Helgarpósturinn - 18.04.1980, Blaðsíða 5
5
Verðtrygging spariskírteina ríkissjóðs byggist nú á raunhæfustu
vísitöluviðmiðun sem völ er á — lánskjaravísitölunni.
Lánskjaravísitalan miðast að 1/3 við byggingarvísitölu og 2/3
við framfærsluvísitölu, og eru hún reiknuð út og birt
mánaðarlega.
Þannig geta eigendur spariskrteina nú fylgst með verðgildi
þeirra og vexti frá einum mánuði til annars.
Lánskjaravísitalan verðtryggir spariskírteinin að fullu.
Vandfundin er öruggari fjárfesting.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru til sölu nú.
helgarpósturinn..
Föstudagur 18. apríl 1980
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
Eyjapóstur 8
ný. Bátar aö landa fram eftir öll-
um kvöldum og allt á fullu I öllum
stöövum og unniö langt fram eft-
ir.
Raunar var hápunktur hverrar
vertiöar páskahrotan þegar allt
var á suöupunkti, hvergi haföist
undan.fiskur hlóöst upp utan dyre
jafnt sem innan og allir gátu
fengiö vinnu eins lengi og þeir
vildu. Þá var þaö algengt aö
verslunarmenn og skrifstofu-
menn og kennarar trítluöu sig
niöur I stöö aö afloknum vinnu-
degi sinum og tóku til viö aö'rifa
upp saltfisk eöa flaka. Og þá kom
fyrir aö gefiö var frí i báöum skól-
um til aö bjarga fiski frá
skemmdum.
En nú er engin páskahrota
lengur. Stjórnvöld hafa fyrirskip-
aö aö ekki skuli stunda veiöiskap i
dymbilviku og fram yfir páska og
þvi liggur flotinn bundinn i höfn
þá daga sem áöur fyrr voru hvaö
mest umsvif og meginhluti aflans
barst á land.
En þrátt fyrir ákveöna eftirsjá
af þvi iöandi lffi sem einkenndi
fyrrum dymbilvikuna veröur aö
viöurkenna aö vertiöarfólki bæöi
til sjós og lands er ekki of gott aö
fá aö lita upp úr slorinu þennan
tima. Hér áöur var maöur alla
vertiöina aö hlakka til tveggja
daga, föstudagsins langa og
páskadags, ekki af trúarlegum
áhuga einum saman, heldur hinu
aö þetta voru einu öruggu fridag-
arnir á allri vertiöinni.
En nú liggja sem sagt ekki
lengur net i sjó yfir bænadagana
og segja mér sjómenn aö þetta sé
kærkomin hvild, fyrir nú utan þaö
aö sá guli fær lika aö hvilast og
auka kyn sitt i friöi.
Gúanóreykurinn er ákveöinn
hluti af vertiöarstemmingunni og
þótt menn bölvi honum bæöi hátt
og I hljóöi vegna lyktarinnar, á ég
von á aö mörgum brygöi viö ef
hann hyrfi alveg. Alla vega var
dauft hljóöiö I flestum hér i vetr-
arbyrjun þegar leit út fyrir að
ekkert kæmi hingaö af loönufiski.
Og miöaö viö þau gifurlegu verö-
mæti sem gúanóin velta (einhver
sagöi mér aö þaö væru nokkrir
milljaröar) þá er eins og fólk
sætti sig viö lyktina. Þetta er nú
reyndar peningalykt.
Og svo er reginmunur á gúanó-
lykt i Vestmannaeyjum og annars
staöar á iandinu. Ég var staddur i
Keflavik ekki fyrir löngu, var á
heimleiö úr Stapanum aö nóttu til
og veörið eins gott og þaö getur
oröiö á Suöurnesjum. En þaö lá
við aö ég missti bæöi ráö og rænu,
þegar kom aö gúanóinu i Kefla-
vik, slikur og þvllikur var daunn-
inn sem fylgdi reyknum þaöan.
Þá fyrst skildi ég þau háværu
mótmæli sem ibúar Keflavikur
hafa haft I frammi gegn reykn-
um. Þetta er versta lykt sem ég
hef fundiö um ævina og þaö er
bjargföst trú min aö ég muni
aldrei finna aöra verri, annar
eins fnykur held ég sé ekki til á
þessari plánetu.
Og eftir þessa lifsreynslu liggur
viö aö ég andi aö mér gúanó-
reyknum hér heima meö snert af
velþóknun.
Og þrátt fyrir aö hér sé land-
buröur af fiski og flestar hendur á
fullu viö aö vinna úr honum,
gleymist ekki aö auöga andann.
Félagsstarfsemin blómstrar þótt
hávertiö sé. í litilli samantekt
sem gerö var I fyrra, kom I ljós aö
hér eru starfandi nokkuö á annaö
hundraö félög og mætti segja mér
aö þaö sé heimsmet I bæ sem ekki
telur fimmþúsund höfuö. Ekki
svo aö skilja aö öll þessi félög séu
á fullu yfir háannatimann, en
mörg hver. Til dæmis fagnar leik-
félagiö okkar sjötiu ára afmæli
um þessar mundir og lét sig ekki
muna um aö frumsýna tvö leikrit
i dymbilviku. Einhverjum heföi
þótt æriö nóg aö koma upp einu
stykki.
Þá mun blaöaútgáfa vera hér
meiri en gengur og gerist annars
staöar á iandinu miöaö viö fólks-
fjölda. Ekki er nóg meö aö allir
stjórnmálaflokkarnir haldi úti
málgögnum, heldur eru einnig
gefin út tvö vikublöö óháö pólitik
meö fréttaklausum og auglýsing-
um. Þá má aldurstala félaga hér
tæpast standa svo á heilum eöa
hálfum tug aö ekki sé þess minnst
meö afmælisriti upp á nokkra tugi
siöna.
Ekki hafa þó allir veriö alltaf á
einu máli um ágæti þess efnis sem
I bæjarblööunum hefur veriö. Hér
dvaldi áöur fyrr um nokkurt skeiö
rithöfundur ungur viö skriftir og
dundaöi sér við I hjáverkum aö
senda blaöagreinar um mannlif i
Vestmannaeyjum til dagblaðs i
Reykjavik. Þar sagöi eitt sinn: —
I Vestmannaeyjum eru fjórir
stjórnmálaflokkar og gefa allir út
sitt blaö. öll eru þau blöö léleg en
þó er Fylkir verstur þvi hann
kemur oftast út.
Ekki verður á þaö lagöur dóm-
ur hér, hvort þessi skrif voru
makleg en hitt er vist aö viö
myndum sakna þess ef bæjar-
biööin hættu aö koma út, alveg
eins og viö myndum sakna þess ef
aldrei eimdi úr strompi á gúanói
eöa ekki kæmi lengur gulur fiskur
á land á vertiö. Þaö er nú einu
sinni þaö sem heldur okkur gang-
andi hérna.
TILBOÐ
Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir tilboö-
um í lagningu 11. áfanga hitaveitudreifi-
kerfis.
Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrifstofunum
Vestmannaeyjum, og verkfræðastofunni
Fjarhitun hf., Alftamýri 9, Reykjavík, gegn
50. þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í Ráðhúsinu Vestmanna-
eyjum þriðjudaginn 29. april kl. 16.
allt í matinn
DALVER
Dalbraut 3