Helgarpósturinn - 27.06.1980, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 27.06.1980, Blaðsíða 9
9 __helgarpásturinn. Föstudagur 27. júní 1980 ÞARF MAÐUR AÐ VERA KALL? Heimir Pálsson — Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson - Magnea J. Mátthías dóttir— Páll Heiðar Jónsson— Steinunn Sigurðardóttir — Þráinn Bertelsson ' Hringborðið I dag skrifar Stelnunn Sigurðardóttlr KvennamáliB er enn þann dag I dag eitthvert vinsælasta mál meðal þessarar litlu þjóðar, og fleiri þjóða reyndar. Það er reifað á siðum dagblaðanna, i litvarpi og sjónvarpi, i bókum, biómyndum. Meiraðsegja ég er að skrifa um það. Rembst hefur verið eins og r júpan við staurinn að kalla sanngjarna menn til vitnis um að svona geti þetta --------- ekki gengið lengur — þetta sé bilið að ganga svona svo lengi. En hver i ósköpunum er árangurinn af öllu þessu tali? Við segjum venjulega þetta sé allt i áttina að jafnfrétti og bræðralagi kynjanna. En ég held stundum við segjum það bara til að segja eitthvað. AB minnsta kosti virðist svo óendanlega langt i land. Og hver þarf á jafnrétti að halda þegar hann er dauður? Látumkyrrt liggja með dauð- ann. Þegar mörgum yfirsést enn i lifanda lifi aö nokkru sé ábótavant, og það þá helst þeim sem óréttlætið bitnar á, ykkur konum. Augu sumra þeirra opnast aldrei, og augu annarra eru að þvi i mörg ár. Nii vill maður endilega reyna að vera jákvæður, sennilega stærsti feill okkar kvenna hvað við göngum langt i þvi. — Nú þykist ég virkilega hafa reynt, en sé ekki betur en gamla sagan sé ennþá i gangi. — Það eru enn við konur sem förum verst útúr öllu. Samskipti kynjanna. Eru það ekki við sem sitjum eftir með sárt ennið — að öðru jöfnu. Hvilir ekki öll ábyrgöin á okkur ef heimili leysist upp, en kallinn getur spókað sig i Hollivúdd feðranna og vaðið t bleikjum. Þvi það er nú eitt. Þessir dreng- ir eiga sjens fram I rauðan dauðann. Sem ég hef að visu aldrei skilið — en staöreyndir tala sinu máli. Einstæöar mæður. Sem er ekki óliklegt ‘ að ' Islendingar eigi heimsmet i — og margar þeirra barnungar. Flestar I l.áglaunastörfum, það er aö segja I störfum sem er samt lifað af. — Aðstæöur þessa stóra hóps eru þar að auki verri núna en áður fyrr, þegar ein- stæð móðir með barn eða börn gat auðveldlega fallið inn I stórt sveitaheimili. — Núna eru þess- ar konur fangar innan fjögurra veggja úti i bæ. Og þvi miður ekki óalgengt að blessaðir kall- arnir notfæri sér aumingja fangana, jafnvel sér til lifs- viöurværis, sjálfsagt ekki af mannvonsku, það er bara sitúa- sjónin sem er svona. Tviskinnungurinn 1 kynferðis- málum — ekki er hann nú að minnka, viröist heldur aukast eftir þvl sem við konur færum okkur upp á skaftið (ef við erum þá aö þvi). Hafi kona semsagt safiö hjá slatta, er hún urrandi nimfó, en maöur með sömu höföatölu að baki heilbrigður og reynslunni rikari. Þar fyrir utan er nú eins gott fyrir okkur konur að vera ekki að vera ógiftar eöa fráskildar — þá erum viö stór- hættulegar — og þaö einmitt I augum okkar eigin kynsystra, sem ættu þó að skilja manna best hvers vegna viö erum það. Já erum það ekki ennþá við - sem förum