Helgarpósturinn - 11.04.1980, Side 5
5
he/garpósturinn.. Föstudagur 11. apríl 1980
# Það var i þinginu fyrir páska
að Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður var að flytja eina af sínum
lærðu ræðum um landbúnaðar-
mál. Undir þeirri ræðu sat meðal
annarra Sighvatur Björgvinsson.
Horfði Sighvatur lengi á ræðu-
mann, hlustaði og hugsaði sitt og
fæddist þá þessi visa sem hann
siðar sagði vinum sfnum:
Allra sistur er’talinn,
okkur list hann glópur.
Stendur á blistri striðalinn
Stefán þrýstihópur!
9 Annars virðist Stefán Val-
geirsson uppáhaldsskotspónn
kratanna eða popp-kratanna, eins
og framsóknarmenn kalla þá oft,
enda kannski ekki að furða vegna
þeirrar hyldjúpu gjáar sem er
milli landbúnaðarafstöðu þessara
tveggja aðila. Við heyrðum til
dæmis þá sögu, að þegar sölu-
skattshækkunarmálið v.ar á dag-
skrá rétt fyrir páska, hafi Vii-
mundur Gylfasonstigið i pontu og
haldið langa ræðu enda saman-
tekin ráð stjórnarandstæðinga að
þæfa málið. Stefáni Valgeirssyni
leiddist greinilega þegar leið á
ræðu Vilmundar, svo að hann fór
að kalla frammi: „Hættu þessu
rugli drengur, háttvirtur þing-
maður iýgur!” Vilmundur leiddi
þetta hjá sér um stund en sneri
sér siðan að forseta og mælti eitt-
hvað á þessa leið: „Herra forseti,
ég veit að timi þingsins er dýr-
mætur svo að ég mun reyna að
lengja ekki mál mitt.Hinsvegarer
það svo, þegar ég lit út i sal og sé
fyrir mér heiðskirt og upplýst
andiit háttvirts þingmanns
Stefáns Valgeirssonar — um þann
háttvirta þingmann verður ekki
sagt að hann finni upp afstæðis-
kenningar daglega — já þegar ég
sé uppljómað andlit hans þarna
fram i salnum, finnst mér eins og
ég þurfi að útskýra málið enn bet-
ur en ég hef þegar gert. Herra
forseti! Ég mun tala amk. hálf-
tima I viðbót....”
® Bæjarfögetaembættið á
Akureyri hefur löngum þótt eftir-
sóknarvert. Ófeigur ófeigsson
gengdi þvi um árabil en er nú ný-
lega látinn. í lögmannastétt eru
eðlilega byrjaðar ofurlitlar
vangaveitur um hver muni verða
eftirmaður hans. Að þessu sinni
kemur það i hlut Friðjóns Þórðar-
sonar að veita embættið en þar
sem ekki er hægt að segja að
stjórnmálaflokkur standi beinlin-
is að dómsmálaráðherraembætt-
inu að þessu sinni, þá hafa kunn-
ugir i fljótu bragði ekki neina
gæðinga I sjónmáli. Hins vegar er
ekki alveg útilokað að þeir þre-
menningarnir úr Sjálfstæðis-
flokknum i núverandi stjórn sjái
sér leik á boröi og veiti embættið
einhverjum dyggum Sjálfstæðis-
manni til að vinna hann á sitt
band. Hins er þá að gæta að Frið-
jón er sjálfur úr sýslumannastétt
og fróðir menn ætla að reynsla
hans þaðan verði til þess að hann
muni fyrst og fremst taka faglega
afstöðu til umsækjenda. Ef svo
verður þykir Freyr ófeigsson,
héraðsdómari á Akureyri likleg-
astur kandidat en hann hefur
starfað við embættið nyðra um
árabil....
