Helgarpósturinn - 21.03.1980, Side 15
15
Það er ósk okkar að á þessurn vetri þurfi menn ekki að moka aftur snjó af tröppum simum
. ■■■ •■;
skinn
Stjörnuskóbúöin
Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói
— Sími 23795 — Póstsendum
FROSKARIFISKABÚRIÐ
Froskar eru algeng dýr I
tjörnum i suðlægum löndum og á
siðkvöldum má oft heyra kva kið i
þeim langar leiðir. tslendingar
hafa ekki verið svo lánsamir að
hafa slik dýr i tjörnum landsins.
Nú geta menn þó leyft sér þann
munað að hafa froska heima i
stofu hjá sér, þvi Gullfiskabúðin i
Aðalstræti er farin að selja þessi
dýr.
Að sögn Hans Larseri hjá
Gullfiskabúðinni eru þeir froskar
sem þar fást vatnafroskar og er
boðiö upp á tvær tegundir. Minni
tegundin er 5-7 sentimetrar að
lengd, en sú stærri 10-12 senti-
metrar.
Ahugamenn um froska geta nú fengið sér einn eða tvo i fiskabúrið.
„Þeir þurfa hita sem er á milli
22 og 26 gráður og þeir éta venju-
legt fiskaföður, og fisk og rækjur,
eftir þvi hvað menn hafa við
hendina.
Þeir koma hingað frá Englandi,
en ég held að upprunalega komi
þeir frá Singapour, eða frá þeim
slóðum.”
Hans sagði að þeir væru búnir
að selja þó nokkur stykki af
froskum. Minni tegundin hefði
fengist af og til, en þetta væri i
annað skipti sem þeir stóru
fengjust hér.
Ekki sagði Hans að það væri
neitt erfitt að hafa dýr þessi i
húsum, þvi þeir gætu verið I
fiskabúrum, meö gullfiskum,
einkum minni tegundin. Þó væri
vissara að hafa stærri tegundina
ekki með smáfiskum, þvi
hættaværi á að froskarnir ætu
fiskana.
Aðspuröur um hvort það vildi
ekki bera mikið á þvi, að froskar-
nir dræpust hjá fólki, svaraði
Hans þvi til, að svo væri ekki.
Sem dæmi nefndi hann, að fyrir
4-5 árum heföu þeir fengiö 5
stykki sem sýnishorn og hefði
dóttir eiganda verslunarinnar
fengið einn, og væri sá lifandi
enn. Hans sagðist vita að sumir
froskar lifðu upp undir 20 ár en
hann vildi ekki segja neitt um þá
sem þeir hefðu. Þó virtust þeir
minni lifa i 3-5 ár eftir þeirra
reynslu.
-GB.
Maðurinn á bak við nafnið:
Jón Órn Marinósson fréttamaður
Jón örn Marinósson aó starfi i útvarpinu.
A sígilda tónlist blusta ég
Jón örn Marinósson er nafn,
sem margir hlustendur rikisút-
varpsins kannast eflaust við. En
Jón örn er meira heldur en bara
nafn og rödd. Helgarpósturinn
sló þvi á þráöinn til hans og
spurði hann fvrst hvaöan hann
væri.
„Ég er úr Reykjavik, fæddur
og uppalinn I vesturbænum og
hef alltaf átt þar heima”, sagöi
Jón örn.
Foreldrar Jóns eru báöir
Reykvikingar, en ef farið er
lengra aftur, koma þau úr Fló-
anum.
Jón örn starfar sem kunnugt
er sem fréttamaöur hjá útvarp-
inu og var hann næst spurður að
þvi -hvernig hann hafi hafnaö i
þvi starfi.
„Ég einfaldlega sótti um það,
þegar ég var búinn meö mitt
lögfræðinám i Háskólanum. Ég
byrjaði aö vinna þar i október
byrjun 1974”.
— Ætlaðiruþér kannski álltaf
að verða fréttamaöur?
,,Ég hef alltaf haft svolítinn
áhuga á fjölmiðium og var áður
hjá sunnudagsblaöi 'TImans,
skrifaði fyrir það viðtöl og
greihár”.
— Nú ert þú meö tónlistarþátt
á laugardagskvöldum i útvarp-
inu, hvað kom til að þú tókst aö
þér þennan þátt?
,,Þegar hlustendakönnunin
fór fram i sumár, var fólk áö
kvarta undan því að það væri
allt of mikið gert af þvi aö spila
tónlist án þess aö segja frá
henni nánar, eða að reyna aö
matreiða hana svolftið til.
Éghef alltaf haft gaman af þvi
að hlusta á klassiska tónlist og
hef lesið mér til um hana i fri-
stundum. Mér flaug þvi I hug að
prófa að breyta eitthvað til
þarna og lagði þetta fvrir tón-
listardeildina og spurði hvort
þeir heföu hug á þvi að fá svona
þátt. Þeir höfðu þaö og þá varð
þetta úr”.
— Hefuröu fengið einhver
viðbrögð á þennan þátt?
„Ekki get ég nú sagt að það
hafi verið nein ósköp, en það
hafa nokkrir slegið á þráðinn til
min og þakkað mér fyrir”.
Jón örn sagði að sér fyndist
laugardagskvöldin ekki ^góður
4Imi fyrir svona þátt. -Menn
hugsuöu yfirleitt um annað en
sigilda tónlist á laugardögum,
og hann lika, en hann réöi engu
um útsendingartimann. Þaö
yröiað sætta sig við hvar manni
væri holað niöur.
Um aðra tónlist sagði Jón
örn, að hanngæti haft gaman af
öllu, en áhuginn væri mestur
fyrir sigildri tónlist. A hana
hlustaði hann og setti sérstak-
lega plötu á fóninn, en um aðra
tónlist færi þaö méira efttr þvi
hvernig hann væri upplagöur.
— Attu þér eitthvert upp-
áhalds tónskáld?
,,Eg get ekki nefnt nein
ákveðin nöfn, það fer eftir þvi i
hvaða skapi maöur er. Ég er
yfirleitt alæta á hvað sem er”,
sagði Jón örn Marinósson
fréttamaður.
—GB
1930
1980
Hótel Borg
, , „ i fararbroddi
FostudagsKvoio:
Nýtt rokk o.fl. óskar Karlsson frá „Disu” kynnir.
Laugardagskvöld:
Diskó — islenskt —
Rokk og rói. Gömlu dansarnir, sýningaratriöi.
i kvöld sýnir Siguröur Grettir hinn úthaldsmikli og
snjalli diskódansari. Plötusnúöur kvöldsins Magnús
Magnússon frá „Disu” stjórnar danstónlist fyrir aila
aldurshópa.
20 ára aldurstakmark. Persónuskilriki og spariklæönaöur
skilyröi.
Sunnudagur:
Gömiu dansarnir frá kl. 9-01, Hijómsveit Jóns Sigurösson-
ar ásamt söngkonunni Kristbjörgu Löve, Disa i Hléum.
(Ath. Rokkótek eöa lifandi tóniist á fimmtudagskvöldum.)
Auglýsingasíminn er 8-18-66