verst útúr öllu? Erum þaö ekki alltaf við sem höfum tilfinningar sem traökað er á, erum það ekki við sem eigum að brúa öll bil, sýnum landsfrægan skilning, og erum það ekki við sem erum sérfræö- ingarnir I að fyrirgefa allt? Atvinnumálin. Takist okkur að komast I sæmilegt djobb er samt sem áður varla tekiö mark á okkur — viö erum bara ein- hverjar litlar konur. Til aö vera jafngóðar I einhverju starfi og kallar, þurfum við að vera þris- • var sinnum betri. — Hjálpi okkur heilagir — þaö er ekki nóg með aö jafnréttistaliö hafi litil áhrif — það virðist lika grunnt á sannfæringu hjá mörg- um þeirra sem stunda þaö mest. Slöustu timar á tslandi leiða hugann alveg sérstaklega að þvi. Þegar sá fáheyrði atburður gerist að kona býður sig fram til forseta, og sýnir þá dirfsku jafnvel án þess aö vera I algeng- asta bandi þjóðfélagsins, hjónabandi. — Þetta ljúfa karlasamfélag okkar hefur hún fengiö margfalt I hausinn, verandi eini frambjóðandinn sem hefur oröiö fyrir verulegu aökasti — og er sá frambjóöandi sem á sér harösnúnasta and- stæöingahópinn — vegna þess aö hún er kona. Þaö er greini- lega orðið stórhættulegt aö kona er iframboöi i alvörunni, og það til æðsta embættis þjóðarinnar — já I alvöru, en ekki upp á punt, eins og við konur látum nota okkur á framboðslista flokkanna. — Getur það þá verið — á ég þá virkilega að trúa þvl að maður veröi aö vera kall til þess að geta lifað? ERU RANNSÓKNIR FJÁRFESTING? í JR HEIMI VÍSINDANNA Umsjón: Jón Torfi Jónasson ■ Liklega eru flestir sammála um að I nútima þjóOfélagi sé eOlilegt aO stundaöar séu rannsóknir af ýmsu tagi og jafnvel er taliö sjálf- sagt aö þjóðarbúiö standi straum af kostnaöi slikrar iöju. Fæstir Islendingar efast liklega um aö rétt sé aö athuga aö nokkru marki ástand og stærö fiskistofna, aö- stööu til virkjana faltvatna, stærö og afkastagetu jaröhitasvæöa, beitarþol gróöursvæöa, Islenskar bókmenntir frá fyrri öldum eöa aödraganda stofnunar Islenska lýöveldisins, svo nokkur dæmi séu tekin. En jafnvel þótt margir vilji gjarnan aö þessum verk- efnum sé sinnt, þá veröa býsna margir hikandi þegar aö þvi kemur aö rökstyöja fjárveitingar til þessara starfa enda þótt ekki sé um gifurlegar upphæöir aö ræöa (innan viö 1% þjóöartekna okkar er variö til rannsóknar- starfa). Liklega má telja tvær megin- ástæður fyrir þvi að umræöa um fjárveitingar til rannsóknar- starfa er oft laus I reipunum. i fyrsta lagi eru markmið rann- sókna margs konar þannig aö erfitt er að setja öll rannsóknar- eða fræðistörf undir einn hatt I al- mennri umræðu. I öðru lagi er oftast mjög erfitt að meta afrakstur rannsókna miöaö við þau markmiö, sem stefnt er að og þess vegna er sjaldan hægt að sýna á afdráttar- lausan hátt fram á gildi rann- sókna. Það er þó fráleitt að ekki sé hægt aö réttlæta tiltölulega auðveldlega allt rannsóknarstarf, sem veitt er fé til eða beðið um fé tU. Við slika réttlætingu má nota margvisleg viömiö. Stundum má visa til sparnaöar i rekstri eöa til framleiðniaukningar, stundum til bættrar heilsugæslu eða mennt- unar og I önnur skipti til eflingar menningar af ýmsu tagi. Skyldur visindamanna