Helgarpósturinn - 09.05.1980, Page 17
—Jie/garpásturin/
Kjarvalsstaðir:
GRAFÍKMYND/R
EFTIR ÞÝSKU
EXPRESS-
JÓNISTANNA
Það er skammt stórtiOinda á
milli i myndiistarheiminum. Um
það leyti sem sýningu á verkum
erlendu stórmeistaranna i kjall-
ara Norræna húsinu lýkur, berja
nýir gestir aO dyrum Kjarvals-
staða. Þetta eru grafikmyndir
eftir ýmsa helstu meistara þýska
expressjónismans og spanna
myndirnar timabilið milli 1920 og
’35.
Sýningin er haldin i tilefni af 60
ára afmæli Germaniu og koma
myndirnar hingað beint frá
Þýskalandi af þvi tilefni. Sýning-
in hefst á morgun,laugardag og
stendur i eina viku eða til 18. mai.
Germania minnist afmælis sins
viö opnun sýningarinnar að Kjar-
17
Hér er eitt verka óskar
Kokoschka.sem er meðal þeirra
þýsku expressjónista sem verk
eiga á sýningunni á Kjarvalsstöð-
valsstööum kl. 14 á laugardag,
þar sem Heykjavikur Ensemble
leikur verk eftir Schumann og
Jón Ásgeirssonog ávörp verða
flutt.
Meðal þeirra expressjónista
sem eiga myndir á þessari sýn-
ingu eru Max Beckmann, George
Grosz, Kandinsky, Paul Klee,
Oskar Kokoschka, Franz Marc,
Emil Nolde og Karl Schmidt-
Rottluff. -BVS
ÍSLENSKAR KVIK-
MYNDIR KYNNTAR
VESTANHAFS
Sýnishorn af kvikmyndagerð
Islendinga verða væntanlega
kynnt Bandaríkjamönnum nú i
haust. 1 október hefst norræn
kvikmyndakynning á vegum hins
fræga listasafns Museum of
Modern Art I New York og fer
kynningin slðan áfram til Chicago
og Los Angeles.
Ráðgert er aö Islensk kvik-
myndagerð leggi sitt af mörkum
til þessarar kynningar en meðal
norrænna kvikmyndagerðar-
manna sem þar taka þatt er t.d.
Ingmar Bergman. Von er á Larry
Kardish, yfirmanni kvikmynda-
mála við Museum of Modern Art
hingað til lands og hyggst hann
kynna sér það sem til greina
kæmi sem islenskt framlag. Slik
kynning I Bandarikjunum gæti
komið Islenskri kvikmyndagerð á
landakortið ef vel tekst til.
—ÁÞ.
Tékknesk kvikmynda-
vika í Háskólabíói
Tékknesk kvikmyndavika á
vegum Tékkneska sendiráðsins i
Reykjavik verður haldin i
Háskólabiói dagana 17.—22, mai
næstkomandi.
Sýndar verða sex kvikmyndir
og munu leikstjórar þeirra vera
litt eða ekki þekktir hér á iandi.
Myndirnar eru Skuggar sumars-
ins eftir Frantisek Vlacil, Adela á
eftir að borða eftir Óldrich
Lipsky, Stefnumót i júli eftir Kar-
el Kachyna, Haltu honum hrædd-
um eftir Ladislav Rychman, Litla
hafmeyjan eftir Karel Kachyna
og Krabat eftir Karel Zeman, en
sú síðastnefnda er teiknimynd og
var hún sýnd hér á siðustu kvik-
myndahátið.
Viðfangsefni kvikmynda þess-
ara eru margbreytileg, og má
nefna að Adela á eftir aö borða, er
skopstæling á sögum um gamlan
og vinsælan einkaspæjara, Nick
Carter, en bækur um hann hafa
komið út á Islensku. Stefnumót i
júli er eins og nafnið gefur til
kynna, ástarsaga tveggja ung-
menna, sem hittast I sumarleyf-
inu. Haltu honum hræddum er
gamansöm söngvamynd um ung-
an sönglagahöfund.
Myndirnar hafa vlða fengið
verðlaun á kvikmyndahátiðum
erlendis og má nefna aö Krabat
fékk verðlaun I Teheran, sem
besta barnamyndin árið 1978.
Þar sem tékkneskar myndir
eru sjaldséðar hér ættu kvik-
myndaunnendur ekki að láta
þessa viku fram hjá sér fara.-GB
Úthlutun úr kvikmyndasjóði:
AFTUR GRÓSKUMIKIÐ
KVIKMYNDAVOR
Það fer varla milli mála, að
fvrsta styrkveitingin úr islenska
kvikmyndasjóðnum, sem fór
fram I fyrravor, hafi veriö ágæt
lyftistöng fyrir islenska kvik-
myndagerð. Tvær myndanna,
sem þá hlutu styrki, Land og
synir og Veiðiferðin, hafa verið
frumsýndar, og tvær eru komn-
ar á lokastig I vinnslu.