Þróunaraðstoð
íslands við
Grænhöfðaeyjar
Rikisstjórn Islands hefur ákveöiö aö veita
Grænhöföaeyjum (Capo Verde) þróunar-
aðstoð. Utanrikisráðuneytið hefur falið
AÐSTOÐ ÍSLANDS VIÐ ÞRÓUNAR-
LÖNDIN að annast framkvæmd umrædds
verkefnis.
Sent verður 200 rúmlesta skip til eyjanna
ásamt veiðibúnaði og þrem leiðbeinend-
um. Aðstoðin mun standa yfir a.m.k. 18
mán. og miðar að þvi að kanna möguleika
Capo Verde á sviði fiskveiða og veita
tæknilega ráðgjöf og aðstoð við að auka
nýtingu fiskveiðanna umhverfis eyjarnar.
Stefnt er að þvi að skipið verði ferðbúið i
lok aprilmánaðar. Samgöngur við eyjarn-
ar eru ekki greiðar frá íslandi. Ekki er
heldur fullljóst hvers konar veiðarfæri né
veiðiaðferðir henta. Þvi er lagt kapp á að
hafa sem fjölbreyttastan veiðibúnað með
héðan að heiman strax i upphafi.
Við auglýsum hér með
eftir notuðum veiðarfærum
og hverskyns búnaði öðrum sem nothæfur
kann að reynast við verkefnið. Allt þarf þó
að vera i góðu ásigkomulagi.
Meðal þess sem okkur vantar er loðnunót,
togveiðarfæri hverskonar (vörpur, hlerar
og tilheyrandi á 100-200 rúml. skip), gálga
og rúllur. Léttabát með allsterkri vél (ekki
utanborðs), sextant, sjóúr o.fl. o.fl.
Vinsamlegast hafið samband við Halldór
Lárusson, simi 2761, Keflavik, eða Magna
Kristjánsson, simi 7255, Neskaupstað.
Ath. að gjafir sem kunna að berast
A.í.V.Þ. vegna þessa verkefnis og annars
t.d. veiðarfæri o.þ.h. verða metnar til fjár
og geta leitt til skattaivilnana skv. lögum.
Aöstoö Sslands v/ð
þróunarlöndin
Knjíinn hill i þrssum slaTÓarflokki c r
a jai'n goðu vi-rði
Station
FólksbUl
Það er samdóma álit þeirra sem eignast hafa þennan
Austur-þýska lúxusbil, að hann sé meira virði,
en verðið segir til um.
• Byggður á grind, með 65 ha. tvigengisvél
(Gamla Saab vélin).
• Gormar á öllum hjólum og billinn þvi dúnmjúkur.
• Eiginleikar í snjó og lausamöl frábærir.
• Enginn bíll jafn hár undir lægsta punkt.
• Stálklætt stálgrindarhús.
F ramhjoladrifinn.
Rúðuþurrkur, fjórar stillingar.
Ovenju stórt farangursrými.
Stillanleg sætabök o.fl. o.fl.
Komið og kynnist þessum
frábæra bil á góða verðinu.
Hvar færðu
meira fyrir
krónuna?
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Vonorlondi v/Sogaveg — Simor 33560-37710
Tilkynning til
söluskattsgreidenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin
á þvl, að gjalddagi söluskatts fyrir mars
mánuð er 15. april. Ber þá að skila skattin-
um til innheimtumanna rikissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 10. apríl 1980.
Auglýsingasími
Helgarpóstsins
8-18-66
- alltaf jafn ódýrt!
Malló sófasettið er ekki einungis með léttu og skemmtilegu yfirbragði,
heldur einnig einstaklega létt á pyngjuna. Fjölbreytt úrval af áklæðum - og þú tærð i hendurnar
fallegt og vandað sófasett fyrir ótrúlega lágt verð. Sendum i póstkröfu.
Munið hina ágætu greiósluskilmála - 1/3 út og eftirstöðvar á 6 mánuöum
Malló sófasettið
QJ Staðgreiðsluverð
kr. 495.000
Verð m/afborgunum 550.000
Húsgagnadeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 sími10600