Það hlýtur aö vera skylda fræðimanna að réttlæta störf sin, sérstaklega vegna þess að gildi þessara starfa liggja sjaldnast i augum uppi. Ef skortur er á almennum skilningi á gildi rann- sókna (og það gæti haft fjársvelti i för meö sér) þá hlýtur þessi skilningsskortur að skrifast al- farið á reikning þeirra fræði- raanna, sem viö rannsóknimar fást. Að minum dómi ætti það að vera þáttur i starfi islenskra visindamanna (ekki endilega stór þáttur, en mikilvægur) að kynna almenningi störf sin, skilmerki- lega og aögengilega. Þessi kynn- ing ætti að hafa tviþættan tilgang. 1 fyrsta lagi að sinna almennri fræðslu og menntun og I öðru lagi aö gefa þeim, sem ekki eru sér- hæfðir I tilteknum greinum, for- sendur til þess að skilja og meta þýðingu þess starfs, sem innan þessara greina er unnið. Eg tel að það sé ótrúlega og óþarflega stórt bil milli svo- nefndra „sérfræðinga” og almennings, bil, sem tiltölulega auðvelt er að minnka en til þess þarf nokkuð átak, sem verður þó ekki gert nema vísindamennirnir sjálfir sjái og skilji nauðsyn þess. Um réttlætingu rannsókna Eins og ég drap á hér að ofan er ekki ástæða til þess aö réttlæta allarrannsóknir á sama hátt. Hér ætla ég að vikja aöeins nánar að réttlætingu rannsókna, sem ekki eiga allt of auðvelt uppdráttar hjá fjárveitingaraöilum. Þessar rannsóknir eru hvorki i flokki þeirra, sem hafa augljóst mennta- eða menningargildi né þeirra, sem hafa fyrirsjáanlegt hagnýtt gildi frá hagfræðilegu sjónarmiði. Hér er um að ræöa rannsóknir á ýmsum fyrirbærum, sem liklega eiga eftir aö skipta okkur miklu máli, þó ekki sé endi- lega ljóst hvernig. Leit að og athugun á jarðhita- svæðum á íslandi er nokkuö gott dæmi um þaö, sem ég hef i huga hér. Þaö hefur lengi veriö ljóst aö jarðhiti væri okkur íslendingum verðmæt orkulind, en erfitt hefur veriö að meta hve verðmæt hún er, sérstaklega þar eð ekki liggur ljóst fyrir hvernig hún verður best nýtt. Þess vegna hefur þaö heldur ekki verið ljóst hve miklu fé er eölilegt að verja til athug- unar á jarðhita. Margt kemur til viö slikt mat, en hér nefni ég tvennt. Annars vegar er það spurningin um mikilvægi rann- sókna yfirleitt og hins vegar kostnaöurinn við hvert tapað framkvæmdaár, miðað viö ein- hverja ákveðna framkvæmd. Eftirfarandi dæmi dregur at- hyglina að þessum tveimur atriðum. Axel Björnsson jaröeölis- fræðingur hjá Orkustofnun hefur bent á að meö ýmsum mælingar- aðferðum, sem notaöar eru við jarðhitaleit hafi tekist aö finna jaröhitasvæði i Eyjafirði, sem nú anna nokkru af heitavatnsþörf Akureyrar og má reikna með að hitaveitan i núverandi mynd spari um 20 þús. tonn af ollu á ári eöa um 3 milljarða á verölagi ársins 1980. Þessar rannsóknir I Eyja- firðinum voru nokkuö viða- miklar miðað viö þaö, sem gengur og gerist I jarðhitaleit, en kostuöu þó ekki nema örfá pró- sentaf framkvæmdarkostnaði við hitaveituna. Réttlæting rann- sóknanna eftir á var auöveld I þessu tilviki og kostnaðurinn nánast aukaatriöi. En hvaö með önnur svæði? Hve mikinn kostnaö á aö leggja I rannsóknir áður en fyrir liggur hvernig hagnýta má jarðvarmann á hverjum staö? A aö bfða meö