Nýlega voru veittir styrkir úr
kvikmyndasjóöi öðru sinni. Þeir
runnu til átta kvikmynda,
einnar stuttrar 8 mm kvik-
myndar og fjögurra handrita.
Þorsteinn Jónsson fékk ellefu
milljónir vegna kvikmyndar,
sem er byggð á sögunni „Punkt-
ur, punktur, komma, strik”
eftir Pétur Gunnarsson, Páll
Steingrlmsson og Ernst Kettler
átta milljónir vegna myndar,
sem er byggð á sögunni „Kona”
eftir Agnar Þóröarson, Magnús
Magnússon fjórar milljónir til
að gera kvikmynd um llfrlki
Mývatns, Snorri Þórisson þrjár
milljónir vegna myndar um is-
lenska refinn, Helga Egilson
tvær miUjónir vegna teikni-
myndar um Búkollu og Vil-
hjálmur Knudsen tvær milljónir
vegna kvikmyndar um jarð-
varma. Auk þess var veittur
fimm milljón króna styrkur til
að ljúka viö Óöal feðranna og
fjögurra milljón króna styrkur
til Guömundar P. Olafssonar og
Óla Arnar Andreassen til að
ljúka kvikmynd um Vestur-
eyjar.
Jakob F. Magnússon, Björn
Björnsson og Egill Eðvarösson
fengu þrjár milljónir til að
vinna handrit að kvikmynd um
TIvolí I Reykjavík, Asgeir Long
fékk eina miUjón vegna hand-
rits að kvikmynd sem gerist I
London á striðsárunum og á Is-
landi 40 árum seinna, Helgi
Gestsson fékk eina milljón til að
gera handrit eftir örlagasögu úr
Skagafirði og Haraldur Frið-
riksson fékk eina milljón til að
gera handrit, byggt á frásögn
Pálma Hannessonar, „Villa á
öræfum”. Þá fékk Asgrlmur
Sverrisson tvöhundruð þúsund
krónur til að gera 8 mm kvik-
myndina „Riddari götunnar”.
Helgarpósturinn hafði tal af
þeim til að forvitnast nánar um
þessi verkefni.
„Punktur, punktur”
kominn i gang
— Skipulagsvinna er komin I
gang og ég reikna meö, aö tökur
geti farið fram I júll og ágúst.
Fyrsta gerð af handritinu liggur
fyrir og enda þótt það sé ekki
komið I sina endanlegu mynd
liggur ljóst fyrir, aö það veröur
talsvert frábrugðið bókinni.
Timaröö verður önnur, verkið
einfaldað og persónur færri. En
andinn og megin efnið er þaö
sama, sagði Þorsteinn Jónsson
kvikmyndatökumaður, um
kvikmyndina „Punktur, punkt-
ur, komma, strik”.
Samt sem áöur verða um 30
leikarar I myndinni, sem gert er
ráö fyrir að kosti 60-80 millj-
o'nir fullgerö, og verði um 90
mlnútna löng. Styrkurinn er þvi
ekki nema brot af áætluðum
kostnaöi, en aðstandendur
myndarinnar vonast til að geta
dregiö sem flestar greiðslur þar
til hún fer að gefa af sér.
„Kona” komin i gang
— Undirbúningur að kvik-
mynduninni er komin I gang, og
gróft kvikmyndahandrit hefur
verið gert. Viö áætlum aö hefja
tökur I júll eöa ágúst, og ljúka
við myndina strax á þessu ári,
sagði Ernst Kettler um mynd
Morð var framið I Austurstræti. A myndinni hafa hljómsveitarmenn
brugöiö sér Ihlutverk likmanna, og bera kistuna burt.
ÍSLENSK POPPÓPERA
Á HVÍTA TJALDINU
Enn ein islensk kvikmynd
verður frumsýnd I Regnboganum
á laugardaginn. Myndin heitir
„Himnahurðin breið” og er kvik-
myndagerð á poppóperu nokk-
urra nemenda við Menntaskólann
við Hamrahlið, sem þeir sviðsettu
i fyrravetur.
— Myndin kemur rjúkandi heit
úr kópieringu, beint á frum-
sýninguna, og kostar þá 20 millj-
ónir, sem við skuldum að mestu
leyti. Við höfum ekki fengið
annan fjárstyrk en hálfa milljón
úr skólasjóði MH, sagði Kristberg
Óskarsson, annar höfunda hand-
rits, og leikstjóri, við Helgar-
póstinn.
— Verkið hefur tekið heilt ár,
og i átta mánuði hafa þrlr menn
ekkert gert annaö en vinna aö
myndinni. Upphafiö aö myndinni
var þaö, að viö ætluðum einungis
að gera heimildarmynd um sviðs-
setninguna, en siðan rúllaði þetta
smám saman upp á sig, og úr
þessu varð 50 minútna mynd,
sagöi hann.
