Helgarpósturinn - 18.04.1980, Page 24
-Jielgarpásturinn Föstudag
ur 18. apríl 1980
0Ásta Ragnheiöur Jóhannesdótt-
ir, sem hefur m.a. séö um „Lög
unga fólksins” i útvarpinu i mörg
undanfarin ár, mun dvelja er-
lendis næsta sumar. burfti þvi
nýjan umsjónarmann i sumar
a.m.k. Margir vildu hreppa
hnossiö, þ.á.m. ýmsir þekktir
poppsérfræöingar. Tónlistarstjóri
útvarpsins, borsteinn Hannesson
leit hins vegar ekki viö þeim val-
kostum. Hann vill „sitt” fólk og
ekkertannaö. bvi valdi hann einn
starfsmann á tónlistardeildinni til
starfans. beim fer þvi ört fækk-
andi, sem sjá um tónlistarþætti
hjá útvarpinu — og vinna ekki
daglangt á tónlistardeildinni....
# Líklega eru hvergi meiri hrær-
mgar i neinum fyrirtækjarekstri
heldur en veitingahúsabransan-
um. Nýir matsölustaöir spretta
upp eins og gorkúlur. Viö höfum
sagt frá nýjum stööum eins og
Hliöarendai'Nóatúni og nýja fisk-
réttastaönum sem veriö er aö
innrétta iBemhöftstorfu. bá hefur
frést aö Næturgrilliö svonefnda
hyggist nú opna á daginn llka meö
nýjum staö i Plötuportinu viö
Laugaveg. Jón i Módelmagasíni
er sagöur vera aö hugleiöa aö
koma upp staö i húsakynnum sem
hann hefur yfir aö ráöa i grennd
viö Regnbogann og einhverjir
munu hafa hug á aö koma upp
matsölustaö skammt frá Hlemmi
i grennd viö veitingastaöinn
Krána. bá eru forráöamenn
Asks, Pétur Sveinbjarnarson og
Haukur Hjaltsson búnir aö festa
kaup á húsakynnum þeim i Breiö-
holti þar sem Nýgrill var til húsa
og þar munu þeir hafa I hyggju aö
koma upp nýjum staö. bessi staö-
ur mun væntanlega nefnast Ask-
borgarinn og veröur i stil viö al-
þjóölegu hraöréttastaöina
McDonnald og Burger King enda
veröa allar uppskriftir þessa nýja
staöar fengnar erlendis frá hjá
slikum alþjóölegum veitinga-
húsastaö...
# Okkur hefur borist til eyrna
betrumbót á vangaveltum okkar
um eftirmann ófeigs heitins Ei-
rikssonar bæjarfógeta á Akur-
eyri. Viö geröum aö þvi skóna aö
yröi fariö eftir faglegu mati viö
veitinguna þætti Freyr ófeigsson
héraösdómari viöfógetaembættiö
liklegasti kandidatinn. Nú hefur
okkur hins vegar veriö bent á aö
EHas Eiiasson bæjarfógeti á
Siglufiröi muni aö öllum likindum
sækja um fdgetaembættiö á Ak-
ureyri. Hann hefur aö baki starfs-
aldur langt umfram Frey og þess
vegna er fastlega búist viö aö
hann hreppi embættiö, enda búiö
aö ganga framhjá honum æöi oft
i embættisveitingum aö undan-
förnu. bar meö losnar hins vegar
fógetaembættiö á Siglufiröi og þá
þykir liklegur kandidat I þaö
Haiidór Jónsson, fulltrúi viö
sýslumannsembættiö i Skaga-
■fjaröarsýslu. Hann þykir hand-
genginn ráöherraþrieykinu úr
Sjálfstæöisflokknum og stóö fyrir
byltingunni i Noröurlandskjör-
dæmi vestra þegar Pálma-menn
náöu þar undirtökunum i kjör-
dæmisráöi Sjálfstæðisflokksins.
Hann er einnig faöir Jóns Orms
Halidórssonar, aöstoöarmanns
forsætisráöherra...
#baö er venjulega hiö mesta
leyndarmál hvaö samningar Is-
lensku knattspyrnumannanna
sem fara til erlendra knatt-
spyrnufélaga, hljóöa upp á I pen-
ingum. A dögunum var t.d. sagt
frá þvl aö Atli Eövaldsson.lands-
liösmaöur úr Val, heföi samiö viö
Borussia Dortmund en hvergi
kom fram hvaö Atli eöa félag
hans Valur heföu fengiö i sinn hlut
I þessum samningi. Viö höfum
hins vegar heimildir fyrir þvi að
Atli hafi sjálfur fengiö 70 milljón-
ir en Valur 20 milljónir...