kerfisbundnar rann- sóknir þangað til áætlun um hag- nýtingu liggur fyrir? A landinu eru 20 háhitasvæði (hiti um eða yfir 200 gr C á eins km dýpi) og um 250 lághitasvæði (hiti yfirleitt undir 150 gr C á eins km dýpi) og nú er veitt töluverðu f jármagni til athugunar þessara svæöa. En er það nóg?Fjöldi svæöanna bendir til þess að um feikna verömæta orkulind sé að ræða, en sann- gjarnt mat veröur varla fyrir hendi fyrr en flest þessara svæða hafa veriö könnuð itarlega. En auðvitaö má ekki ganga út frá þvi að nýting þessara svæða veröi i öllum tilvikum hagkvæm. Erfitt er að gefa nokkurn tima af- gerandi svar i hagkvæmnisat- hugun, þar sem forsendur breyt- ast ár frá ári, en ljóst er að timi veröur að gefast til þess að at- huga og prófa áður en fram- kvæmdir hefjast. Sveinbjörn Björnsson prófessor i jaröeðlis- fræöi viö Ht telur að nálægt fjög- urra ára rannsóknarskeiði hafi verið sleppt úr viö framkvæmda- áætlun við Kröflu. Þessi timi hefði einkum verið notaður til þess að kanna eiginleika borhol- anna. Eftir á að hyggja sjá vist flestir hvað þessi timi hefði verið lærdómsrikur. Meiri rannsóknir? Ef dæmið um jarðhitann er skoðað nánar, tel ég aö þaö sýni þrennt: t fyrsta lagi hve þýðingarmikil góö rannsóknarvinna er og hve ódýr hún er miöab viö flestar framkvæmdir, sem á þeim býggja. 1 öðru lagi hve þýðingarmikið það er að gefa nægan tima til nauðsynlegra rannsókna. I þriðja lagi og þetta leiðir af fyrstu tveimur liðunum, hve þýðingarmikið það er að byrja á rannsóknum snemma e.t.v. löngu áður en fjárhagslegur afrakstur er I sjónmáli. Nú er auðvitað ekki hægt að tryggja það að allar rannsóknir hafi hagnýtt gildi á þann hátt, sem gefið er til kynna hér að ofan, en þaö hlýtur að vera hluti starfs visindamanna að rökstyðja með skýrum dæmum hve þýðingar- mikið það er aö leggja fé til rann- sókna án þess að fjárhagslegur afrakstur sé auðsær. Þannig mætti rökstyöja tölu- verða aukningu fjárveitinga til jarðhitaleitar, til orkutengdra rannsókna af ýmsu tagi (t.d. rannsókna nýtingu mós, vinds og vetnis) til rannsókna á slepp- ingum laxa, til þróunar rafeinda- tækni (t.d. möguleikum á nýtingu örtölvu i islenskum iönaði), til athugunar á byggingarefnum og svo mætti lengi telja. Þetta eru raunar allt verkefni, sem þegar hefurverið sinnt aö nokkru marki og þegar er ljóst aö þessar rann- sóknir eru nauösynlegar, en i flestum tilvikum heföi verið rétt að byrja fyrr og af meiri krafti. Eg tel að hægt sé að réttlæta töluverða aukningu fjárveitinga til rannsókna á tslandi. Rök- stuöningurinn verður auðvitað að koma frá þeim visindamönnum, sem gerst þekkja hverju sinni og þeir veröa að hafa i huga að alls staðar vantar meira fé. Rökin þurfa að vera skýr og skilmerki- leg þannig að almenningur ekki siðuren stjórnmálamenn hafi að- stöðu til þess að dæma um málið á sanngjarnan hátt. Jarðhitarannsóknir — það hlýtur að vera hluti starfs visindamanna að rökstyðja meö skýrum dæmum hve þýöingarmikiö það er að leggja fé til rannsókna án þess að fjárhagsiegur afrakstur sé auðsær, segir Jón Torfi m.a. I grein sinni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.