Efni óperunnar er I stórum
dráttum barátta tveggja afla,
hins góöa og hins slæma. Persón-
urnar I myndinni togast á milli
sitt á hvað, og ýmsir verða á milli
þessara tveggja afla.
Auk leikara úr hópi MH-fólks
leika ýmsir borgarar Reykjavfk-
ur hlutverk i myndinni án þess aö
vita af þvi, en hún er öll tekin I
Reykjavfk og nágrenni, meðal
annars á Hallærisplaninu og I
Austurstræti.
Ari Harðarson og Kristberg
Óskarsson geröu handritið,
Kjartan Ólafsson samdi tónlist-
ina, en Guömundur Bjartmarsson
annaðist kvikmyndatöku. Aðal
persónur myndarinnar (söngvar-
ar) eru sjö, auk fimm hljómlist-
armanna, sem koma fram I
smærri hlutverkum auk þess að
annast tónlistarflutning.
—ÞG
DRAUMUR OG MARTRÖÐ
Tónabló: Woody GuthrjeíBound
for Glory)
Bandarisk. Argerð 1978. Hand-
rit: Robcrt Getchell. Leikstjóri:
Hal Ashby. Aðalhlutverk:
David Carradine, Melinda Dill-
on, Ronnie Cox.
Helst var von um aö fá hand-
tak við ávaxtatinslu. Fátækling-
arnir slógu upp búðum við
stærstu ávaxtaekrurnar i von
um stopula vinnu fyrir það kaup
sem vinnuveitendur skömmt-
uðu sjálfir að eigin geöþótta.
Kvikmyndir
eftir Þráin Bertelsson
1 kreppuárunum I Bandarikj-
unum fóru uppflosnaðir bændur
og verkamenn hópum saman til
Kaliforniufylkis, fyrirheitna
landsins, þar sem drýpur smjör
af hverju strái. Viö .komuiia
þangað breyttist draumurinh\
ofti martröö, þvi þótt landsgæð-
in ættu aö vera nóg handa öllum
var þeim misjafnlega skipt.
Sumir eignuðust allt. Aöjrir
ekkert.
Verkalýösbaráttan var hörð á
þessum tima, og erfitt að fá
þennan soltna og sundurleita
hóp til að samfylkja undir fána
verkalýðshreyfingarinnar. Um
þetta timabil hafa verið
skrifaðar frægar bækur, svo
sem „Þrúgur reiöinnar” eftir
Steinbeck, sem John Ford kvik-
myndaöi árið 1940.
Tónabió sýnir núna mynd frá
þessum krepputima um farand-
David Carradine og Melinda Dillon sem Woody Guthrie og kona
hans I mynd Tónabiós.
söngvarann fræga Woody
Guthrie, sem var einn þeirra
sem elti drauminn til Kaliforniu
og sá þar þá misskiptingu auös
og valds sem varð honum upp-
frá þvi yrkisefni I söng og ljóöi.
Um margt minnir þessi mynd
töluvert á myndina um Joe Hill,
sem Bo Widerberg gerði hérna á
árunum, enda margt svipað
með þeim Woody Guthrie og Joe
Hill.
Myndina um Woody hefur
leikstjófrinn Hal Ashby gert og
unnið gott verk, en þó er eins og
hann hafi verið ofurlitið tvistíg-
andi i túlkun sinni, þvi manni
veröur aldrei almennilega ljóst
hvort honum er efst i huga að
sýna manni á dálitið róman-
tiskan hátt þá flökkunáttúru
sem blundar I okkur öllum
ellegar að gera skil Woody
Guthrie og bandarisku þjóð-
félagi á timum hans.
David Carradine leikur aöal-
hlutverkiö meö miklum glæsi-
brag, og hefur þó ugglaust veriö
I talsverðri úlfakreppu aö eiga
að leika mann sem lést árið 1967
oger aðdáendum sinum i fersku
minni.
Fyrir kvikmyndatökuna hlaut
Haskell Wexler óskarsverðlaun
og er vel að þeim kominn, enda
er hann I hópi þeirra sem hafa
lyft list kvikmyndatökumanns-
ins til vegs og viröingar.
Nú mun vera væntanleg i
Tónabió önnur mynd eftir Hal
Ashby, sem hlotið hefur mun
betri undirtektir en myndin um
Woody; það er „Coming Home”,
sem hvarvetna hefur vakið
mikla athygli. Sömuleiöis var
sýnt úr mynd, sem kvikmynda-
unnendur biða af mikilli
óþreyju: „Apocalypse Now”
eftir Francis Ford Coppola.
Raunar er sú eftirvænting
blandin kviða, þvi hvernig mun
sú mynd njóta sin 1 Tónabiói?
Hvers vegna ekki I Háskólabiói
eöa Laugarásbiói?
En þetta er útúrdúr. Myndin
um Woody Guthrie er ágætis-
mynd, sem óhætt er að mæla
með.