#Einhver sérstæöasta fram-
kvæmd af mörgum sérstæöum I
nýja f járlagafrumvarpinu er sögö
vera vegaframkvæmd milli
Aukasending ★ Aukasending
Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við fengið 75
bíla aukasendingu af hinum glæsilega og vandaða
Polonez til afgreiðslu í næsta mánuði.
PDLDNEZ
Ekkert venjulega
glæsilegur vagn
á ótrúlega
hagstæöu veröi.
☆ 5 dyra ☆ 4 gíra alsamhæfur ☆
Fallega taubólstruð sæti ☆ Teppa-
lagður ☆ Rafmagnsrúöusprautur 'og
þurrkur framan og aftan ☆ Snúnings-
hraöamælir ☆ Klukka ☆ Olíuþrýsti-,
bensín- og vatnshitamælar ☆ Aðvör-
unarljós fyrir handbremsur og innsog
o.fl. ☆ Diskabremsur á öllum hjólum ☆
Tvöfalt bremsukerfi ☆ Bremsujafnari
☆ 1500 cc vél 83 ha sa ☆ Rafmagns-
kælivifta ☆ Yfirfalkskútur ☆ Tveggja
hraða miðstöö og gott loftræstikerfi ☆
Halogen-þokuljós ☆ Bakljós ☆ Höfuö-
púðar ☆ Rúllu-öryggisbelti ☆
Viö viljum minna
öryrkjaleyfishafa á
aö hafa samband
viö okkur sem
fyrst.
POLDNEZ
hefur góöa aksturs-
eiginleika, léttur i stýri
og liggur vel á slæm-
um vegum.
Sýningarbíll á staðnum
— Komiö, skoöiö og gerið góð kaup.
Vinsamega staðfestið pantanir.
FIATEINKAUMBOÐÁ iSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SfÐUMÚLA 35. SÍMI 85855.
Vopnafjaröarog bórshafnar, sem
áætlaö er aö kosta muni um 2
milljaröa króna og fyrirhugaö er
aö verja einum milljarö til á fjár-
lögunum núna.betta er sérstakur
vetrarvegur og er til kominn fyrir
tillögu frá hafisnefndinni svo-
nefndu, sem er sögö hafa lagt
mikla áherslu á aö fá þennan veg
vegna fiskflutninga þarna á milli.
bessi vegur er sagöur skólabók-
ardæmi um þaö hversu byggða-
sjónarmiö geta stundum kaffært
allt sem heitir arðsemissjónar-
miö. Tölufróöir menn hafa nefni-
lega sýnt fram á aö bein þörf fyrir
þennan veg sé e.t.v. 150 daga á
hverju ári og þá fari aö meöaltali
um einn bíll um veginn daglega.
Miöaö viö aö vegurinn kostar 2
milljaröa og vextir af láni sem
fengiö er til aö fjármagna fram-
kvæmdina er um 20,5% eöa 410
milljónir króna þá kemur á dag-
inn aö þaö kostar 700 þús und á
dag aö koma þessum eina bil,
sem fer um veginn daglega, milli
Vopnafjarðar og bórshafnar....
#Guömundur Arnlaugsson, sá
gagnmerki skólamaöur hefur nú
sagt starfi sinu lausu sem rektor
Menntaskólans viö Hamrahliö
eins og fram hefur komiö i fjöl-
miölum. bað er mikilvægt em-
bætti i islenskum skólamálum,
þvl löngum hefur þessi stærsti
menntaskóli landsins veriö i far-
arbroddi hvað varöar nýjungar.
Margir velta þvl nú fyrir sér hver
veröi arftaki Guömundar i
rektorsembættinu. Innan kenn-
araliðs skólans mun vera mest
hreyfingfyrir þvl aö Heimir Páls-
son.sem veriö hefur konrektor að
undanförnu, taki viö af Guö-
mundi, og er ekki vitaö á þessu
stigi um aöra umsækjendur, þótt
trúlega veröi fleiri um hituna
þegar þar aö kemur...
# 1 siöasta Helgarpósti vorum viö
meö vangaveltur um arftaka
annars og ekki síöur mikilvægs
embættis, þ.e. hver tæki viö af
Sigurbirni Einarsyni þegar hann
lætur af störfum sem biskup Is-
lands. Viö þær bollaleggingar má
bæta þvi viö, aö Helgarpósturinn
hefur haft spurnir af þvi aö einn
af klerkum landsins sé bráölega á
förum til Bandarikjanna til aö
sérhæfa sig I þvi sem á ensku
nefnist „church administration”
eöa „kirkjustjómun”. baö er
séra Siguröur Sigurösson á Sel-
fossi Pálssonar vigslubiskups
sem hyggst taka sig upp meö fjöl-
skyldu sina og setjast á skólabekk
i þessu fagi viö Princeton-háskóla
i Bandarikjunum...
