki verður fram hjá horft aö aö- feröir sem 20. aldar maðurinn hefur sniöiö sér til aö byggja á veruleikaskyn sitt, er honum ónógar I þeim mæli aö líkja má viö hugmyndalegt gjaldþrot. Kenningakerfi eölisfræöinnar spanna ekki stjarnfræöileg fyrir- brigöi eins og svarthol t.d. og sálfræöin ekki hugsanaflutning og milliliöalaus áhrif viljans á fram- gang atburða sem þó eru tölfræöi- lega skoöaöar staöreyndir. Þörf fyrir sameinandi formúlur yfir þessar fræöigreinar og llffræöi er mikil og liggur I alfararleiö. Menn finna ekki tjáningarhátt yfir innri vissu á hinum fræöilega oröaforöa. Nú þegar ekki veröur lengur aliö á trú á slfellda fram- þróun efnislegrar velmegunar og samhliöa hinni stigvaxandi ham- ingju manna styrkist þörfin fyrir djúpstæöari sjálfsvitund,andlega fullnægju, henni er svarað meö vlsindaævintýrum I kvikmynda- húsum og sjónvarpi. Og á eigin vegum meö móti viö fljúgandi disk. Þorsteinn Antonsson skrifar síðari grein um fljúgandi furðuhluti

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.