#Gunnar Dungal, aöaleigandi og
tramkvæmdastjóri Pennans, hef-
ur nú selt hlut sinn f Skrifstofu-
tækni hf., sem hann keypti fyrir
nokkrum árum. Kaupendur eru
Bergur Bjömsson bókhaldari og
Lcó M. Jónsson rekstrarhagfræð-
ingur, sem hefur tekiö aö sér að
endurskipuleggja allmörg fyrir-
tæki á undanförnum árum, og
m.a. skrifaö margar greinar um
þjóömál i Dagblaöið. Hann verö-
ur jafnframt framkvæmdastjóri.
Núverandi framkvæmdastjóri er
Stefán Ingólfsson, sem er einn af
hluthöfum. Hann hefur i hyggju
aö láta af starfi framkvæmda-
stjóra á næstunni. Rekstur skrif-
stofutæknis, sem hefur m.a. um-
boö fyrir Olivetti skrifstofuvélar
og DTS tölvubúnaö, hefur gengiö
uppogofan undanfarin ár. begar
Stefán Ingólfsson tók viö fram-
kvæmdastjóm var reksturinn 1
miklum ólestri, en nú stendur
hann meö ágætum bldma. Bergur
og Leó taka þvi viö blómlegu
búi...
®Sveinn Oddgeirsson er nú að
hætta sem framkvæmdastjóri
Félags islenskra bifreiöaeigenda
eftir aðhafa gegntþvf starfi slðan
1. janúar 1975. baö er Hafsteinn
Vilheimsson sem tekur viö starf-
inu um næstu mánaðamót, en
hann hefur til þessa veriö mót-
tökustjóri á Hótel Sögu. Umsækj-
endur um starfiö voru fimm eöa
sex talsins. Sveinn hefur veriö
ráöinn se m b ifreiöaeftirlitsm aöur
hjáBifreiöaeftirliti rikisins. Hann
hefur kennt viö meiraprófiö und-
anfarin þrjú ár...
# Rögnvaldur Pálsson forseta-
frambjóöandihefurgengiöá milli
vinnustaða sföustu vikurnar. A
þessum feröum sínum hefur hann
oröiö þess var, aö mjög fáir hafa
átt þess kost, að mæta i veislur á
Bessastööum. Hans helsta kosn-
ingaloforð í dag er þvi, þjóöar-
veisla á Bessastööum. Meö öör-
um oröum, Rögnvaldur hefur lof-
aö fólki þvl, aö öllum veröi boöiö
til veislu á Bessastööum veröi
hann kjörinn forseti. bá vita
menn þaö og draga upp finu föt-
in...
# 1 siðasta Helgarpósti birtum við
ágæta háövlsu sem Sighvatui
Björgvinsson, alþingismaöur orti
i tilefni af ræöuhöldum Stefáns
Valgeirssonar á þingi. Sighvatur
mun hinn liprasti hagyrðingur og
nú hefur HP heyrt aöra vlsu úr
hans smiöju. bessi er tileinkuö
öörum samþingmanni: og heitir
Bergþórshvoll:
Bærinn þegar brenndur var
Bergþóru og Njáls,
afrek sem menn unnu þar
aðeins var til hálfs
þvl Kári sjálfur komst á brau
meö kolugt sérhvert fat
og yfir sást þeim óbrennt nau
sem Eggert Haukdal gat.
w Eyvindur Erlendsson leikstjóri
vinnur nú að gerð sjónvarps-
myndar, sem fyrirhugað er að
verði sýnd næsta haust. Eyvindur
hefur sjálfur skrifað handrit
myndarinnar og er jafnfram leik-
stjóri. Myndin fjallar um tvo
gamla menn, sem löngum hafa
att kappi hvor við annan. Annar
þeirra er sveitamaður og vinnur
enn að sinu, en hinn er kominn á
elliheimili og hefur ekkert annað
að gera en að skrifa sveitamann-
inum bréf, sem hann gerir óspart,
bó berast honum aldrei svör. 1
myndinni verður mikið af liking-
um, sem margar hverjar ná vel
út fyrir okkar landsteina. Helsti
samstarfsmaður Eyvindar viö
gerð myndarinnar er Haraldur
Friðriksson kvikmyndatöku-
maður. Eru þeir félagar þegar
teknir til við klippingar.